Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Side 53
14.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Þungarokkshátíðin Eistna-
flug í Neskaupstað nær há-
punkti sínum á laugardag,
með tilheyrandi drunum og
hausaskaki, þegar meðal annars
troða upp sveitirnar Muck, Singa-
pore Sling, Sólstafir og Brain Police.
2
Tilraunaleikhús Austurlands
sýnir verkið Næturlíf í
Sláturhúsinu á Egilsstöðum
á laugardagskvöld kl. 20.
Leikari, dansari, hönnuður og tónlist-
armaður rannsaka samband sitt við
næturlíf og gefa áhorfendum tækifæri
til að ferðast á milli persónulegra
minninga og upplifana tengdra þeim.
4
Hátíðin Sumartónleikar í
Skálholti stendur nú yfir og á
laugardag verða tvennir tón-
leikar. Á laugardag kl. 15 flyt-
ur Hljómeyki verk eftir Hreiðar
Inga Þorsteinsson og kl. 17 flytja
Sigurður Halldórsson og Dean Ferr-
ell tónlist fyrir tenór- og bassafiðlur.
5
Sirkuslistahátíðinni Volc-
ano, sem staðið hefur yfir í
Vatnsmýrinni undanfarið,
lýkur nú um helgina. Því eru
síðustu forvöð að skella sér á sirkus-
sýningu. Um helgina má meðal annars
sjá Tumble Circus frá Belfast, franska
hópinn Betti Combo, Frida Odden
Brinkmann og prjónainnsetningu
Aino Ihanainen.
3
Sýning Örnu Óttarsdóttur,
Gangi þér vel, verður opnuð í
Kunstschlager, Rauðarárstíg 1,
á laugardag klukkan 20. Sýnir
hún meðal annars verkið Marsi-
panfarsíma og aðra hluti sem
„lenda mitt á milli“.
MÆLT MEÐ
1
Gegnum árin höfum við eignast traust-an kjarna áheyrenda sem sækir tón-leikana okkar hér. Við höfum leikið
víða um lönd en það er alltaf gott að koma
heim til Íslands að spila,“ segir Kristjana
Helgadóttir flautuleikari. Hún er einn með-
lima kammerhópsins Adapter sem stendur
fyrir hinni árlegu Frum-nútímatónlistarhátíð á
Kjarvalsstöðum nú um helgina. Auk Kristjönu
skipa kjarna hópsins þau Gunnhildur Ein-
arsdóttir á hörpu, Ingólfur Vilhjálmsson á
klarinett og Matthias Engler slagverksleikari.
Þá kemur víóluleikarinn Nikolaus Schlierf
einnig fram.
Tvennir tónleikar verða á hátíðinni, á laug-
ardags- og sunnudagskvöld, og hefjast báðir
klukkan 20. Megináhersla hátíðarinnar er á að
kynna meistaraverk nútímatónbókmennta fyr-
ir tónlistarunnendum. Á Frum – 2013 verður
tónlist eftir Helmut Lachenmann (f. 1953) í
forgrunni en hann hefur haft mikil áhrif á
gang tónlistarsögunnar síðustu hálfa öld.
Hann er meðal annars frumkvöðull í notkun
óhefðbundinnar hljóðfæratækni og eru verk
hans æði krefjandi fyrir flytjendur. Þá verða
einnig leikin verk eftir fjögur önnur þýsku-
mælandi tónskáld, þau Klaus Huber frá Aust-
urríki, Georg Friedrich Haas og Johannes
Schöllhorn frá Sviss og unga upprennandi
tónskáldið Sarah Nemtsov frá Þýskalandi.
„Við í Adapter leikum eingöngu samtíma-
tónlist, frá miðri síðustu öld og til dagsins í
dag – og mikið nýja tónlist. Við höfum frum-
flutt fjölda verka og mikið verið skrifað fyrir
okkur,“ segir Kristjana. Hún bætir við að allt
frá námárunum hafi meðlimir hópsins laðast
að samtímatónlist og í dag flytja þau hana svo
til eingöngu.
„Við búum og störfum í Berlín og ferðumst
mjög mikið til að leika á tónleikum. Berlín-
arborg iðar að lífi og þar er mjög gott að
starfa sem samtímatónlistarmaður – við náum
að lifa af þessu. Líklega væri það ekki hægt í
mörgum öðrum borgum.“
Þrjú meðlima Adapter eru íslensk og segir
Kristjana að þau vilji gjarnan vera hluti af ís-
lensku menningarlífi. Því riðu þau á vaðið árið
2006 með fyrstu Frum-hátíðina og síðan 2007
hefur hún verið haldin í samstarfi við Lista-
safn Reykjavíkur.
„Við höfum gert okkur far um að leika verk
eftir stórmeistara nútímatónlistar, nú til dæm-
is verk eftir Lachenmann og Huber. Og jafn-
framt koma með það nýjasta að utan. Við höf-
um líka leikið verk eftir íslensk tónskáld, hér
og á tónleikum erlendis; til dæmis í Þýska-
landi, Tyrklandi og í Kaliforníu. En Frum-
hátíðin er okkar innlegg í íslenskt menningar-
líf, við viljum vera partur af því og kynna
áhugaverða tónlist,“ segir hún.
FRUM-NÚTÍMATÓNLISTARHÁTÍÐIN Á KJARVALSSTÖÐUM
Verk stórmeistara nútímatónlistar
„VIÐ BÚUM OG STÖRFUM Í BERLÍN,
ÞAR ER MJÖG GOTT AÐ STARFA
SEM SAMTÍMATÓNLISTARMAÐUR –
VIÐ NÁUM AÐ LIFA AF ÞESSU.“
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Kammerhópurinn Adapter. Ingólfur Vilhjálms-
son, Matthias Engler, Kristjana Helgadóttir og
Gunnhildur Einarsdóttir. Þau búa í Berlín.
ræða. „Það hljóta að vera mikil gæði að vera
svona nálægt fiskimiðunum. Stundum, eins
og undanfarið, skjótast stóru skipin í stutta
túra rétt út fyrir hafnarmynnið.“
Þá stendur orðið Rósagarðurinn á þriðja
makrílverkinu. „Það var svo gaman á opnun
sýningarinnar þegar gestir voru að fræða
mig um þessa staði í hafinu. Mér er sagt að
þýskir sjómenn hafi gefið Rosgarten. Botninn
er víst þyrnóttur.
Það dýpkar verkin fyrir mér að eiga í
skemmtilegum samræðum um þau við gesti.“
Markríllinn heillar Huldu og hún segist
hafa verið furðu lostin fyrst þegar hún sá
þennan litfagra fisk, þar sem honum var
mokað upp úr Vestmannaeyjahöfn. „Hann er
ótrúlega skrautlegur og fallegur. Mér finnst
ég vera svolítið að helga íslensku miðin mak-
rílnum í þessum verkum, að láta heiminn vita
að við eigum hann líka. En makríllinn eirir
víst engu þar sem hann fer um, hann er eins
og rándýr og munstrið minnir mig á hlé-
barða. Hann er sundmagalaus og erfitt að sjá
hann í fiskleitartækjum. Fiskifræðingar þurfa
að fylla fötu af sjó og byrja svo að telja
makríleggin, sagði einn gesturinn; að þannig
átti þeir sig betur á þessum furðufiski.“
Margir þekkja myndir Huldu Hákon af
skrímslum og eitt slíkt má sjá á sýningunni,
auk verka með svönum og hröfnum, og far-
fuglageri.
„Þessi sýning hefur létt af mér vissri
pressu,“ segir Hulda. „Ég er lengi að vinna
hvert verk og þess vegna er líka gott að sýn-
ingin stendur lengi, í einn og hálfan mánuð.
Það koma svo margir til Eyja að ég held
jafnvel að hér sjá hana fleiri en myndu sjá
hana ef hún væri í Reykjavík.“
„Ég bað um að fá að sýna í hráu húsnæði og þá var mér boðið þetta frábæra sýningarrými sem er salur frímúrara í Eyjum. Þetta er gamalt neta-
verkstæði með hráum veggjum, góðu aðgengi og mjög fallegri birtu,“ segir Hulda. Fjórtán ný verk eru á sýningunni.
Ljósmyndir/Jón Óskar
Makríllinn heillar Huldu og eru þrjú makrílverk á sýningunni. Hér er vísað á fengsæl mið við Eyjar.