Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.8. 2013 Gleði og sorg. Hvor sín hliðin á sama peningnum sem okkur er út- hlutað við upphaf þessa ævintýris sem við köllum líf. „Við komumst býsna fljótt að því á lífsleiðinni að sorgin gleymir engum,“ segir séra Jóna Hrönn Bolladóttir í fróðlegri grein í Sunnudagsblaðinu í dag um birt- ingarmyndir sorgarinnar á sam- skiptavefnum Snjáldru, sem við Íslendingar höfum af rislítilli upp- gjöf fellt okkur við að kalla Fés- bók, ellegar Facebook. Í greininni lýsa þrír ein- staklingar, sem allir eiga það sam- eiginlegt að hafa misst maka sinn, reynslu sinni af samskiptum við fólk á Snjáldrunni eftir að áfallið reið yfir. Þykir þeim samskipta- vefurinn hafa mun fleiri kosti en galla í þessu sambandi, til að mynda gefa fólki sem ekki stend- ur nægilega nálægt syrgjendum til að hringja tækifæri til að koma skilaboðum á framfæri. Mögulega skilaboðum sem mikill styrkur er í fólginn. Einn viðmælenda, Þór- unn Erna Clausen, bendir á, að þessi úrvinnsluleið hafi ekki síst kosti fyrir þá sem missa ástvini skyndilega. Gleðin fær að sjálfsögðu sitt rými í blaði dagsins enda ein helsta gleðihelgi ársins í garð gengin, þegar þjóðin, að fáeinum kredduþrælum undanskildum, fagnar þeim mikla árangri sem náðst hefur í baráttu samkyn- hneigðra fyrir fullum mannrétt- indum. Gleðiganga Hinsegin daga er einn af hápunktum mannlífsins í höfuðborginni á hverju sumri og væntanlega verður hvergi slegið af að þessu sinni. Gefum viðmæl- anda blaðsins, Kiddu rokk, orðið: „Á þessum degi er ég meyr og ég labba niður Laugaveginn með tár- in í augunum. Þarna finn ég þetta djúpa þakklæti, þakklæti fyrir að vera Íslendingur og þakklæti gagnvart fólki.“ RABB Í blíðu og stríðu Orri Páll Ormarsson Hundurinn, besti vinur mannsins – a.m.k. þar til farsíminn var fundinn upp – vísar gjarnan veginn, sumar, vetur, vor og haust, í ljósi sem skugga, sól sem hríðarbyl. Hundinum finnst hugsanlega ekki síður gaman að fara á ströndina en mannskepnunni, líklega fremur þó til leiks en sólbaðs, en hefur reyndar ekki gefið neina yfirlýsingu þar um svo vitað sé. Vel má því vera að honum þyki ekki sem verst að sleikja sólina. Fari húsbóndinn til sólbaðs á suðlægari ströndum kemur að vísu babb í bátinn; vinurinn verður að bíða heima á meðan, í það minnsta kjósi húsbóndinn að njóta áfram nærveru við dýrið þegar heim kemur á ný. Sumir sýna þess vegna biðlund og nota tækifærið til að bregða sér á ströndina með hundinn sinn, þegar almættið gerir loks svo vel að varpa geislum sólarinnar yfir borgarhorn landsins bláa. Vinirnir á myndinni röltu um Langasand á Akranesi í vikunni. skapti@mbl.is AUGNABLIKIÐ Morgunblaðið/Eggert Á SÓLRÍKRI STRÖND KULDABOLI HEFUR BITIÐ Í NEF OG EYRU SUNNLENDINGA MIKINN HLUTA SUMARS. FERÐIR TIL SUÐLÆGRA LANDA HAFA RUNNIÐ ÚT SEM HEITAR LUMMUR AÐ SÖGN FÓLKS Í FERÐABRANSANUM OG ÞAÐ SKILJANLEGA. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? Stofutónleikar með Sigríði Ósk Kristjánsdóttur mezzósópran og Hrönn Þráinsdóttur á píanó. Hvar? Á Gljúfrasteini. Hvenær? Sunnudaginn 11. ágúst kl. 16:00. Nánar: Flutt verða verk eftir Haydn, Purcell og Ravel. Tónleikar á Gljúfrasteini Hvað? Í tilefni Hinseg- in Daga er Regnbo- gahátið fjölskyldunnar. Hvar? Viðey. Hvenær? Sunnudag- inn 11. ágúst kl. 14:30. Nánar: Ferjan siglir frá Skarfabakka í Sundahöfn frá 11:30-17:15. Regnbogahátíð Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli. Hvar? Dalvík. Hvenær? 8.-11. ágúst 2013. Nánar: Boðið verður upp á dýrindis fiskrétti laugardaginn 10. ágúst frá 11:00 til 17:00. Fiskidagurinn mikli Hvað? Leiðsögn um sýningu Eiríks Smith, Tilvist, í fylgd með Ólöfu K. Sig- urðardóttur sýningarstjóra. Hvar? Í Hafnarborg. Hvenær? Sunnudaginn 11. ágúst kl. 15:00. Nánar: Á sýningunni er mörg af þekkt- ustu verkum Eiríks. Eiríkur Smith Hvað? Finnski kammerkórinn Navichorus. Hvar? Langholtskirkju. Hvenær? 10. ágúst kl. 18:00 Nánar: Aðgangur ókeypis. Finnskur kammerkór * Forsíðumyndina tók Árni Sæberg

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.