Morgunblaðið - 24.08.2013, Side 8

Morgunblaðið - 24.08.2013, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013 Athygli vekur hve fyrrverandiráðamenn, þessir sem kjósendur höfnuðu með eftirminnilegum hætti, eru uppteknir af verklagi nýs stjórnar- meirihluta í tengslum við umsókn Íslands um aðild að Evrópu- sambandinu.    Össur Skarphéð-insson, fyrrver- andi utanríkis- ráðherra, segir að það sé „sjúsk og subbuskapur“ að ætla að slíta viðræðunum við ESB með þeim hætti sem ríkis- stjórnin sé að gera.    Árni Þór Sigurðsson, vopnabróðirhans í ESB-málum og fyrrver- andi formaður utanríkismálanefndar, mótmælir því ekki að lagalega sé rétt að málum staðið nú, en finnst það að- finnsluvert pólitískt.    Fyrri ríkisstjórn stóð þannig aðumsókn um aðild að Evrópu- sambandinu að óhætt er að segja að þetta tal um subbuskap eða önnur gagnrýni á aðferðir kemur úr hörð- ustu átt.    Össur, Árni Þór og félagar keyrðuumsókn um aðild í gegnum þingið með slíkum blekkingum og þvingunum að svona orðbragð dugar ekki til að lýsa vinnubrögðunum.    Á hinn bóginn er sjálfsagt fyrir nú-verandi stjórnvöld að ljúka hratt þeim viðræðuslitum sem hafin eru.    Engum – jafnvel ekki aðildarsinn-unum í VG eða Samfylkingu – er greiði gerður með því að bíða með að ljúka málinu. Þvert á móti er nauð- synlegt að koma þessa óheillamáli út úr heiminum sem allra fyrst. Össur Skarphéðinsson Örvæntingarfullir aðildarsinnar STAKSTEINAR Árni Þór Sigurðsson Veður víða um heim 23.8., kl. 18.00 Reykjavík 14 súld Bolungarvík 14 súld Akureyri 18 skýjað Nuuk 12 skýjað Þórshöfn 12 skúrir Ósló 21 heiðskírt Kaupmannahöfn 18 heiðskírt Stokkhólmur 18 heiðskírt Helsinki 17 heiðskírt Lúxemborg 22 heiðskírt Brussel 26 heiðskírt Dublin 15 skúrir Glasgow 18 skúrir London 22 heiðskírt París 28 heiðskírt Amsterdam 25 léttskýjað Hamborg 23 heiðskírt Berlín 22 heiðskírt Vín 23 skýjað Moskva 21 þrumuveður Algarve 30 heiðskírt Madríd 35 heiðskírt Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 28 léttskýjað Róm 30 léttskýjað Aþena 28 léttskýjað Winnipeg 20 skýjað Montreal 18 léttskýjað New York 26 heiðskírt Chicago 24 heiðskírt Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:48 21:13 ÍSAFJÖRÐUR 5:43 21:28 SIGLUFJÖRÐUR 5:25 21:12 DJÚPIVOGUR 5:15 20:45 Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Innanríkisráðherra fór þess á leit í sumar að fleiri sveitarfélög tækju við hælisleitendum. Kostnaðurinn við uppihald þeirra er greiddur úr ríkis- sjóði, en Reykjanesbær hefur einn séð um að hýsa hælisleitendur meðan um- sóknir þeirra eru teknar fyrir. Jóhannes Tóm- asson, upplýsinga- fulltrúi innanríkis- ráðuneytisins, sagði sveitarfélög víðsvegar um landið hafa gefið jákvæð svör, án þess að endanleg svör hefðu fengist. „Sveitarfélögin hafa frest til 12. september til að svara bréfi ráðuneytisins með óskum þess að koma inn í þetta verkefni,“ sagði hann. Gæti verið hvar sem er „Einhver hafa þó lýst yfir að þau hafi áhuga. Hugmyndin er að hefja samstarf við kannski eitt eða tvö sveit- arfélög til viðbótar við Reykjanesbæ um að taka fast við hælisleitendum, en hafa svo eitt til tvö til vara ef svipaður fjöldi hælisleitenda kæmi hingað til lands og í ár, eða ef mikill fjöldi kæmi á stuttum tíma,“ sagði Jóhannes og bætti við að ekki stæði til að dreifa hælisleitendum um landið þvert og endilangt. Jóhannes sagði Reykjanes- bæ hafa þurft að taka við fleiri hælis- leitendum en þeir höfðu gert ráð fyrir, og bentu á að sveitarfélagið hefði ein- hvern kostnað af umstangi við að sinna verkefninu, þó svo að ríkið greiði kostnaðinn við móttöku og uppihaldið að fullu. „Það skiptir í sjálfu sér ekki máli hvar á landinu þessi sveitarfélög eru, þau gætu jafnt verið á norðaust- urhorni landsins alveg eins og suð- vestur,“ sagði Jóhannes. Reykjanes- bær vakti athygli ráðuneytisins á því í sumar að fjöldi hælisleitenda í hús- næði hjá sveitarfélaginu væri orðinn töluverður. Það stafi meðal annars af fjölda króatískra hælisleitenda sem kom hingað til lands í ársbyrjun. Sveitarfélög jákvæð í garð hælisleitenda Jóhannes Tómasson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.