Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Page 38
Hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns? Bestu kaupin sem ég hef gert voru ferskjubleik ull-
arslá frá Aftur. Hljómar ekki praktísk eign og heilmikil fjáfesting en hún var þess virði. Stundum
þarf maður að veðja á (bleikan) hest.
En þau verstu? Verstu kaupin mín eru Max Azria-kjóll sem ég keypti í NYC á sínum tíma. Góð
ráðlegging: Ekki fara í djús-megrun og svo beint í verslunarferð til útlanda. Kjóllinn er alltof lítill.
Ég kemst í hann ef ég fæ gubbupest, annars ekki.
Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt? Þegar ég vel föt er útgangspunkturinn yfirleitt sá
sami: Líður mér vel í þessu? Þetta er einföld spurning en svarið ekki alltaf skýrt. Kannski finnst
mér þetta falleg, vönduð flík og allar tískudrottningarnar búnar að missa vatnið yfir þessu, en ef
mér líður eins og grillaðri samloku í flíkinni þá eru endalokin óumflýjanleg.
Hver er flottasta búð sem þú hefur komið í? Flottasta búðin sem ég hef farið í er
ekki beint flott, en hún sló í gegn hjá mér og sambýlismanni mínum.
Hún heitir Grandpa og er í Stokkhólmi. Skandinavísk fatamerki,
skemmtileg gamaldags húsgögn og lágstemmd, vinaleg stemning
sem er vandfundin á þessu annars ofursnobbaða Södermalm-svæði.
Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á verðmiðann, hvaða flík eða fylgi-
hlut myndirðu kaupa? Ef ég mætti fá mér flík og verðmiðinn
væri ekki hindrun myndi ég velja mér fallega, klassíska
Chanel-dragt. Ég geng ekki í drögtum enn sem komið er, en
mér finnst þær heillandi og afskaplega dömulegar. Það myndi
vega ágætlega upp á móti skvettuskapnum í mér. Að auki finnst mér
Karl Lagerfeld, yfirhönnuður Chanel, stórskemmtileg fígúra og það
myndi toppa allt ef hann gæti aðstoðað mig við valið. Hann myndi ef-
laust súpa hveljur og kalla mig hval í kexpakka, þegar hann sæi mig í
Chanel-dragt, en það væri algjört aukaatriði. Hann er líka eldri maður
sem gengur um með leðurgrifflur. Hver dæmir fyrir sig. Þetta yrði
aldeilis góður dagur.
Ef þú fengir aðgang að tímavél sem gæti flutt þig aftur til árs að
eigin vali og þú fengir dag til að versla, hvaða ár myndirðu velja og
hvert færirðu? Í tímavélinni yrði ég að hugsa mig vel um. Árin í
kringum 1950 eru lokkandi því þá réðu kvenleg snið ríkjum og útlits-
lega hentar það mér og fæðingarmjöðmunum mínum mjög vel. Hins
vegar yrði feministinn ég fljótlega frústreruð á
tíðarandanum. Þá yrði stefnan tekin á Grikk-
land hið forna því þar virðast allir hafa gengið
í hvítum lökum og sandölum. Fyrst ég set
þægindin í fyrirrúm hvort eð er, þá kýs ég
Grikkland 500 f. Kr., takk!
Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan
stíl? Til eru þónokkrar konur sem hafa
þróað með sér stíl sem ég heillast
af. Ein þeirra er Natalie Massenet,
stofnandi netverslunarveldisins Net-
a-porter. Hún er mér mikil fyrirmynd
enda tókst henni að sameina tvö áhuga-
mál mín: tísku og viðskipti, með þrotlausri
vinnu. Hún hefur sýnt að maður þarf ekki
að vera eins og módel til að ná langt í tísku,
og maður þarf heldur ekki að vera gangandi
reiknivél til að gera það gott í viðskiptum. Í
mínum augum er það flottur stíll.
Á að fá sér eitthvað fallegt fyrir sumarið
[og þá hvað]? Í sumar ætla ég ekki að
missa mig í fatakaupum heldur verða stóru
kaupin fallegt og klassískt reiðhjól. Það tók
mig tæpan áratug að taka bílpróf og því
verður fagnað með því að kaupa glæsilegt
hjól. Sumarið mun því fara í hjólaferðir með
ökuskírteinið í rassvasanum.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða
mottó, þegar kemur að fatakaupum?
Ein klassísk margsönnuð kenning í lokin:
Hlébarðamunstur á alltaf við og dettur
aldrei úr tísku. Það er náttúrulögmál.
Karl Lagerfeld
er töffari.
AFP
Natalie Massenet
er mikil fyr-
irmynd Önnu
Margrétar.
HÚMORISTI OG SKVÍSA
„Kemst í kjólinn ef
ég fæ gubbupest“
ANNA MARGRÉT GUNNARSDÓTTIR ER 25 ÁRA VIÐSKIPTAFRÆÐINEMI
OG PJATTRÓFUPENNI. HÚN HEFUR VAKIÐ ATHYGLI FYRIR HNYTTINN
HÚMOR OG SETTLEGAN STÍL. Í SUMAR ÆTLAR HÚN AÐ VINNA FYRIR
SJÁLFA SIG ENDA MEÐ MÖRG JÁRN Í ELDINUM.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Önnu Margréti
finnst gaman að
klæða sig upp.
Það er ekki gott að líða
eins og samloku þegar
haldið er út á lífið.
Hlébarðamynstrið dettur
aldrei úr tísku að mati
Önnu Margrétar.
*Föt og fylgihlutir Arnari Má Jónssyni var boðið starf hjá virtu tískuhúsi daginn eftir útskriftarsýningu sína »40