Morgunblaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 46
46 MINNINGAR Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013 ÁRBÆJARKIRKJA | Helgistund kl. 11. Sr. Sigrún Óskarsdóttir prédikar. Organisti Kristina Kalló Szklenár, fé- lagar úr kirkjukórnum leiða söng. Kaffi og ávaxtasafi. ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Sig- urður Jónsson sóknarprestur prédik- ar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragn- arsson. Molasopi á eftir. ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Helga Þórdís Guðmunds- dóttir tónlistarstjóri leiðir safnaðar- söng. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Þetta er kveðjuguðsþjónusta Helgu. Kaffi á eftir. BESSASTAÐAKIRKJA | Sameig- inleg messa safnaða Garðapresta- kalls kl. 11. Sr. Friðrik J. Hjartar pré- dikar og þjónar fyrir altari, organisti er Bjartur Logi Guðnason. BREIÐHOLTSKIRKJA | Lesmessa kl. 11. Sr. Gísli Jónasson prédikar og þjónar fyrir altari. Molasopi. Brimilsvallakirkja | Uppskeruguðs- þjónusta kl. 14. Skráning fermingar- barna á eftir og kynning fyrir þau og forráðamenn. Grillað eftir guðsþjón- ustu og ýmsar uppákomur. BÚSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr kór Bústaðakirkju leiða sönginn undir stjórn Jónasar Þóris. Messuþjónar aðstoða og prestur er sr. Pálmi Matthíasson. Molasopi og hressing. Fermingarbörn og foreldrar þeirra eru boðuð til messunnar og er fundur með þeim á eftir. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Sveinn Valgeirsson prédikar og þjón- ar fyrir altari. Dómkórinn syngur, org- anisti er Kári Þormar. FELLA- og Hólakirkja | Útvarps- guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Guð- mundur Karl Ágústsson, Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni prédikar. Jón Jó- hannsson djákni og Guðrún K. Þórs- dóttir djákni þjóna fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Guð- nýjar Einarsdóttur organista. Eyrún Ósk Ingólfsdóttir syngur einsöng. Marta Andrésd. leikur á flautu. Ingi Bjarni Skúlason djasspíanóleikari leikur frumsamið verk á píanó „Hug minn allan“. Hjalti Rögnvaldsson leik- ari les bæn móður Teresu. Kirkju- vörður Jóhanna Björnsd. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Guðs- þjónusta kl. 17. Fermingarbörn og foreldrar taka þátt. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar. Organisti er Skarp- héðinn Þór Hjartarson og bassaleik- ari Guðmundur Pálsson. Prestar eru Sigríður Kristín Helgadóttir og Einar Eyjólfsson. FRÍKIRKJAN Kefas | Samkoma kl. 16.30. Vitnisburðir, tónlist og söng- ur, aðstaða fyrir börn. Kaffi. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðs- þjónusta kl. 14. Sr. Hjörtur Magni Jó- hannsson predikar og þjónar fyrir alt- ari. Sönghópur Fríkirkjunnar leiðir tónlistina undir stjórn Gunnars Gunn- arssonar, organista. GARÐAKIRKJA | Sameiginleg messa safnaða Garðaprestakalls kl. 11 í Bessastaðakirkju. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og þjónar fyrir altari, organisti Bjartur Logi Guðnason. GRAFARVOGSKIRKJA | Kærleiks- messa kl. 11. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Kór kirkj- unnar syngur, organisti Hákon Leifs- son. Messuþjónum safnaðarins er sérstaklega boðið og að taka þátt í samveru á eftir. Fermingarbörn sem söfnuðu mörgum stimplum á síðasta vetri fá viðurkenningu. GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10, bænastund kl. 10.15. Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot til Hjálparstarfs kirkjunnar. Messuhópur þjónar. Kór Grensáskirkju leiðir söng, organisti er Árni Arinbjarnarson. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Mola- sopi. Fundur með foreldrum ferming- arbarna á eftir. GRUND dvalar- og hjúkr- unarheimili | Guðsþjónustan kl. 14 í hátíðasal í umsjá Félags fyrrum þjón- andi presta. Sr. Sigurður Pálsson þjónar. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage org- anista. GUÐRÍÐARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sigurjón Árni Eyjólfsson prest- ur, organisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Meðhjálpari er Aðalsteinn D. Októsson, kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi á eftir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgi- stund kl. 11. Félagar úr Barbörukórn- um syngja, organisti er Guðmundur Sigurðsson. Prestur er sr. Bragi Ingi- bergsson sóknarprestur Víðistaða- kirkju. Kaffi á eftir. HALLGRÍMSKIRKJA | Hátíðar- messa kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hró- bjartsson prédikar og þjónar fyrir alt- ari ásamt sr. Maríu Ágústsdóttur. Hópur messuþjóna aðstoðar. Mót- ettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Gestaorg- anisti er Mattias Wager dómorganisti í Storkyrkan í Stokkhólmi. Sögustund fyrir börnin í umsjá Ingu Harðardóttur. Ensk messa kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr Kammerkór Háteigskirkju syngja, organisti er Kári Allansson. Prestur sr. Helga Soffía Konráðs- dóttir. Vænst er þátttöku ferming- arbarna vorsins 2014 og foreldra þeirra og skráð er í ferming- arfræðsluna. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11. Prestur sr. Sigfús Krist- jánsson, organisti Jón Ólafur Sig- urðss. Félagar úr kór kirkjunnar leiða söng og safnaðarsvör. Sjá hjalla- kirkja.is HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Samkoma kl. 11. Helgi Guðnason prédikar. Lofgjörð og fyrirbæn. Kaffi á eftir. Samkoma á ensku hjá Alþjóða- kirkjunni kl. 14. English speaking service. Samkoma kl. 18. Lofgjörð og prédikun. KAÞÓLSKA Kirkjan: Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er sunnu- dagsmessa. Maríukirkja við Raufarsel Rvk. | Messa kl. 11. Virka daga messa kl. 18.30, lau. á ensku kl. 18.30. Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30 og þri. - fi. kl. 17.30. Lau. kl. 18.30 á ensku. Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30, kl. 8 virka daga. Kapellan Stykkishólmi | Messa kl. 10, lau. kl. 18.30 og má.- fö. kl. 9 (nema 1. fö. í mán. kl. 7:30) Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14. og lau. kl. 18 á pólsku. Njarðvíkurkirkja | Messa á pólsku kl. 9 á sunnud. Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og fö. lau. kl. 18. Má. - fi. í kap- ellu Álfabyggð 4 kl. 17.45. Þorlákskapella, Reyðarfirði | Messa kl. 11. Virka daga er messa kl. 9. Fö. kl. 18 fyrir börn. Lau. kl. 18 á pólsku. Kapellan Egilsstöðum | Messa kl. 17. Má kl. 17, þri. kl. 7:30, mi. kl. 18 (fyrir börn). 1. lau. í mánuði er messa á pólsku kl. 17. Kapellan Höfn | Messa kl. 12, 2. og 4. sunnud. í mánuði. Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16. Þorlákshöfn | Messa á pólsku 1. sunnud. í mánuði kl. 17 . Akraneskirkja | Messa á pólsku 2. sunnud. í mánuði kl. 18. Hvolsvöllur | Messa á pólsku 3. sunnud. í mánuði kl. 17. Selfoss | Messa á pólsku 4. sun- nud. í mánuði kl. 17. KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Arnór Vilbergsson við hljóðfærið ásamt hópi úr kór Kefla- víkurkirkju. Prestur er sr. Sigfús B. Ingvason. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátáová kantors. LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Ferming og skírn. Barna- og Ung- lingakór Selfosskirkju, Kór Öldutúns- skóla, Stúlknakór Reykjavíkur, Barna- kór Kársnesskóla, Kórskóli Lang- holtskirkju, Graduale Futuri, Gradualekór Langholtskirkju og Drengjakór Reykjavíkur syngja, en þeir taka allir þátt í að gera fjórðu bókina um tónlistarmúsina Maxímús Músíkús. Messuþjónar og kirkjuvörð- ur aðstoða við messuna. Kaffi á eftir. LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Bjarni Karlsson þjónar, Að- alheiður Þorsteinsdóttir leikur og fé- lagar úr kór Laugarneskirkju syngja. Snædísi Björt Agnarsdóttur og Stellu Rún Steinþórsdóttur þökkuð störf við sunnudagaskólann og Hjalti Jón Sverrisson, nýráðinn umsjónarmaður æskulýðsstarfsins, boðinn velkom- inn. Kaffi. Kynningarfundur kl. 20 með foreldrum og fermingarbörnum ársins. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson og Hjalti Jón Sverrisson taka á móti þeim. LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Skírnir Garðarsson þjónar fyrir altari og predikar. Söng- hópur úr kirkjukór Lágafellssóknar syngur, organisti Arnhildur Valgarðs- dóttir, kirkjuvörður er Arndís B. Linn. LINDAKIRKJA Kópavogi | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Guðþjónusta kl. 20. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Guðni Már Harðarson predikar. LÖGMANNSHLÍÐARKIRKJA | Guð- þjónusta kl. 20.30. Prestur Sr. Gunn- laugur Garðarsson. Kór Lögmanns- hlíðarsóknar leiðir söng. NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sig- urður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Erni Bárði Jónssyni. Fermingarbörn sem voru á námskeiði ganga til altaris með sín- um nánustu. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri | Guðs- þjónusta kl. 20. Sóknarprestur pré- dikar og þjónar fyrir altari. Kór kirkj- unnar leiðir söng undir stjórn Stefáns Helga Kristinssonar organista. Með- hjálpari er Pétur Rúrik Guðmunds- son. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Guðsþjón- usta kl. 20. Sr. Bryndís Valbjarn- ardóttir sér um stundina. Maul á eft- ir. sjá www.ohadisofnudurinn.is SAFNKIRKJAN Árbæjarsafni | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Egill Hall- grímsson, sóknarprestur í Skálholti annast prestsþjónustuna. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17 í safnaðarheimili Grens- áskirkju. Ræðumaður er sr. Kjartan Jónsson. SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Úlfar Guðmundsson fv. prófastur. Organisti er Jörg Sonder- mann. Veitingar. Sjá selfosskirkja.is SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta í Skógarbæ kl. 16. Sr. Valgeir Ástráðs- son prédikar. Félagar úr Kór Selja- kirkju leiða söng. Organisti er Tómas Guðni Eggertsson. Guðsþjónusta í Seljakirkju kl. 20. Sr. Valgeir Ástráðs- son prédikar. Félagar úr kór Selja- kirkju leiða söng, organisti er Tómas Guðni Eggertsson. SELTJARNARNESKIRKJA | Helgi- stund kl. 11. Sóknarprestur þjónar. Kaffi. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson sókn- arprestur, annast prestsþjónustuna. TORFASTAÐAKIRKJA Bisk- upstungum | Guðsþjónusta kl. 20.30. Sr. Egill Hallgrímsson sókn- arprestur, annast prestsþjónustuna. ÚTSKÁLAKIRKJA | Messa kl. 20. Fermingarbörn vetrarins og foreldrar þeirra hvött til þátttöku. Messan er sameiginleg fyrir báðar sóknir presta- kallsins. Prestur er sr. Sigurður Grét- ar Sigurðsson. VÍDALÍNSKIRKJA | Sameiginleg sumarmessa safnaða Garðapresta- kalls kl. 11 í Bessastaðakirkju en ekki Garðakirkju. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og þjónar fyrir altari, org- anisti Bjartur Logi Guðnason. ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14. Sr. Jón Helgi Þórarinsson annast prestsþjónustuna. Orð dagsins: Miskunnsami Samverjinn. (Lúk 10) Lögmannshlíðarkirkja. Nú hefur Erna kvatt okkur í síð- asta sinn. Við hittum hana áður en við héldum í frí til Danmerkur og þá var hún ekki viss um að við sæj- umst aftur, en var þó bjartsýn og vonaði það besta. Allt fram á síð- ustu stundu yfirgaf bjartsýnin hana ekki enda átti hún ríkulegan sjóð af bjartsýni og jákvæðu hugarfari. Erna vann um áratuga skeið hjá Almennu verkfræðistofunni. Í fyrstu einkum sem ritari en seinna bókhaldari, gjaldkeri og fjármála- stjóri. Nákvæmni og einstök sam- viskusemi einkenndi öll störf henn- ar. Ekki mun ofmælt að það hafi verið nánast óþarfi að fara yfir það sem hún gerði, því það heyrði til undantekninga ef villa leyndist í því sem hún skrifaði eftir misgóðum handritum og gögnum. Iðulega leiðrétti hún villur og bætti málfar eða uppsetningu á þeim texta sem hún vann við, enda ótvírætt betri í íslensku en flestir samstarfsmenn hennar. Segja má að öllu sam- starfsfólki og öðrum sem þekktu Ernu hafi þótt vænt um hana vegna samstarfseiginleika hennar og vel- Erna Þrúður Matthíasdóttir ✝ Erna ÞrúðurMatthíasdóttir fæddist á Breiða- bólstað á Síðu í Vestur-Skaftafells- sýslu 25. desember 1945. Hún lést á heimili sínu 3. ágúst 2013. Útför Ernu fór fram frá Digra- neskirkju 12. ágúst 2013. vilja. Erna talaði mjög hljómfagra og fallega skaftfellsku, sem því miður er á hröðu undanhaldi, og varðveitti afskaplega vel ýmis sjaldgæf orð úr skaftfellsku; mörg þeirra höfðum við aldrei heyrt áður. Erna hafði mikla ánægju af gömlu dönsunum og dansaði þá frábærlega vel, en einmitt á þeim vettvangi kynntumst við henni fljótlega eftir að hún hóf störf hjá Almennu verkfræðistofunni. Um langt árabil fórum við einnig með Ernu og Júlíusi sambýlis- manni hennar á málverka- og list- munauppboð vegna sameiginlegs áhuga á list og listmunum, sem heimili hennar í Kópavogi bar fag- urt vitni. Með Ernu og Júlíusi og syni þeirra, Óla Þór, fórum við í ým- is ferðalög bæði innanlands og utan og segja má að jákvætt hugarfar hafi aldrei yfirgefið hana í þeim ferðum. Erna og Sigríður systir hennar voru mjög samrýmdar og kom það afskaplega vel fram í veikindum hennar hin síðari ár, einkum síðasta árið, sem var þeim þungbært. Óhætt er að fullyrða að þar hafi Sigríður unnið ótrúlega mikið og óeigingjarnt starf. Fjölskylda Ernu hefur misst góða móður, systur, ömmu og tengdamóður og vottum við að- standendum hennar innilega sam- úð okkar. Hulda og Freyr. Raðauglýsingar Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður haldið á henni sjálfri miðvikudaginn 28. ágúst 2013 kl. 13:00. Hólavegur 4, Siglufirði, fnr. 213-0415, þingl. eig. Ómar Geirsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Sýslumaðurinn á Siglufirði, 21. ágúst 2013, Ásdís Ármannsdóttir. Nauðungarsala Þú varst öðruvísi, það voru for- réttindi að vera vinkona þín, þegar ég kynntist þér, um sumarið 1959, stuttu eftir að þú fluttir á Hlíðarveg- inn, hvarflaði ekki að mér að okkar vinskapur myndi endast ævina. Þú passaðir vel inni í félagsskap Sellu, Rúnu og mömmu og varst mjög vel- komin í hverfið okkar. Ég man ekki eftir þér öðruvísi en í vinnu, þú varst alltaf að vinna, á morgnana reiknaðir þú út launin fyrir Olsen fyrirtækið, alla tíð á meðan það var starfrækt í þinni fjöl- skyldu, svo eftir hádegið varstu að handpilla rækju á meðan hún var unnin þannig, enda með fljótustu konum í því, á kvöldin prjónaðir þú lopapeysur og eru ekki fá munstrin sem eru til eftir þig, en þau hannaðir þú sjálf alla tíð, ég var svo heppin að læra munsturgerð af þér. Þegar handpillunin hætti byrjað- ir þú á að handprjóna húfur og hatta sem voru merkt þér og það var selt í fríhöfninni, þú varst mjög stolt af þeim enda hver með sínu sniði, þar að auki settirðu upp prjónastofu heima hjá þér og varst þar með 4 ✝ Inga Ruth Ol-sen fæddist í Reykjavík 19. júní 1931. Hún lést á öldrunardeild Sjúkrahússins á Ísafirði 6. ágúst 2013. Útför Ingu Rut- har fór fram frá Ísafjarðarkirkju 17. ágúst 2013. prjónavélar og fram- leiddir kjóla. Þannig varst þú alltaf að gera eitthvað en hafðir samt svo mikinn tíma fyrir alla í kringum þig. Þú varst ófyrirsjá- anleg og fyndin, mjög trúuð. Þú sagðir seinna að þitt líf hefði verið á Hlíðarvegin- um. Ég man eftir at- viki stuttu eftir að ég kynntist þér, ég kom við hjá þér og bað þig um að lána mér skóna þína, alveg sjálfsagt svaraðir þú og var ég komin út á stétt með yfir 30 pör af flottum ekta leður háhæla skóm, það var aldrei neitt, neitt mál. Jón hafði alltaf keypt mikið af skóm fyrir þig í sigl- ingum. Nú er þinn tími búinn, ég er sorgmædd og hugsa um liðna tíð, alltaf stóðstu með mér, það var sama í hverju ég lenti eða hvað mér datt í hug. Það var dapurlegt að fylgjast með því hvernig heyrnin hjá þér smádofnaði þegar þú varst komin yfir miðjan aldur og hafði það mikil áhrif á líf þitt. Nú, þó að þú sért far- in muntu vera ljóslifandi í huga mér á meðan ég lifi. Ég þakka þann tíma sem við áttum saman. Hvíl í friði, guð veri með þér. Þú glæðir tilveruna gleði með gefandi nærveru og færir bros á brá svo það birtir til í sálinni. Guðbjörg Ásgerður Överby. Inga Ruth Olsen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.