Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Qupperneq 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2013
V
indar breytinga blása nú um Santiago Berna-
béu. Franski snillingurinn Zinidine Zidane leið-
ir byltinguna bak við tjöldin en hann er í þjálf-
araliði Carlo Angelotti. Þekkir hvern krók og
kima á Bernabéu og hefur fylgst með spænska
boltanum lengi. Þeir Angelotti eru miklir vinir síðan þeir
voru saman hjá Juventus og hafa haldið því sambandi síð-
an.
En 30 árum eftir að hinir fimm fræknu frá Madrid stigu
á völlinn (Butragueño, Míchel, Martín Vázquez, Sanchís og
Pardeza sem allir voru uppaldir) eru loksins komnir erf-
ingjar. Isco, Carvajal, Jesé, Morata og Illara heita kapp-
arnir. Allir voru þeir í sigurliði U-21 árs liði Spánar og allir
eru þeir búnir að sanna sig sem ekki aðeins efnilegir leik-
menn heldur góðir. Þeir eru ekki allir uppaldir eins og Bör-
sungar heldur keyptir. Alvaro Morata, Jese Rodriguez og
Nacho voru að banka á dyrnar hjá aðalliðinu á síðasta tíma-
bili og þykja mikil efni. Þeirra hlutverk verður stærra
næsta tímabil. Það er því ljóst að einhverjir af ofurstjörn-
unum verða að fara. Á HM-tímabili vill enginn vera fastur
á bekknum.
Zidanes vs Pavones
Jose Mourinho var við stjórnvölinn í þrjú ár og eins og hjá
Chelsea og Inter nennti hann ekki að bíða eftir ungum leik-
mönnum. Gaf þeim aldrei tækifæri og seldi þá bestu burt,
það er eins og hann trúi ekki á unglingastarf. Það er
kannski eini gallinn hans sem stjóri. Það hefur farið tölu-
vert í taugarnar á Madrídingum hve vel hefur tekist til hjá
Börsungum með sitt unglingastarf. Sex til átta Börsungar
eru venjulega í spænska landsliðinu á meðan Real Madrid á
einn til þrjá. Casillas er yfirleitt eini uppaldi.
Til er hugtak í Madrid sem heitir Zidanes and Pavones.
Þar er átt við „hinir aðkeyptu“ gegn „hinum uppöldu“.
Vitnað er í téðan Zidane og Fransisco Pavon sem var að
keppa um sömu stöðu. Sá var uppalinn og þótti bara nokk-
uð góður. En fékk eðlilega ekki tækifæri og hvarf á braut.
Sá sem Madridingar syrgja hvað mest þessa dagana er Ju-
an Mata, leikmaður Chelsea. Hann er uppalinn Madridingur
en fékk aldrei tækifæri. Sá sína sæng upp reidda með Val-
encia þar sem hann sló í gegn og er í guðatölu hjá Chelsea.
Reyndar segja leigubílasögurnar að Mourinho vilji losna við
hann frá Chelsa vegna tengsla hans við Madrid. Aðrir Pa-
vonar sem hafa þurft að fara vegna skorts á tækifærum
eru meðal annara Samúel Etóo, Roberto Soldado og Borja
Valero.
Einn gamall fær þó væntanlega sitt hlutverk á ný. Iker
Casillas verður markvörður númer eitt. Ef Ancelotti ætlar
að vinna stuðningsmenn á sitt band verður hann að hafa
Casillas í búrinu. „Fótboltinn er nú samt bara þannig að ef
einhver verðskuldar að vera í byrjunarliðinu er hann það,“
sagði Ancelotti. Það vill nefnilega oft gleymast að Diego
Lopez (sá er leysti Casillas af hólmi) átti frábært tímabil í
fyrra. Hann bjargaði oft á tíðum og heilt yfir var hann frá-
bær. En hann er samt óvinsælasti leikmaður Real Madrid.
Af því hann tók stöðu Casillas. Hann er samt uppalinn hjá
félaginu og ætti því að vera tekið vel. En staða Casillas
innan félagsins er nánast eins og Jesús er hjá kristnum.
Haldið til Englands
Þeir sem eru líklegastir til að fara frá Real er Alvaro Arbe-
loa, Kaka, Xabi Alonso og Gonzalo Higuaín. Arbeloa var yf-
irleitt fyrsta val Mourinho þrátt fyrir að vera veikasti
hlekkur í varnarkeðjunni. Hann er ekki góður að verjast og
ekki góður að sækja. En hann hlýddi Mourinho og það var
nóg til að vera valinn í liðið. Nú er Daniel Carvajal kominn
aftur til Real frá Bayern Leverkausen þar sem hann var
frábær. Guttinn er uppalin Madrídingur eins og Arbeloa og
var keyptur á 6,5 milljónir punda. Það er lítið fé því
Carvajal var frábær á EM U-21 fyrr í sumar. Hann hlýtur
að hafa verið keyptur til að spila – ekki til að hanga á
bekknum. Xabi Alonso hefur verið orðaður við endurkomu
til Englands eins og Higuaín sem mun að öllum líkindum
klæðast Arsenal treyjunni næsta tímabil.
Einn knattspyrnumaður sem spilaði 30 leiki á síðasta
tímabili en fékk lítið sem ekkert hrós var króatinn Luka
Modric. Enda var hann að spila sem djúpur miðjumaður og
í samkeppni við Xabi Alonso. Ancelotti sagði þegar hann
tók við að hann sæi ekki alveg Króatann sem varnarsinn-
aðan miðjumann. Hann þyrfti sitt pláss – þyrfti sitt frelsi
til að spila best. Þá er hann kominn í samkeppni við Isco,
Özil, jafnvel Callejón og einn Brassa að nafni Kaka sem í
smástund var dýrasti knattspyrnumaður heims. Þangað til
Ronaldo var keyptur. Hendum inn Alonso, Khedira og jafn-
vel Angel Di María og spilatími Modric á mikilvægu HM
ári gæti verið takmarkaður.
Kaka spilaði undir stjórn Ancelotti hjá AC Milan og var
valinn besti leikmaður heims undir hans stjórn. Hvað verð-
ur um hann? Kaka er aldrei með vesen og lætur trúna
hjálpa sér á erfiðum tímum. Hann er með samning í tvö ár
í viðbót og segist vilja berjast um sæti sitt í liðinu. Bras-
ilísku liðin Sao Paulo og Corinthians vilja fá hann í sitt lið
og þá er Bandarísk lið jafnvel sögð vera í myndinni.
Pressan mikil
Mourinho er ekki elskaður af stuðningsmönnum Madridar
þrátt fyrir að hafa sett stigamet og unnið bikara. Síðasta
tímabil var það lélegt í þeirra huga. (Þeir lentu í samt bara
í öðru sæti í deildinni, komust í bikarúrslit og duttu út í
undanúrslitum Meistaradeildarinnnar. Það er þokkalegasta
pressa í Madrid.) Ímynd félagsins er í molum eftir elda
sem Mourinho hafði kveikt. Real Madrid hefur þannig misst
toppsætið yfir verðmætasta íþróttavörumerkið til Manchest-
er United og vont umtal hefur minnkað tekjurnar.
En nú á að snúa þessu öllu við. Vinirnir Ancelotti og Zid-
ane eru þegar farnir að láta til sín taka og hver veit nema
hvítklæddir Madrídingar komist loks á topp Evrópu með
ferska fætur og landi tíunda Evrópubikarnum – eitthvað
sem allt snýst um hjá félaginu og hefur gert alveg frá því
sá níundi kom í hús 2002.
Ítalinn Carlo Ancelotti með Zinedine Zidane þegar þeir tóku við. Ancelotti sagðist hafa breytt um þjálfarataktík vegna Zidane. Áður
fyrr spilaði hann hina þekktu lok lok og læs taktík Ítala (Cattenaccio eða varnarbolta) en breytti yfir í 4-1-3-2 vegna hæfileika Zidane.
„Það var ekki hægt annað en að spila sóknarleik með Zidane,“ sagði Ítalinn sem hefur haldið sig við þá stefnu.
AFP
Út með gamla
inn með hið nýja
REAL MADRID ER BYRJAÐ Á SUMAR-
HREINGERNINGUNNI. HEILSTEYPTUM
ATVINNUMÖNNUM Á BESTA ALDRI, SEM
JOSE MOURINHO KEYPTI, SKAL HENT ÚT OG
FERKSKIR UNGIR FÆTUR FENGNIR INN. FIMM
NÝIR HAFA ÞEGAR KOMIÐ, ALLT SPÁNVERJAR
– SEM ER NÝLUNDA Á ÞEIM BÆNUM.
AFP
* 30 árumeftir aðhinir fimm
fræknu frá
Madrid stigu
á völlinn eru
loksins komn-
ir erfingjar.
Isco, Carva-
jal, Jesé, Mor-
ata og Illara.Butragueño, Míchel, Martín Vázquez, Sanchís og Pardeza stilla sér upp fyrir einn leik með Real Madrid.
„Þó margir haldi að það sé öðruvísi þá er stefna Real Madrid
sú, og hefur alltaf verið, að skila mönnum upp í aðalliðið.“
Zinedine Zidane
Boltinn
BENEDIKT BÓAS
benedikt@mbl.is