Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Page 63

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Page 63
14.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 63 ... með ekta Síríus rjómasúkkulaðiÁRNASY N IR Einn af stærstu leikmönnum tölvuleiksins EVE Online missti geimskipið sitt um síðustu helgi í ótrúlegri fléttu milli tveggja deilda. Skipið var metið á hvorki meira né minna en 9.000 dollara, rúmlega 1,1 milljón króna. Leik- maðurinn, sem kallar sig TSID í leiknum, var búinn að eyða gríðarlegum tíma og fjármunum í skipið sitt sem hann kallaði Revenant en missti það á aðeins nokkrum mínútum. Skipið var eitt sjaldgæfasta geimskip sem til er í leikn- um, svokallað súperskip. Þau voru þrjú til en nú eru þau aðeins tvö. Árásin var skipulögð af andstæðingum liðs Pandemic Legion sem kalla sig Verge of Coll- apse en þeir höfðu fengið einn virtan leikmann innan Pandemic Legion til að skipta um lið. Héldu leikmenn í Pandemic Legion þegar hann sendi neyðarkall að hann væri eðlilega í vand- ræðum. Kom í ljós að enginn var í vandræðum heldur var þetta dulbúið neyðarkall og flóðgátt- ir af byssuhljóðum og sprengjum fóru af stað. Verge of Collapse komu andstæðingum sín- um í opna skjöldu og hófu stórskotahríð, skutu andstæðinga sína í kaf. Eigandi Revenant og aðrir í liði Pandemic Legion gátu lítið gert í gerviheimsblóðbaðinu og fer bardaginn í sögu- bækur EVE Online. Eru spilarar eðlilega ekki á eitt sáttir um þær aðferðir sem þarna var beitt en alls eyðilögðust 15 skip í bardaganum. Svikarar eru aldrei vel liðnir. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem leikurinn missir stórt skip. Fyrir átta mánuðum var sex þúsund dollara skip eyðilagt. Stærsta og dýr- asta skip leiksins er hinsvegar metið á 350 þús- und dollara í deild sem kallar sig Project Entr- opia. Eitt sjaldgæfasta skipið sprengt Rúmlega 500.000 áskrifendur eru að EVE On- line og eiga flestir spilarar nokkur skip. Poppstjarnan Rihanna skellti sér í tívolíið í Kaupmannahöfn. Hún hélt tónleika í borginni fyrr í vikunni og lét loka tívolíinu fyrir sig og sitt fylgdarlið eftir þá. Enginn fékk að fara með henni í tækin. Hin 25 ára Rihanna fór í öll þau tæki sem Ís- lendingar þekkja svo vel, flugvélina, rússibanann og rólurnar en tívolíið er annar elsti skemmtigarður heims. Eftir að Rihanna hafði klárað sína tónleika á Hróarskeldu hélt hún til Póllands í áframhaldandi tónleika- hald. Rihanna heldur svo aftur til Norðurlandanna í lok júlí og kemur fram í Bergen, Osló og Helsinki. Rihanna og fylgdarlið skemmtu sér vel í tívolíinu eins og sjá má. AFP TÍVOLÍINU LOKAÐ FYRIR RIHÖNNU OG FÉLAGA Nautahlaupið í Pamplona á Spáni og gríðarleg hátíðarhöld því tengd er hafið en hátíðarhöldin standa yf- ir í níu daga. Mikill gleðskapur fylgir hlaupinu ár hvert en mesta spennan er að vita hvort að þátttakendum takist að hlaupa undan nautunum sem rekin eru eftir götunum af æstum mannfjöldanum. Hlaupið fer þannig fram að nautum er sleppt út á göt- ur borgarinnar Pamplona og elta þau hóp fólks inn á leikvang þar sem oft kemur til blóðugrar við- ureignar. AFP HLAUPIÐ UNDAN NAUTUM Í PAMPLONA Hlaupið vekur jafnan mikla athygli – jákvæða og neikvæða.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.