Morgunblaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 41
MINNINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013
✝ Kristín GuðrúnÓlafsdóttir
fæddist á Skarði í
Haukadalshreppi,
Dalasýslu, 16. ágúst
1927. Hún andaðist
á Dvalarheimilinu
Silfurtúni í Búðar-
dal, Dalabyggð, 19.
ágúst 2013.
Foreldrar Krist-
ínar voru Ólafur
Jónsson, f. 3. júlí
1885, d. 9. maí 1946, bóndi á
Hömrum og Skarði og kona hans
Sigurfljóð Jónasdóttir, f. 24. nóv-
ember 1886, d. 23. febrúar 1971,
húsfreyja. Systir Kristínar var
Þuríður Sigurfljóð, f. 9. sept-
ember 1918, d. 12. nóvember
2009, gift Jóni Jóhannessyni, f. 6.
mars 1918, d. 6. maí 2010.
sem lést árið 2008, börn þeirra
eru: a) Kristín Guðrún, hún á
eina dóttur og b) Viðar Þór,
hann á þrjú börn. 3) Jónas, f. 6.
mars 1959, kvæntur Áslaugu
Finnsdóttur, dóttir þeirra er
Ingibjörg, hún á einn son. 4) Sig-
rún, f. 26. maí 1964, gift Birni
Hlíðkvist Skúlasyni, synir þeirra
eru: a) Skúli, hann á þrjú börn og
b) Guðjón. 5) Kristinn, f. 26. mars
1966.
Kristín ólst upp á Skarði og
síðar Leikskálum hjá foreldrum
sínum. Hún fluttist til Reykjavík-
ur með Guðjóni unnusta sínum
árið 1944 og bjuggu þau þar til
ársins 1948 er þau fluttu vestur
að Hömrum og tóku við búi þar.
Á Hömrum bjuggu þau Guðjón
til ársins 1993. Eftir það dvöldu
þau á Hömrum, í Reykjavík og
síðast á Dvalarheimilinu Silfur-
túni í Búðardal.
Útför Kristínar fer fram frá
Stóra-Vatnshornskirkju í
Haukadal, Dalabyggð, í dag, 24.
ágúst 2013, og hefst athöfnin kl.
14.
Hinn 29. maí
1950 gekk Kristín
að eiga Guðjón
Benediktsson, f. 3.
júní 1921 á Hömr-
um í Haukadal, d.
30. apríl 2013 á
Dvalarheimilinu
Silfurtúni í Búðar-
dal. Foreldrar hans
voru Benedikt Jón-
asson, f. 18. febrúar
1888, d. 14. sept-
ember 1948 og kona hans Guð-
rún Guðjónsdóttir, f. 28. janúar
1894, d. 4. október 1976.
Börn Kristínar og Guðjóns
eru: 1) Guðrún Benedikta, f. 29.
nóvember 1949, gift Gunnari
Hinrikssyni. 2) Ólafur Sigurvin,
f. 16. september 1952, var
kvæntur Nönnu Hjaltadóttur
Elsku besta amma mín, nú er
runninn upp sá dagur að þú ert
ekki lengur hér með okkur og
mikið finnst mér það nú und-
arleg tilfinning að geta ekki
lengur kíkt við hjá þér í smá
spjall. Hins vegar þá hugga ég
mig við það að þú ert nú aftur
komin til afa sem þú saknaðir
svo mikið, ekki varð nú langt á
milli ykkar hjónanna því afi
minn elskulegur kvaddi okkur í
sumarbyrjun enda voruð þið
alla tíð einstaklega samrýmd.
Ótal minningar flæða um huga
minn á þessari stundu því
margs er að minnast frá sam-
verustundum okkar þar sem ég
varð þeirrar gæfu aðnjótandi að
alast upp í nágrenni við ykkur
og var alla tíð mikill samgangur
og samvinna á milli pabba og
ykkar. Ótalmargar góðar stund-
ir í eldhúsinu á Hömrum eru
mér ofarlega í huga, þar var
alltaf svo hlýtt og notalegt að
vera. Gamla sólóeldavélin spil-
aði þar nú stórt hlutverk og
man ég vel eftir því þegar við
fengum að gista að þá fórst þú
alltaf á undan okkur niður til að
kveikja upp í eldavélinni svo að
það yrði nú ekki kalt í eldhús-
inu þegar við myndum koma á
fætur. Þú varst aldrei iðjulaus,
ef það var ekki verið að stúss-
ast í heimilis- eða bústörfum þá
voru það prjónarnir sem gengu
ótt og títt, nú eða einhver önnur
handavinna. Síðar þegar ég var
orðin fullorðin og búin að eign-
ast Sædísi Birnu dóttur mína
þá átti ég alltaf öruggan hauk í
horni þar sem þið voruð ef ég
þurfti á að halda og á hún
margar góðar minningar um ár-
in ykkar í Furugerðinu þar sem
hún fékk að skottast um á með-
an ég var í skólanum. Hér læt
ég staðar numið og kveð þig,
elsku amma mín, með þessu
ljóði sem mér finnst lýsa þér og
okkar samskiptum svo vel.
Hér að hinstu leiðarlokum
ljúf og fögur minning skín.
Elskulega amma góða,
um hin mörgu gæði þín.
Allt frá fyrstu æskudögum
áttum skjól í faðmi þér.
Hjörtun ungu ástúð vafðir,
okkur gjöf sú dýrmæt er.
Hvar sem okkar leiðir liggja
lýsa göfug áhrif þín.
Eins og geisli á okkar brautum,
amma góð, þótt hverfir sýn.
Athvarf hlýtt við áttum hjá þér,
ástrík skildir bros og tár.
Í samleik björt, sem sólskinsdagur
samfylgd þín um horfin ár.
Fyrir allt sem okkur varstu
ástarþakkir færum þér.
Gæði og tryggð er gafstu,
í verki góðri konu vitni ber.
Aðalsmerkið: elska og fórna
yfir þínum sporum skín.
Hlý og björt í hugum okkar
hjartkær lifir minning þín.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Takk fyrir allar stundirnar
okkar saman og alla þá ómet-
anlegu hjálp sem þú og afi
veittuð mér í gegnum tíðina.
Hvíldu í friði, elsku hjartans
amma mín.
Þín sonardóttir,
Kristín Guðrún.
Elsku amma mín. Það er erf-
itt að kveðja en góðar minn-
ingar sitja eftir og ylja manni
um hjartarætur. Það voru for-
réttindi að fá að alast upp í
sveitinni með þér og afa. Þegar
þið fluttuð til Reykjavíkur
hlakkaði ég alltaf til þess að þið
kæmuð til okkar í heimsókn og
oft fékk ég að koma með ykkur
til Reykjavíkur.
Þú hugsaðir svo vel um alla
og vildir öllum vel. Sagógrjóna-
grauturinn með rúsínum úti í,
kakósúpan, kleinurnar og
mömmukökurnar þínar voru
það besta sem ég veit um.
Þú varst alltaf svo dugleg og
varst alltaf með handavinnuna
þína uppi við. Þú kenndir mér
svo margt varðandi prjónaskap,
ég hefði viljað læra meira um
handavinnu hjá þér, sá tími
kemur þegar við hittumst aftur.
Það sem ég mun aldrei gleyma
er þegar þú sast með mér,
Kristínu og mömmu heima á
Hömrum í júní og kenndir mér
uppfitjunina sem þú gerðir allt-
af. Þessi kennsla er mér mjög
kær og mun ég ávallt hugsa til
þín þegar ég fitja upp á prjón-
ana.
Elsku amma, takk fyrir allar
stundirnar sem við áttum og
allt kaffið úr kaffibollunum sem
við drukkum saman, þótt þú
hafir neitað því í seinni tíð að
þú hafir kennt mér að drekka
kaffi og alltaf hlógum við jafn-
mikið að því. En þegar við sát-
um saman í eldhúsinu heima á
Hömrum gafstu litlu stelpunni
þinni stundum síðustu dropana
úr bollanum þínum.
Takk fyrir allar samveru-
stundirnar á Hömrum, í Hraun-
bænum, Galtalindinni, Furu-
gerðinu og á Silfurtúni. Þær
eru mér dýrmætar og göngu-
túrarnir okkar í Nóatún í
Hraunbænum og á vídeóleiguna
í Grímsbæ voru yndislegir.
Takk fyrir allt elsku amma mín.
Ég elska þig elsku amma.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Þín
Ingibjörg.
Elsku fallega langamma mín,
mig langar að fá að skrifa hér
nokkur orð til þín. Það var svo
gaman að fá að koma til þín og
langafa í heimsókn því þá fékk
maður sko dekur. Okkur samdi
alltaf vel og man ég ekki nokk-
urn tímann eftir því hafa séð
þig reiða. Ég hef einu sinni síð-
an ég man eftir mér farið í smá-
fýlu út í þig, en þá mátti ég
ekki gera eitthvað og hljóp inn í
geymslu og settist upp á frysti-
kistu. Það tók stutta stund og
var ég fljótt komin í fangið þitt
á ný. Ég fékk að eyða miklum
tíma með ykkur langafa í Furu-
gerðinu sem mér þykir óend-
anlega vænt um í dag. Þegar
maður kom til ykkar var svo
gott að leggja sig í smástund í
sófanum, það var svo mikil
værð og friður í návist ykkar og
alltaf jafnindælt að koma í
heimsókn. Mér finnst svo gott
að hafa komið til þín á afmæl-
isdaginn þinn og fengið að
knúsa þig og kyssa. Þú leist svo
vel út, alltaf jafn falleg og fín,
ég bjóst ekki við því að þú
myndir kveðja okkur aðeins ör-
fáum dögum síðar. Ég er farin
að sakna þín alveg ofboðslega
mikið þó ekki sé langt um liðið
en veit að núna ertu komin til
elsku langafa sem þú saknaðir
meira og meira með hverjum
deginum og ykkur líður báðum
vel núna. Þú knúsar og kyssir
hann frá mér. Hérna kemur fal-
legt ljóð sem mér finnst eiga
svo vel við ykkur tvö.
Undir háu hamrabelti
höfði drúpir lítil rós.
Þráir lífsins vængja víddir
vorsins yl og sólarljós.
Ég held ég skynji hug þinn allan
hjartasláttinn rósin mín.
Er kristallstærir daggardropar
drúpa milt á blöðin þín.
Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað,
krjúpa niður kyssa blómið
hversu dýrðlegt fannst mér það.
Finna hjá þér ást og unað
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei, það er minning þín.
(Guðmundur G. Halldórsson)
Hvíldu í friði elsku
langamma mín með þökk fyrir
allt.
Þín
Sædís Birna.
Látin er frænka mín Kristín
Guðrún Ólafsdóttir, rétt rúm-
lega 86 ára gömul. Andlát henn-
ar bar nokkuð brátt að en að-
eins eru liðnir þrír og hálfur
mánuður frá því eiginmaður
hennar, Guðjón Benediktsson,
föðurbróðir minn, lést. Stína,
eins og hún var alltaf kölluð,
var fædd að Skarði í Haukadal í
Dölum vestur, dóttir hjónanna
Ólafs Jónssonar og Sigurfljóðar
Jónasdóttur. Skarð er fremsti
bær í Haukadal, mjög afskekkt-
ur og þar sér ekki til sjávar.
Þar ólst Stína upp ásamt systur
sinni, Þuríði, sem var níu árum
eldri.
Stína var ung að árum þegar
þau Guðjón Benediktsson rugl-
uðu saman reytum sínum en
þau voru systkinabörn. Þau
hófu búskap í Reykjavík en við
sviplegt fráfall Benedikts, föður
Guðjóns, fluttust þau vestur að
Hömrum og tóku við búi þar
1950. Þegar þetta gerðist voru
fimm yngstu systkini Guðjóns
um eða innan við fermingu svo
það liggur í hlutarins eðli að
það hefur ekki verið auðvelt
fyrir unga konu að gerast hús-
freyja á svo fjölmennu heimili
við hlið tengdamóður sinnar.
Allt gekk það þó vel og komu
þá vel í ljós mannkostir beggja
en aldrei var orðinu hærra í
samskiptum þeirra. Mikil gest-
anauð var oft á Hömrum á bú-
skaparárum þeirra Stínu og
Guðjóns en systkini Guðjóns og
fjölskyldur þeirra dvöldu þar
oft langdvölum að sumarlagi og
ég minnist þess að stundum var
sofið þar í öllum herbergjum,
jafnvel í eldhúsinu. Það gefur
auga leið að mikið hvíldi á hús-
móðurinni við slíkar aðstæður
en aldrei heyrði ég hana kvarta
yfir hlutskipti sínu. Hún gekk
til allra starfa, jafnt innan húss
sem utan, af dugnaði og krafti.
Sjálfur naut ég gestrisni þeirra
hjóna þegar ég var kennari um
sjö ára skeið á Laugum í Sæ-
lingsdal en ég dvaldi þar oft um
helgar og í öðrum fríum frá
skólanum. Verður vinátta
þeirra og góðvild í minn garð
seint fullþökkuð.
Stína og Guðjón eignuðust
fimm börn sem öll lifa foreldra
sína. Stína var börnum sínum
góð móðir og bar hag þeirra
fyrir brjósti, svo og barnabarna
sinna.
Að leiðarlokum þakka ég
frænku minni góða og ánægju-
lega samfylgd og bið henni guðs
blessunar. Innilegar samúðar-
kveðjur sendum við Gulla og
foreldrar mínir til afkomenda
þeirra Stínu og Guðjóns.
Ólafur H. Jónsson.
Kristín Guðrún
Ólafsdóttir
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
www.kvedja.is
571 8222
82o 3939 svafar
82o 3938 hermann
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN VALUR SAMÚELSSON,
Furugrund 2,
Kópavogi,
varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnudaginn
18. ágúst.
Útför hans fer fram frá Digraneskirkju
mánudaginn 26. ágúst kl. 13.00.
Lovísa Gunnarsdóttir,
Samúel K. Valsson, Bryndís Guðmundsdóttir,
Gunnar K. Valsson, Ragna Rós Bjarkadóttir,
Stefán Ingi Valsson, Valdís Valdimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Hetjumúsin okkar,
RAKEL SUNNA BIRGISDÓTTIR,
lést í Rjóðrinu, Kópavogi, mánudaginn
19. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju
þriðjudaginn 27. ágúst kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Barnaspítala Hringsins og Rjóðrið.
Birgir Ívar Pétursson, Emelía Ósk Sveinsdóttir
Inga Birna Jónsdóttir, Jón Örn Sævarsson,
Hjörtur Jónsson
og systkinin, Elísabet Erla, Belinda Amý,
Birgitta Ísól, Freyja Margrét, Kristófer Máni.
✝
ÁSVALDUR BJARNASON
frá Hvammstanga
andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund aðfaranótt þriðjudagsins 20. ágúst.
Minningarathöfn verður í Neskirkju fimmtu-
daginn 29. ágúst kl. 13.00.
Útför verður frá Hvammstangakirkju
föstudaginn 30. ágúst kl. 15.00.
Gunnar Richardsson,
Þór Magnússon.
✝
Móðir okkar og tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Stangarholti 32,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 7. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunardeild 4-B á
Hrafnistu sem og annars starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði.
Elín Jónsdóttir Andersen, Kurt Andersen,
Jón Birgir Jónsson, Íris Bryndís Guðnadóttir,
Sigríður Jónsdóttir,
Þorsteinn Jónsson, Erla Sólveig Óskarsdóttir,
Bragi Jónsson, Katrín Guðbjörg Torfadóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn og fjölskyldur.
✝
ANNE BAK
dýralæknir,
f. 29. ágúst 1966, d. 18. ágúst 2013.
Anne verður jarðsett á Íslandi, dagsetning
auglýst seinna.
Magnús,
Freydís, Jakob og Íris,
Maggie og Peter,
Karen, Thomas og Ellen,
Christen.
✝
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
RUT MAGNÚSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju
miðvikudaginn 28. ágúst kl.13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á
líknarfélög.
Níls Ólafsson,
Lísbet Nílsdóttir, Ragnar Gíslason,
Ólafur Nílsson,
Linda Rut Ragnarsdóttir, Eyþór Björnsson,
Gísli Einar Ragnarsson,
Jóna Þórunn Ragnarsdóttir
og langömmubörn.