Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Síða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2013
Franskur andi mun svífa yfir vötnum á stofu-
tónleikum í Gljúfrasteini á sunnudag. Þá er
14. júlí, þjóðhátíðardagur Frakka, og munu
Hlín Pétursdóttir söngkona og Gerrit Schuil
píanóleikari meðal annars leika lög eftir
Henri Duparc og Gabriel Fauré af því tilefni,
auk laga við ljóð Halldórs Laxness. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 16.
Gerrit Schuil hefur komið fram á tón-
leikum víða um Evrópu, í Bandaríkjunum og
Asíu. Hann hefur verið búsettur í Reykjavík
frá 1992 og haldið hér fjölda tónleika. Hlín
Pétursdóttir Behrens stundaði framhalds-
nám við óperudeild tónlistarháskólans í
Hamborg og hefur á ferli sínum sungið víða í
tónleikahúsum.
TÓNLEIKAR Á GLJÚFRASTEINI
FRANSKUR ANDI
Hlín Pétursdóttir kemur fram á tónleikunum
ásamt Gerrit Schuil píanóleikara.
Morgunblaðið/Golli
Gamla skólahúsið í Ólafsdal er afar reisulegt og
áhugavert að skoða. Sýningin er á efri hæðinni.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sýning sem fjallar um nám og störf kvenna í
Ólafsdal við Gilsfjörð, þegar fyrsti búnaðar-
skólinn var starfræktur þar, verður opnuð í
gamla skólahúsinu á laugardag klukkan 14.
Sýningin er á efri hæð skólahússins en skól-
inn var starfræktur á árunum 1880 til 1907.
Við opnunina mun Sigríður Hjördís Jör-
undsdóttir spjalla um efni sýningarinnar við
gesti en sýningin er samstarfsverkefni Ólafs-
dalsfélagsins og Byggðasafns Dalamanna. Í
gamla skólahúsinu verður þennan sama dag
opnuð kynning á verkefni um matarhefðir
við Breiðafjörð og á Ströndum. Kynningin
kemur frá Þjóðfræðistofunni á Hólmavík.
SÝNING Í ÓLAFSDAL
NÁM KVENNA
Þekkt er sú staðhæfing rit-
höfundarins Samuels
Johnsons að höfundur
byrji aðeins að semja bók
því lesandinn ljúki henni.
Nema hann gefist upp á
bókinni.
Breska dagblaðið The
Independent birtir nýja
könnun á því hvaða bók-
um lesendur gefist helst upp á. Efstar á listan-
um eru hin vinsæla Fimmtíu gráir skuggar,
eftir E.L. James, og Hlaupið í skarðið, ný
raunsæisskáldsaga J.K. Rowling höfundar
Harry Potter-bókanna. Lesendur bjuggust
við meiri göldrum. Eat Pray Love var þriðja á
listanum og þá Stúlkan sem lék sér að eld-
inum eftir Stieg Larsson.
Af klassískum bókmenntaverkum sögðust
lesendur helst hafa gefist upp á Catch-22 eft-
ir Joseph Heller og Hringadróttinssögu J.R.
Tolkiens.
LESENDUR MISSA ÁHUGANN
UPPGJAFABÆKUR
J.K. Rowling
Tónlistarhátíðin „Englar og menn“ hefst íhinni þekktu áheitakirkju Strand-arkirkju í Selvogi á sunnudag og verður
sjö næstu sunnudaga í kirkjunni. Markmiðið
með hátíðinni er að bjóða upp á vandaða tón-
listarviðburði á þessum sögufræga stað og
auðga um leið tónlistarlíf á Suðurlandi.
Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona er list-
rænn stjórnandi hátíðarinnar og kemur nú að
tónlistarflutningi í kirkjunni áttunda sumarið í
röð. Eiginleg tónlistarhátíð í Strandarkirkju
var fyrst haldin á síðasta ári, að hennar frum-
kvæði, og stóð þá yfir tvær helgar. Að þessu sinni er messu og tón-
leikum fléttað saman. Fjóra af sunnudögunum sjö verður guðsþjón-
usta og þá verður tónlistin samofin athöfninni – í hin þrjú skiptin
verða tónleikar eingöngu.
Hátíðin hefst með guðsþjónustu 14. júlí kl. 14 þar sem prestur
verður séra Anna Sigríður Pálsdóttir. Um tónlistarflutning sér Tríó-
Suð, skipað þeim Margréti Stefánsdóttur sópransöngkonu, Jóhanni
Stefánssyni trompetleikara og Hilmari Erni Agnarssyni organista.
Sérlegur gestur tríósins verður Hjörleifur Valsson fiðluleikari.
„Ég hef verið með tónleika í kirkjunni síðustu sjö ár. Kirkjan hef-
ur alltaf verið full og gestum þótt vænt um þessar stundir,“ segir
Björg. „Tónlistin lyftist í hæðir á þessum helga stað, það er sérstök
stemning í þessari fallegu kirkju. Okkur langaði í kjölfarið að bjóða
upp á meiri dagskrá, enda kemur fjöldi ferðamanna í Selvoginn alla
daga yfir sumarið. Hugmyndin fékk hljómgrunn, þannig að okkur
var gert kleift að hrinda hátíðinni af stokkunum, en hún er styrkt af
Menningarráði Suðurlands, Tónlistarsjóði og Strandarkirkju.“
Meðal tónlistarmanna sem taka þátt í hátíðinni má nefna söngv-
arana Önnu Sigríði Helgadóttur, Báru Grímsdóttur, Benedikt Krist-
jánsson, Björgu og Hrólf Sæmundsson, organistana Aðalheiði Þor-
steinsdóttur og Hannes Baldursson, Huldu Jónsdóttur fiðluleikara,
gítarleikarann Chris Foster, harmonikkuleikarann Bjarna Frímann
Bjarnason og Kór Þorlákskirkju, auk Elísabetar Waage hörpuleik-
ara. Nánari upplýsingar eru á vefunum: kirkjan.is/strandarkirkja/.
TÓNLISTARHÁTÍÐ Í STRANDARKIRKJU
Englar og menn
í áheitakirkju
Tónlistarhátíð verður haldin næstu sunnudaga í Strandarkirkju.
Morgunblaðið/Ómar
„ÞAÐ ER SÉRSTÖK STEMNING Í ÞESSARI FALLEGU
KIRKJU,“ SEGIR BJÖRG ÞÓRHALLSDÓTTIR SÖNGKONA.
Björg
Þórhallsdóttir
Menning
Þ
að var kominn tími á að ég héldi
einkasýningu,“ segir Hulda Há-
kon myndlistarmaður en hún
opnaði á dögunum sýningu í
Vestmannaeyjum sem hefur verið
afar vel sótt; fyrstu þrjá dagana munu nær
þúsund gestir hafa skoðað verkin – þau sýna
meðal annars makrílvöður, fugla og hóp
fólks.
„Sumir halda kannski að ég sé hætt að
vinna í myndlistinni því ef undan er skilin
sýning okkar Jóns Óskars í nýja listsalnum
Tveimur hröfnum við Baldursgötu á dög-
unum, þá hef ég ekki sýnt í Reykjavík frá
árinu 2006. En ég hef unnið stöðugt, allan
þennan tíma,“ segir Hulda. „Ég vinn mjög
hægt og verkin mín hafa mörg farið beint til
erlendra safnara, og hafa ekki verið á sýn-
ingum áður. Svo veit ég auðvitað ekkert um
það hvort þessi verk hér fara eitthvað.“
Sýningunni gaf Hulda ævintýralegt en
jafnframt upplýsandi heiti: „Fuglar, haf, hús,
fólk, skip sólskin og fiskur.“ En hvers vegna
setur hún upp þessa stóru einkasýningu í
Vestmannaeyjum?
„Ég er með vinnustofu hérna og þetta er
mjög þægilegt, ég þurfti nánast bara að fara
með verkin í næsta hús að sýna þau. Ég hef
vinnustofur bæði hér í Eyjum og í Reykjavík
en stærri verkin vinn ég mikið hérna.“
Þegar spurt er hvernig standi á því að
Hulda og Jón Óskar, eiginmaður hennar sem
einnig er kunnur myndlistarmaður, séu með
vinnustofu í Vestmannaeyjum, þá segir hún
söguna þannig: „Fyrir langa löngu eign-
uðumst við pening. Ekki mikinn en við fórum
að leita okkur að vinnustofu að kaupa. Við
vorum komin til Hveragerðis að leita og þá
var veðrið svo gott og fallegt útsýni til Vest-
mannaeyja. Við enduðum leitina því hér og
fundum okkur þetta fallega hús. Það er mjög
þægilegt að vera hér; samgöngur eru yfirleitt
fínar, þetta er yndislegur staður og fólkið
gott. Hér er allt af öllu.“
Sýnir með billjardborði
Hulda segir að þau Jón Óskar reyni að eyða
eins miklum tíma í Eyjum og þau geta. „Við
erum að reka Gráa köttinn við Hverfisgötu í
Reykjavík og það getur verið flókið að púsla
tímanum saman en við erum sífellt meira hér
úti. Við höfum verið að gera húsið hérna upp
og það fer betur og betur um okkur.“
En hvernig kom til að hún setti upp þessa
sýningu í Vestmannaeyjum, eftir að hafa ekki
haldið einkasýningu í nokkur ár?
„Mér var boðið að sýna hér. En aðdrag-
andinn hefur verið langur, níu ár,“ segir
Hulda og hlær. „Mér fannst bara alltaf að ég
yrði að vera með almennilega sýningu hér og
ætti að vinna verk sérstaklega fyrir hana.“ Á
sýningunni eru fjórtán verk, af þeim hafa að-
eins fjögur verið sýnd áður.
„Ég bað um að fá að sýna í hráu húsnæði
og þá var mér boðið þetta frábæra sýning-
arrými sem er salur frímúrara í Eyjum.
Þetta er gamalt netaverkstæði með hráum
veggjum, góðu aðgengi og mjög fallegri birtu.
Eina vandamálið, ef vandamál skal kalla
því það er ekki stórvægilegt, er að ég sýni
með billjardborði. Það er svo stórt að það er
ekki hægt að taka það út úr salnum. En ég
hef sýnt með loftinu á Kjarvalsstöðum og
stiga í sýningarsal í Svíþjóð, þar sem hvorugt
mátti hylja vegna sæmdarréttar arkitekta, og
þess vegna fannst mér ekki mikið mál að
hafa billjardborðið á sýningunni!“
Enga neikvæðni í verkin
Hulda Hákon segist hafa verið mjög reið eft-
ir efnahagshrunið, henni fannst sem fótunum
hefði verið kippt undan því hvað það væri að
vera Íslendingur. Að okkur hefði frá barn-
æsku verið kennd einhver vitleysa og yf-
irgangur, eins og að fólk eigi ryðjast fram og
„aldrei að víkja“. „Og maður lærir ungur ljóð
Egils Skallagrímssonar, þar sem því er hrós-
að að fara í víking, höggva mann og annan.
Mér hefur þótt erfitt að takast á við breytta
afstöðu til hluta sem maður hugsaði annars
aldrei út í,“ segir hún.
„Á sýningu minni í 101 galleríi, árið 2006,
sem ég kallaði EBITA, skoðaði ég nokkuð
hamaganginn í samfélaginu á þeim tíma. En
ég vildi ekki fara að dæla þessum ömurlega
neikvæða heimi eftir hrun inn í verkin, vildi
heldur horfa á björtu hliðarnar. Hér sýni ég
til dæmis gyllt textaverk sem fjallar um haf,
björg, himin, hetjur og sólskin. Mér finnst
það vera Vestmannaeyjar. Það er smitandi
dugnaður hérna og mikil náttúrufegurð.“
Meðal annarra verka eru þrjú sem sýna
makríl, þennan furðufisk sem hefur gert sig
heimakominn hér við land. Á einu verkinu er
orðið Háfadjúp en á hinu orðið Háadýpi.
Hulda segir um sömu fengsælu fiskimiðin að
SÝNING HULDU HÁKON Í VESTMANNAEYJUM HEFUR VERIÐ AFAR VEL SÓTT
Fuglar, haf, hús, fólk, skip
sólskin og fiskur
„ÞAÐ VAR FARIÐ AÐ TRUFLA MIG AÐ FÓLK SÉR EKKI VERKIN ÁÐUR EN ÞAU FARA TIL EIGENDA SINNA OG ÞVÍ
ÁKVAÐ ÉG AÐ DRÍFA UPP ÞESSA SÝNINGU HÉR Í EYJUM,“ SEGIR HULDA HÁKON UM NÝJA SÝNINGU SÍNA.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Hulda með tíkinni Heiðu. „Það er smitandi
dugnaður hérna og mikil náttúrufegurð.“