Morgunblaðið - 24.08.2013, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 24.08.2013, Qupperneq 10
Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is N afn málverkasýningar Stefáns Boulter vek- ur strax forvitni hins ólærða áhorfenda, Anamnesis. Hvernig tengist það málverkum sem ein- kennast af fágun og ró? „Anamnesis er sú hugmynd hjá Plató að það sem við erum að læra sé í rauninni eitthvað sem við höfum gleymt úr fyrri lífum og þurfum að rifja upp. Þekking og minningar sem voru til staðar glatast þegar við fæðumst og lærdómurinn verður í rauninni upp- rifjun og kennarinn því hálfgerð ljósmóðir sem hjálpar okkur að muna þegar við lærum eitthvað. Ég hef í mínu lífi upplifað þetta á ein- hvern hátt og kannski í sjálfu sér í listinni líka þar sem maður sækir sér tjáningarform sem er ekki endi- lega í takt við samtímann. Það er ekki hægt annað en að velta því fyr- ir sér hvers vegna maður gerir það,“ segir Stefán. Einlægt tjáningarform Stefán sýnir ásamt finnskum vini sínum, Janne Laine, sem hann kynntist í gegnum unnustu sína, Rannveigu Helgadóttur listmálara. „Þetta er í rauninni ekki samsýn- ing, frekar tvær einkasýningar. Ég sýni málverk og Janne sýnir grafík myndir. Hann hefur líka kennt við Myndlistaskólann á Akureyri eins og ég.“ Stefán hefur sótt sitt list- nám víða, hann fór í grafíska hönn- un til Bandaríkjanna, var í formlegu listnámi í Flórens á Ítalíu og eins og mörgum er kunnugt um var hann lærlingur hjá listamanninum Odd Nerdrum. Þegar Stefán er inntur eftir því hvers vegna mál- verkið hafi orðið fyrir valinu sem listform stendur ekki á svari. „Mér hefur alltaf fundist málverkið vera það form sem er satt. Maður er al- veg berskjaldaður og svindlar sig ekkert út úr því. Málverkið getur verið mjög einlægt tjáningarform. Ég er samt auðvitað hrifinn af alls kyns liststefnum, einu kröfurnar sem ég geri eru að hlutirnir séu vel gerðir.“ Nánd í lifandi módelum Menn sem ætla má að séu ann- aðhvort umkomulausir eða í djúpum hugleiðingum eru áberandi á sýn- ingu Stefáns. Oftast notast hann við lifandi módel þó að það séu vissu- lega undantekningar á þeirri reglu. „Maður nær miklu meiri persónu- legri nánd noti maður lifandi fyr- irmyndir. Stundum blanda ég líka Túlkun er skáldleg og aldrei sönn og rétt Listmálarinn Stefán Boulter opnaði nýlega málverkasýninguna Anamnesis í Listasafn- inu á Akureyri. Stefán reynir að forðast að túlka eigin verk enda segir hann það líkast því að reyna að skilgreina hug- tökin frelsi og ást. Menn Þessi mynd er úr seríunni Contemplating Men 2012-2013. Ýmist um- komulausir eða djúpt hugsi menn eru áberandi á sýningunni Anamnesis. ...það er nefnilega þannig að með hverju nýju verki er maður að læra upp á nýtt. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013 NJÓTIÐ ÞESS AÐ FLJÚGA NÁMSKEIÐ GEGN FLUGFÆLNI – SEPTEMBER 2013 Icelandair efnir til námskeiða fyrir fólk sem vill takast á við flugfælni. Kenndar verða aðferðir til að vinna bug á kvíða og fælni og farið verður yfir þætti sem tengjast flugvélinni og fluginu sjálfu. Námskeiðinu lýkur með flugferð til eins af áfangastöðum Icelandair í Evrópu. Leiðbeinendur: Álfheiður Steinþórsdóttir, sálfræðingur og Páll Stefánsson, flugstjóri. Námskeiðin hefjast 2. og 3. september 2013. + UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING eline@icelandair.is I SÍMI: 50 50 156 Umsóknir þurfa að berast eigi síðar en 29. ágúst 2013. + www.icelandair.is Hönnunarbúðin Kraum, sem hefur aðsetur í Aðalstræti 10 í Reykjavík, mun standa fyrir útsölufatamark- aði af lager sínum í dag auk þess sem boðið verður upp á kraumandi djass yfir daginn sem og um kvöld- ið. Markaðurinn sjálfur verður í tjaldi fyrir utan verslunina og kennir þar ýmissa grasa. Meðal þess sem verður í boði er fatnaður frá ELM, Royal Extreme og Spaks- mannsspjörum. Gítarleikarinn Andrés Þór og bassaleikarinn Þor- grímur Jónsson munu síðan sjá um tónlistina og mun hún standa frá klukkan 15 til 21.30 með hléum. Dagskráin einkennist af frumsam- inni tónlist með djass-ívafi. Mark- aðurinn verður opinn á milli 13 og 18 og allir velkomnir. Vefsíðan www.kraum.is Morgunblaðið/Júlíus Markaður Hönnunarbúðin Kraum stendur fyrir fatamarkaði í dag klukkan 13. Fatamarkaður í Aðalstrætinu Efnt verður til sýningar í Gym & To- nic salnum í Kex hostel í dag. Þar munu þeir Magnús Andersen og Daníel Starrason sýna ljósmyndir sínar en þeir hafa nýlokið vel heppnaðri sýningu á Akureyri þar sem sömu verk voru til sýnis. Um er að ræða ljósmyndir af tónlistarlífi og tónlistarmönnum og hafa þeir fé- lagar hlotið mikið lof fyrir. Dagbjört Jóhannesdóttir mun síðan sýna skúlptúra og málverk auk þess sem Sigurður Sævar mun sýna myndlist sína. Magnús Andersen og Daníel Starrason meðal sýnenda Ljós-, mynd- og skúlptúrasýning í Gym & Tonic sal Kex hostels Morgunblaðið/Sigurgeir S. Sýning Viðburðurinn verður í hostelinu Kex í dag og verður ýmislegt til sýnis. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.