Morgunblaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013
Myndarleg sýning í sýningarsölum
stofnunarinnar stóð til júníloka. Þar
voru gripir úr safninu í Hlíð á Núpi,
bækur og handrit frá Lands-
bókasafni – Háskólabókasafni og þó
umfram annað ljósmyndir og vegg-
spjöld sem byggjast á efni bókar-
innar. Blaðamannafundir í Treviso
og Mílanó leiddu til talsverðrar um-
fjöllunar um þetta málefni í fjöl-
miðlum.
Þess má geta að 21. júlí verður
haldin ráðstefna í Edinborgarhúsinu
á Ísafirði í tilefni af útnefningu
Skrúðs en þar verður m.a. fjallað um
arkitektinn Carlo Scarpa og verð-
launagarðinn Skrúð á Núpi.
Skrautgarður þar
sem áður var urð og grjót
Saga og tilurð Skrúðs er merkileg
fyrir margra hluta sakir. Árið 1906
hófst séra Sigtryggur Guðlaugsson,
prestur og prófastur á Núpi í Dýra-
firði, handa við gerð Skrúðs sem var
einstakt framtak á þeim tíma. Skrúð-
ur var frá upphafi nokkurs konar
skólagarður þar sem nemendur
lærðu plöntufræði og öðluðust einnig
kunnáttu í ræktun matjurta til eigin
brúks. Á ýmsa lund var starfið í
garðinum fléttað saman við námið.
Þegar Skrúður verður til eru mögu-
leikar til ræktunar alls ókannaðir á
þessum slóðum og yfirleitt á Íslandi.
Tilgangurinn var því einnig að sýna
fram á hvað hægt var að rækta þar
vestra. Þar sem áður var urð og grjót
var risinn skrautgarður innan fárra
ára og um leið hvarf vantrúin og trú-
in á ræktunarmátt íslenskrar moldar
fékk byr undir báða vængi. Sama ár
og Núpsskóli var lagður niður árið
1992 efndu nokkrir áhugamenn til
fundar á Núpi í því skyni að efla veg
Skrúðs. Stofnaður var Fram-
kvæmdasjóður Skrúðs á vegum
nokkurra samtaka og stofnana og
var hlutverk sjóðsins m.a. að fjár-
magna og vinna að endurbótum
garðsins. Munaði þar mest um fram-
lag Garðyrkjuskóla ríkisins, bæði
kennara og nemenda. Fjórum árum
síðar var stórum áfanga náð við end-
urgerð garðsins og efndi sjóðurinn til
mikillar hátíðar í Skrúði af þessu til-
efni á stofndegi garðsins. Við það
tækifæri afhenti, þáverandi mennta-
málaráðherra, Björn Bjarnason, Ísa-
fjarðarbæ garðinn til eignar og varð-
veislu. Nýr eigandi fól Fram-
kvæmdasjóði Skrúðs enn frekara
hlutverk þar sem gerður var sam-
starfssamningur í því skyni að
tryggja umhirðu og umsjón ásamt
rekstri, fjármögnun verkefna og fag-
lega ráðgjöf.
Afdrep og krossgötur
álit dómnefndar
Skrúður er jurtagarður á af-
skekktum stað á Vestfjörðum, Ís-
landi, nærri sjónum við einn
fjarðanna sem skerast þar inn í land-
ið, aðeins fáa kílómetra sunnan heim-
skautsbaugs. Jurtagarðurinn er
lagður og skipulagður með tilliti til
þess óblíða veðurfars sem þarna rík-
ir: honum þurfti að velja stað og
ákvarða stærð, stinga upp svörðinn,
hlaða grjótgarð í kring, virkja það
sem til þurfti (mold, vatn, jurtir) og
skapa skjól fyrir óblíðum náttúruöfl-
unum. Hér þurfti kjark og þraut-
seigju, sem einnig eru mikilvægustu
verkfærin til að mennta og breyta
hugarfari ungra bænda.
Garðurinn er einfaldur í formi,
hann endurspeglar á óhlutbundinn
hátt sambúð mannlífsins og mis-
kunnarlausra náttúruaflanna á Ís-
landi, ægikrafta sem móta og endur-
skapa landið í endalausri framrás
tímans. Að lítill garður skuli leynast
yst á hjara veraldar í hrjóstrugri
náttúrunni, garður sem hefur staðist
óblíð náttúruöflin í heila öld, gæti
þrátt fyrir allt virst aðkomnum
ferðamanni tákn um alúð og ræktar-
semi sem talar til hans og minnir
hann á sitt eigið heimaland og sína
eigin sögu. Skipulag Skrúðs er ein-
falt og nokkuð frjálslegt og að
mörgu leyti eins og í hefðbundnum
garði. Einfaldleiki og hógværð eru
sterkustu kostir þess.
Skrúður er í senn afdrep og
krossgötur: garðhleðslan er tákn-
ræn fyrir snertiflöt tveggja heima,
heims trausts og ræktunar og heims
sammannlegrar reynslu sem tengist
ótalmörgum mismunandi stöðum.
Einfalt form jurtagarðsins
Skrúðs birtist og hverfur í umhverfi
og menningu sem hefur þróað með
sér híbýlaform sem tengist jörðinni
og hefðbundnum byggingum úr torfi
og grjóti, byggingarstíls sem rekja
má til skorts á byggingarefnum svo
sem timburs, rekaviðar úr fjörunni,
formin eru aðlöguð stöðugum hverf-
ulleika, byggðarmyndun sem fellur
inn í náttúru í landi sem er undir-
orpið stöðugum breytingum. Í land-
inu þar sem „steinarnir tala“ er
Skrúður ný leið til þess að skapa
stað, stað sem sýnir þeim sem eftir
koma gildi menntunar, nauðsynlegt
skref í sérhverju ferli sem myndar
traust á milli mannsins og staðarins
þar sem hann lifir lífi sínu.
Skrúður er því þéttur kjarni og
um hann hverfist hagnýt og tákn-
ræn merking samræðunnar við
náttúruna.
(Úr rökstuðningi dómnefndar sem birtist í
bókinni Skrúður, Núpur. The XXIV Int-
ernational Carlo Scarpa Prize for Gardens)
» Skrúður er 24. garð-
urinn sem hlýtur
verðlaunin sem þykja
með þeim virtustu á
þessu sviði í heiminum.
Aðalsteinn er ritari framkvæmda-
sjóðs Skrúðs en Brynjólfur formaður
framkvæmdasjóðs Skrúðs.
(Ljósm. Fondazione Benetton Studi Ricerche)
Íslenskir fulltrúar, fyrirlesarar og listamenn ásamt eiginkonum og nokkrum gestgjafanna á sviði Borgarleikhússins í Treviso eftir verðlaunaafhendinguna. (Ljósm. AE)
(Ljósm BJ)
Víða í Treviso var uppi auglýsing um verðlaunaafhendinguna. Bæjarstjóri
Ísafjarðar, fulltrúi eigenda garðsins, var sýnilega ánægður með þá kynningu.
(Ljósm. BJ)
Eitt af fjölmörgum veggspöldum sýningar um Skrúð, Dýrafjörð og Ísland
sem haldin var í tilefni af verðlaunaveitingunni.
Svipmynd innan eins
verka Carlos Scarpa,
grafreitur í San Vito
di altivole
Sigurður Njálsson - Guðm. Sigurjónss. 214
Ágúst Vilhelmsson - Kári Jónsson 201
Pétur Antonsson - Friðrik Hermannss. 190
Spilað er alla mánudaga og fimmtu-
daga og hefst spilamennska kl. 13. Allt
spilaáhugafólk velkomið. Stjórnandi
er Ólafur Lárusson.
Brids í Stangarhyl
Mánudaginn 19. ágúst var spilaður
tvímenningur hjá Bridsdeild Félags
eldri borgara, Stangarhyl 4, Reykja-
vík. Keppt var á 11 borðum. Meðal-
skor var 216 stig.
Efstir í N/S:
Magnús Oddsson - Oliver Kristóferss. 287
Siguróli Jóhannss. - Auðunn Helgason 235
Björn Svavarss. - Jóhannes Guðmannss. 234
A/V
Bjarni Guðnas. - Guðm. K. Steinbach 263
Guðm. Sigursteinss. - Unnar A. Guðmss. 252
Albert Þorsteinss. - Bragi Björnsson 245
Fimmtudaginn 22. ágúst var spil-
aður tvímenningur. Keppt var á 11
borðum. Meðalskor var 216 stig.
Efstir í N/S:
Björn E. Péturss. - Höskuldur Jónss. 266
Ragnar Björnsson - Jón Lárusson 247
Ingibj. Stefánsd. - Margrét Margeirsd. 246
AV
Bjarni Guðnas. - Guðm. K Steinbach 296
Bergur Ingimundars. - Axel Lárusson 254
Magnús Jónsson - Gunnar Jónsson 243
ÞAR SEM BARN ER
Hamraborg 9 | sími 564 1451 | www.modurast.is | opið 10-18 virka daga og 12-16 laugardaga
Mikið úrval af kerrum og barnabílstólum