Morgunblaðið - 24.08.2013, Side 31
verður í eigu erlendra starfsmanna
fyrirtækisins.
Invent Farma hefur verið í sölu í
meira en eitt ár en aðeins fjórir mán-
uðir eru frá því að Burðarás og FSÍ
settu sig fyrst í samband við seljend-
ur í því skyni að kaupa fyrirtækið.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hafði reynst erfitt að selja
fyrirtækið erlendum fjárfestum. Ís-
lensk fjármagnshöft og skattalöggjöf
á Spáni og Íslandi voru helstu ástæð-
ur þess að slík sala hafði ekki náð
fram að ganga.
Fengu undanþágu frá höftum
Margt bendir til að það sé talsverð-
ur ávinningur af því – fyrir íslenskt
þjóðarbú sem glímir við gjaldeyris-
kreppu – að eignarhaldið fari ekki úr
höndum íslenskra fjárfesta. Með
kaupunum, sem eru fjármögnuð með
eigin fé og að stærstum hluta greitt
fyrir hlutinn í krónum, eru hinir nýju
íslensku fjárfestar að eignast arð-
samt fyrirtæki með stöðugt erlent
tekjustreymi. Á síðasta ári nam hagn-
aður Invent Farma fyrir skatta og af-
skriftir (EBITDA) um 20 milljónum
evra. Samkvæmt áreiðanleikakönn-
unum sem fjárfestahópurinn lét
framkvæmda í tengslum við kaupin
standa væntingar til þess að rekstr-
arhagnaður fyrirtækisins muni
aukast á komandi árum.
Til þess að kaupin næðu fram að
ganga þurfti fjárfestahópurinn enn-
fremur að óska eftir fordæmisgefandi
undanþágu frá lögum um gjaldeyris-
mál frá Seðlabanka Íslands. Heimild-
ir Morgunblaðsins herma að slík und-
anþága hafi verið veitt í byrjun
þessarar viku. Þykir sú ákvörðun til
marks um að Seðlabankinn hafi verið
þeirrar skoðunar að með kaupunum
væri verið að tryggja áframhaldandi
nettó gjaldeyrsinnflæði til þjóðarbús-
ins vegna starfsemi Invent Farma.
Helmingur veltunnar á Spáni
Invent Farma rekur í dag tvær
verksmiðjur nærri borginni Barce-
lona. Önnur framleiðir virk lyfjaefni
og hin tilbúin lyf á borð við hylki, töfl-
ur og stungulyf. Starfsmenn eru sam-
tals fjögur hundruð, en veltan á síð-
asta ári var um 80 milljónir evra,
jafnvirði um 14 milljarðar íslenskra
króna.
Fyrirtækið er á meðal tíu stærstu
samheitalyfjaframleiðanda á Spáni.
Stærsta einstaka markaðssvæði In-
vent Farma er Spánn, en þó kemur
um helmingur veltunnar vegna sölu
utan Spánar. Þar eru Bandaríkin,
Japan, Suður-Kórea og önnur Evr-
ópuríki mikilvægustu markaðirnir.
Fyrsta fjárfesting Burðarás
Á síðustu mánuðum hefur fram-
takssjóðurinn Burðarás unnið að fjár-
mögnun sjóðsins. Með því að ganga
frá jafn stórum kaupum og á Invent
Farma er talið líklegt að áhugi ýmissa
fjárfesta – ekki síst lífeyrissjóða – að
koma að fjármögnun sjóðsins muni í
kjölfarið aukast umtalsvert. Fram-
kvæmdastjóri Burðaráss er Þór
Hauksson, en hann var áður fjárfest-
ingastjóri Framtakssjóðs Íslands.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins hefur fyrirtækjaráðgjöf Straums
fjárfestingabanka verið ráðgjafi fyrir
fjárfestahópinn í tengslum við kaup-
in.
Framtakssjóður Þór Hauksson er framkvæmdastjóri Burðaráss. Í samtali við Morgunblaðið í júní sagði Þór að sjóð-
urinn myndi fjárfesta í meðalstórum og stórum fyrirtækjum. Kaupin á Invent Farma eru fyrsta fjárfesting sjóðsins.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
FRÉTTIR 31Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013
MYNDARLEGUR
www.landrover.is
NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4
VERÐ FRÁ 10.990.000 KR.
Land Rover Discovery 4 er einn glæsilegasti jeppi sem til er. 211 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins
8,3 l/100 km í blönduðum akstri*, ný 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýrinu og loftpúðafjöðrun
á öllum hjólum sem tengd er Terrain Response stillanlega fjöðrunarkerfinu.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
OPIÐ Í DAG FRÁ 12-16
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
8
7
5
8
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
r
vi
ðm
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri
.
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
STUTTAR FRÉTTIR
● Fjármála- og
efnahagsráðherra
hefur skipað sér-
stakt ráðgjafarráð
um efnahagsmál og
opinber fjármál.
Hlutverk ráðsins er
að veita ráðherra
ráðgjöf og aðstoð
við verkefni á sviði
efnahagsmála og
fjármála hins op-
inbera, og liðsinna
ráðherra og ráðu-
neyti hans við
stefnumörkun á
þeim sviðum.
Ráðið verður
ráðherra til að-
stoðar við grein-
ingu, mat á horfum
og stefnumörkun í
efnahagsmálum og
við mótun ríkisfjár-
málastefnu til skemmri og lengri tíma,
með áherslu á tekjuöflun og út-
gjaldaþróun.
Ráðið er skipað til eins árs.
Ráðgjafarráðið skipa dr. Ragnar Árna-
son, prófessor við Háskóla Íslands, sem
er formaður, dr. Þráinn Eggertsson, pró-
fessor við Háskóla Íslands, Orri Hauks-
son, framkvæmdastjóri Samtaka iðn-
aðarins, og Guðrún Inga Ingólfsdóttir
hagfræðingur. Með ráðinu starfar Svan-
hildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður
fjármála- og efnahagsráðherra.
Ráðið hefur heimild til að afla sér frek-
ari sérfræðiaðstoðar í samráði við ráðu-
neytið. Þá mun ráðgjafarráðið starfa ná-
ið með starfsmönnum fjármála- og
efnahagsráðuneytisins.
Stofnar efnahagsráð
Ragnar
Árnason
Þráinn
Eggertsson
Kaup á Invent Farma
» Framtakssjóður Íslands og
Burðarás hafa hvor um sig
keypt um 30% hlut í
spænska samheitalyfjafyr-
irtækinu Invent Farma.
» Seljendur eru um 20 ís-
lenskir hluthafar. Burðarás og
FSÍ greiða fyrir hlutinn –
samtals 61% – að mestu í
krónum.
» Seðlabanki Íslands veitti
fordæmisgefandi undanþágu
frá höftum vegna kaupanna.