Morgunblaðið - 24.08.2013, Side 26
VESTURLAND
DAGA
HRINGFERÐ
BORGARNES
–– Meira fyrir lesendur
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 2. september.
Barnavagnar
Kerrur
Bækur
Leikföng
Ungbarnasund
Fatnaður
FatnaðurBarnaljósmyndir
Öryggi barna Gleraugu
Uppeldi
Námskeið
SÉRBLAÐ
Börn og uppeldi
Víða verður komið við í uppeldi barna, í tómstundum,
þroska og öllu því sem viðkemur börnum.
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað tileinkað börnum og uppeldi
föstudaginn 6. september
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Framhaldsskóladeild frá Mennta-
skóla Borgarfjarðar, sem aðsetur
hefur í Búðardal, verður opnuð á
næstu dögum. Skólinn og sveitarfé-
lagið Dalabyggð standa saman að
þessu verkefni, sem ætlað er að koma
til móts við nemendur í Dölum sem
komnir eru á framhaldskólaaldur og
hefðu að öðrum kosti þurft að sækja
nám út fyrir heimahérað sitt.
„Þetta er hluti af þeirri áherslu-
skólans að stuðla að bættu aðgengi
nemenda í heimabyggð,“ segir Kol-
finna Jóhannesdóttir skólameistari.
Kennt fram í júní
Sex ár eru síðan Menntaskóli
Borgarfjarðar var settur á laggirnar,
það er einkahlutafélag sem starfar
samkvæmt þjónustusamningi við rík-
ið. Kolfinna, sem tók við starfi skóla-
meistara fyrir tveimur árum, segir að
strax þegar starfsemi skólans hófst
hafi verið mótuð sú stefna að fara nýj-
ar í öllum starfsháttum og aðrar leiðir
en þær sem viðteknar hafa verið.
Útgangspunkturinn í starfinu er
t.d. sá að nemendur brautskráist með
stúdentspróf eftir þrjú ár og það
tekst flestum. Á móti kemur þá að
takturinn í kennslunni er annar en í
flestum öðrum framhaldsskólum.
Skólaárið er lengra og er kennt fram í
byrjun júní. Kennsludagarnir verða
því fleiri og nemendur taka að jafnaði
fleiri einingar á ári. Er miðað við að
nemendur nái 45 til 50 námseiningum
í hús yfir veturinn en í fjögurra ára
fyrirkomulaginu eru 30 til 35 einingar
á vetri þumalputtaregla.
Þá eru ekki próf í annarlok í
skólanum, heldur gildir útkoma úr
verkefnum og prófum yfir önnina og
þannig er námsárangur metinn og
einkunnir gefnar samkvæmt því.
„Þróunin er öll í þá átt að fram-
haldsskólanámið taki aðeins þrjú ár,“
segir Kolfinna. „Nemendur frá okkur
hafa náð mjög árangri og á síðasta ári
náðu þrír nemendur inntökuprófi í
læknadeild og þar af hafði einn þeirra
tekið stúdentsprófið hjá okkur á að-
eins tveimur árum. Það er frábær ár-
angur.“
Úr menntaskóla á Hvanneyri
Nemendur í Menntaskóla Borg-
arfjarðar í vetur verða um 160. Þar
eru taldir með nemendurnir í Dölum
sem koma í Borgarnes þrisvar á önn
og taka þar námslotur.
„Auðvitað munar um að krakk-
arnir geti verið sem lengst heima. Því
er skóli á framhaldsskólastigi svo
mikilvægur hér. Og eðlilega tekur
skólastarfið mið af aðstæðum í sam-
félaginu. Í Borgarfirði eru öflugir há-
skólar og starfsemi þeirra hefur
breytt miklu,“ segir Kolfinna.
Bygging Hús Menntaskóla Borgarfjarðar er í hjarta bæjarins og er í senn skóli og menningarhús byggðarlagsins.
Munar um að krakk-
ar geti verið heima
Nýjar áherslur hjá Menntaskóla Borgarfjarðar 170
nemendur Búðardalsdeild og kennt er fram á sumar
Hafnarfjall er bæjarfjall Borgnesinga. Handan Borgarfjarðar blasir fjallið við,
með bröttum skriðum og háum hömrum. Ætli fólk að ganga á fjallið er best að
beygja til hægri rétt áður en sveigt er niður að Borgarfjarðarbrú. Þar er ekið
upp á háan mel og gengið þaðan upp dalhvilft. Kennimörk þar eru Klaustur-
tunguhóll, Þverfell og Gildalshnúkur, en þangað fara flestir göngumenn. Hnúk-
urinn er 844 metra hár og þaðan sést vestur á Snæfellsnes, yfir Borgarfjörð og
Arnarvatnsheiðar og til Eiríksjökuls. Einnig suður á Faxaflóa og Reykjanes. Fyrr
á þessu ári kom út endurbætt útgáfa af bókinni Íslensk fjöll – gönguleiðir á 151
tind, eftir Ara Trausta Guðmundsson og Pétur Þorleifsson. Þar er Hafnarfjallið
rómað en sagt vanmetið meðal göngugarpa.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hafnarfjall Bæjarfjallið er auðkleift og af því er gott útsýni til margra átta.
Hafnarfjallið setur svip á sveitir
Borgarbyggð nálgast 5.000 fer-
kílómetra að flatarmáli. Í suðri eru
mörk þessa víðfeðma sveitarfélags
við Skarðsheiði, í norðri á Holta-
vörðuheiði og við Haffjarðará í vestri.
Einmitt þar, á Mýrunum, er hin fræga
Eldborg sem útvörður.
Hnappadalur heitir þar sem þessi
frægi eldgígur er. Hann er um 100 m
yfir sjávarmáli og er sporöskjulaga
með bröttum gígveggjum mynduðum
úr þunnum hraunskánum. Gígurinn
er 200 m að lengd og 50 m á dýpt.
Þarna hafa orðið tvö eldgos, hið síð-
ara á landnámsöld.
Í tímans rás hefur Eldborgarnafnið
orðið mörgum innblástur. Má þar
nefna fræga útihátíð á Kaldármelum
árið 2001 og þota í flota Icelandair
ber þetta nafn. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Gígur Eldborgin er formfögur að útliti
og hefur veitt mörgum innblástur.
Eldborgin er
útvörðurinn
Menntastoðir, undirbúningur fyrir
fólk sem ætlar í frumgreinadeildir
háskólanna eða í frekara nám í fram-
haldsskólans, er á þessu hausti ný-
mæli í starfi Símenntunarmiðstöðvar
Vesturlands (SV). „Markhópurinn er
fólk 23 ára og eldra, sem vill skapa
sér ný tækifæri,“ segir Inga Dóra
Halldórsdóttir forstöðumaður SV.
Þrjár starfsstöðvar
Í öllum landshlutum er nú komnar
símenntunarstöðvar. Vestra er SV með þrjár starfs-
stöðvar; í Borgarnesi, á Akranesi og í Ólafsvík.
Sérhæfni þarfn-
ast þekkingar
Fjölbreytt símenntun
1000 nemar Fólk skap-
ar ný tækifæri með námi
Morgunblaðið/Eggert
Verksmiðja Stóriðjustörf eru vandasöm og fyrirtækjum
er mikilvægt að fólkið læri þá list að bræða og búa til ál.
Inga Dóra
Halldórsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013