Morgunblaðið - 24.08.2013, Síða 56

Morgunblaðið - 24.08.2013, Síða 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013 Þ essi pistill átti uppruna- lega að vera um nýja plötu Franz Ferdinand (þeirra fjórða. Þykir hressileg. Kemur út eftir helgi. Fyrsta smáskífan, „Right Ac- tion“, er flott). Hins vegar ruddist annað mál fram fyrir, hugleiðingar um Norrænu tónlistarverðlaunin (Nordic Music Prize) sem verða af- hent í fjórða sinn á næsta ári. Jónsi okkar hreppti verðlaunin þegar þau voru fyrst veitt en þeim svipar til Mercury-verðlaunanna bresku þar sem áhersla er á listrænt innihald fremur en frægð og hve markaðs- vænar plöturnar eru. Norræn dóm- nefnd sér um að velja tólf plötur úr fimmtíu platna potti en alþjóðleg dómnefnd sker svo úr um sigurveg- arann. Ég á sæti í téðri dómnefnd, sem er skipuð einum fulltrúa frá Norður- löndunum fimm, og nú er nefndin farin að tala sig saman um markverð- ustu plöturnar á fyrri hluta þessa árs. Ég lét hugann reika um ýmislegt góðgæti sem hefur verið að detta inn í löndunum öllum og minntist m.a. plötu BYRTU sem er dúett Fær- eyinganna Guðriðar Hansdóttur og Janusar Rasmussen. En fattaði svo jafnóðum. BYRTA á ekki séns. Sama hversu stórkostleg platan nú er. Og það er reyndar sama hversu góð plata kæmi frá Færeyjum í ár, hún ætti aldrei möguleika á að keppa um Norrænu tónlistarverðlaunin, þó hún sé að sönnu norræn. Nú skal ég út- skýra fyrir ykkur af hverju. Menningarleg kúgun? Þrátt fyrir að Færeyjar ættu að vera á ábyrgð Dana er það svo, all- tént í tilfelli þessara verðlauna, að færeyskar plötur eru álitnar „fær- eyskar“ fremur en danskar. Þær detta því algerlega á milli þilja. Það er enginn illvilji eða meðvituð kúgun sem stýrir þessu, dómnefndaraðilinn danski, geðprýðismaður hinn mesti, útskýrði þetta fyrir mér, hálfpartinn afsakandi. Dómefndin hefur rætt að- gerðir hvað þetta varðar sín á milli, að undirlagi undirritaðs, en engin lending er í sjónmáli eins og er. Athugið að Grænlendingar eru að sjálfsögðu undanskildir líka. Þessa stöðu Færeyinga og Grænlendinga er vísast hægt að heimfæra á norræn verðlaun og viðurkenningar af öllu tagi og ég er ekki að setja Norrænu tónlistarverðlaunin sérstaklega nið- ur. Þau virka bara eins og sambæri- leg verðlaun gera. Tilgangur skrif- anna er hins vegar sá að beina sjónum að þessu danska/færeyska vandamáli. Auðvitað er þetta ekki í lagi og sýnir glöggt þá hentistefnu sem fylgir því úrelta hjálendufyrirkomu- lagi sem Danmörk býr við. Í Fær- eyjum búa tæplega 50.000 manns og tónlistarlífið þar er æði blómlegt en af ofangreindum sökum á umheim- urinn ekki sama færi á að kynnast því. Þetta er ekki ósvipað því að Vest- firðir væru undanskildir Íslensku tónlistarverðlaununum. Tímamóta- plötur Mugison hefðu þá verið úti á gaddi gleraðri jörð. Vegna þess að? Gjaldið sem þarf að greiða Færeysk plata hefur vegna þessa ekki komið til álita á Norrænu tón- listarverðlaunum hingað til og mik- ilvirkir listamenn eins og Eivör Páls- dóttir, ORKA eða Teitur lúra á milli þilja eins og áður segir. Ef færeysk plata næði óvænt mikilli alþjóðahylli, líkt og Sigur Rós gerði t.d. með Ágætis byrjun, yrði henni þó hik- laust kippt inn sem „danskri“, því þannig virka þessir hlutir. Sem sýnir enn betur hversu fáránlegar þessar aðstæður eru. Ástæða þessa alls er þó ljós. Á meðan Færeyingar eru ekki sjálfstæð þjóð hafa þeir ekki þá átyllu sem þarf til að koma hlutunum í sanngjarnt horf. Þetta er gjaldið sem þarf m.a. að greiða fyrir ófull- veldið. Ég lýk þessu með upphafs- setningu að frétt um BYRTU sem birtist á vefsíðunni Scandipop í sum- ar en hún stærir sig af því að flytja fréttir af nýrri og spennandi tónlist frá Norðurlöndunum. Hún segir meira en mörg orð um stöðu mála (þýtt úr ensku): „Jæja, þetta er í fyrsta skipti í fimm ára sögu síð- unnar sem þetta gerist. Við segjum núna frétt frá „hinu“ norræna svæðinu – Færeyjum.“ Hvenær mun BYRTA til? » Á meðan Fær-eyingar eru ekki sjálfstæð þjóð hafa þeir ekki þá átyllu sem þarf til að koma hlutunum í sanngjarnt horf. BYRTA „En fattaði svo jafnóðum. BYRTA á ekki séns. Sama hversu stórkostleg platan nú er.“  Ósjálfstæði Færeyja hindrar fram- gang og útbreiðslu þarlendrar dægur- tónlistar  Gleggst merki þessa má sjá í hinum árlegu Nordic Music Prize TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Það var glettilega gaman átónleikum K-tríósins í Frí-kirkjunni á lokadegidjasshátíðar. Tríóið sló rækilega í gegn er það vann, fyrst íslenskra hljómsveita, Norrænu ungliðadjasskeppnina 2008. Sam- nefnd hljómplata fylgdi í kjölfarið og 2010 kom Rekaviður út. Á þess- um plötum lék Pétur Sigurðsson á bassa og Magnús Trygvason Elía- sen á trommur. Höfuðpaurinn var píanistinn Kristján Tryggvi Mart- insson og samdi hann flesta ópusa tríósins. Þegar hann hélt til Amst- erdam í framhaldsnám lét hann ekki deigan síga heldur fékk til liðs við sig enska bassaleikarann Pat Cleaver og lettneska trommarann Andris Buikis og á dögunum kom út þriðja K-tríóplatan með átta ópus- um eftir Kristján. Meatball Evening heitir hún og hana léku þeir félagar í heild á Fríkirkjutónleikunum auk sitthvors lagsins af eldri plötunum. Sérstakur húmor, glettni og jafnvel galgopaskapur, hefur jafnan ein- kennt K-tíóið, auk frábærs samleiks tríófélaga, meistarapíanóleiks Kristjáns og óborganlegra tón- smíða. Þegar ég heyrði diskinn fyrst fannst mér hann heldur sett- legri en venjulega, en auðvitað var það vegna þess að efni hinna diskanna heyrði ég fyrst á tón- leikum og þá er upplifunin dálítið öðruvísi en við diskahlustun. Í Frí- kirkjunni var allt sem fyrrum, húm- orinn ekki síður en hárnákvæmt samspil. Pat Cleavers er frábær bassaleikari og glettinn að auki og þó maður sakni takta Magga trommara er Buikis fyrsta flokks. Tónleikarnir hófust á „Rabarb- ara-grúfu“, ekta Kristjánsópusi, sem manni fannst maður kannast vel við. Léttleikinn í laginu, mett- uðu blústilfinningu, svo sterkur að stundum tókst píanistinn á loft, hitti áheyrendur beint í hjartastað og sama var upp á teningnum í titillagi disksins, „Meatball evening“ og þar lét Cleavers ekki sitt eftir liggja í fínum bassasóló, sem undirstrikaði einhverja menúetttilfinningu sem brá fyrir í laginu. „Strokkur“ er óhemju kraftmikill ópus, enda átti hann að lýsa hinum nafntogaða gos- hver. Á milli þessara fjörlaga spilaði tríóið undurfagrar ballöður og var flutningurinn á „Upp og niður“ sér- lega áhrifamikill, en Kristján til- einkaði kennara sínum, Kris Goess- ens, flutninginn. Hann hafði frétt lát hans fyrr um daginn, en Goess- ens hélt mikið upp á þessa ballöðu. Buikis fór stórum í „Partíi“ Krist- jáns af Rekaviði, sem er af sama meiði og Meatball Evening og svo var kvatt með „Á grúfu“ af fyrstu plötunni. Fyrsta klassa tónleikar og gaman að upplifa þá að nýju á disk- inum. Morgunblaðið/Ómar Gleði K-tríó á tónleikum í Fríkirkjunni í fyrradag, þeir Kristján Tryggvi Martinsson sem lék á píanó, Pat Cleaver sem lék á bassa og Andris Buikis trommuleikari. Tónleikarnir voru haldnir á lokadegi Jazzhátíðar Reykjavíkur. Kjötbollukvöldið makalausa Frikirkjan/Dimma K-tríóbbbbm Kristján Tryggvi Martinsson píanó, Pat Cleaver bassa og Andris Buikis tromm- ur. Tónleikar 22.8.2013 og geisladiskur: Dimma 59. VERNHARÐUR LINNET TÓNLIST

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.