Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.8. 2013
BÓK VIKUNNAR Ekki missa af Heimsins besti bær, hug-
myndaríkri skáldsögu Arto Paasilinna sem er full af kaldhæðn-
islegum húmor.
Bækur
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR
kolbrun@mbl.is
Þeir sem safna góðum bókum og vilja
hafa þær sýnilegar hljóta að horfa á útlit
og hönnun bóka. Það er einfaldlega ein-
stök prýði að fallegri hönnun, hvort sem
um er að ræða bækur eða aðra hluti. Útlit
skiptir nefnilega oft miklu máli. Látið
engan segja ykkur annað.
Allmörg ár eru síðan Mál og menning
gaf út bókaflokk sem fékk nafnið Syrtlur
en þar var komið á framfæri athygl-
isverðum erlendum bókmenntum. Bóka-
kápan var svört með fallegri mynd, á
baksíðu var kynning á verkinu og þegar
bókin var opnuð blasti við mynd af höf-
undi ásamt æviágripi. Þetta var ein-
staklega smekkleg og falleg útgáfa en svo
leið hún undir lok. En þá var maður líka
búin að safna Syrtlunum sem fengu sér-
stakan heiðurssess í antíkbókaskáp. Þar
eru þær enn og hafa félagsskap af öðrum
heimsbókmenntum sem Mál og menning
gaf á sínum tíma út
í afar fallega rauðu
bandi . Í þeim
flokki voru verk
eftir Dostojevskí,
Thomas Mann,
Jane Austen og
aðra risa á ritvell-
inum. Sú útgáfa
leið einnig undir
lok. Stundum
finnst manni óneit-
anlega að allt gott
taki enda.
Í íslenska útgáfu
vantar fallega
bókaflokka sem þeir sem safna bókum
geta raðað í hillurnar, horft stoltir á og
sagt: „Þetta á ég!“
Við skulum samt ekki örvænta. Bóka-
útgefendur eiga enn til að gleðja mann
með fallegum bókum. Í fyrra gaf Forlag-
ið til dæmis út fjórar gjafabækur þar sem
hönnunin var einkar falleg, gerð af Alex-
öndru Buhl. Þessar bækur voru Íslensk
kvæði, Íslensk orðsnilld, Ástarljóð
Davíðs Stefánssonar og Gæfuspor –
gildin í lífinu. Þetta eru einmitt bækur
sem standa saman í bókahillu og eru til
prýði. Vonandi verður framhald á þessari
útgáfu. Það er ekki nóg að byrja vel, það
verður að hafa úthald. Þarna á að verða
til bústinn bókaflokkur.
Bækur gleðja og víst er að innihald
skiptir meira máli en útlit, en það jafn-
gildir ekki því að ekki eigi að huga að út-
liti. Og fallegar bækur margar saman
vekja hughrif hjá þeim sem á þær. Maður
safnar ekki bókum nema vegna þess að
manni þykir vænt um þær og vill gjarnan
að þær líti vel út.
Orðanna hljóðan
ÚTLIT
SKIPTIR
MÁLI
Frá Forlaginu komu þessar fallegar gjafa-
bækur. Vonandi verða þær fleiri.
Utz eftir Bruce
Chatwin er ein af
Syrtlunum.
Iceland Small World, ljósmyndabók
Sigurgeirs Sigurjónssonar hefur setið
ofarlega á metsölulistum frá því hún
kom út árið 2012 og um 30 þúsund
eintök hafa selst af henni. Bókin er
í litlu og handhægu broti og eins
og titillinn ber vitni um er hún ætl-
uð útlendingum. Í henni eru ljós-
myndir af ýmsum stöðum á Ís-
landi.
Þegar Sigurgeir er spurður
hvernig hann skýri gríðarlegar vin-
sældir bókarinnar segir hann: „Ég
held að það séu margir þættir sem skýri vel-
gengnina. Aðalatriðið er að finna eitthvað
sem kveikir í fólki og þá skipta kápan og tit-
illinn miklu máli, auk vandaðrar vinnu. Það
má segja að það fari ekki minni tími í það að
búa til bækurnar en að mynda í þær. Einnig
er formáli Árna Þórarinssonar öðruvísi en
gengur og gerist í íslandsbókum.
Ljósmyndin sem er á kápunni á Ice-
land Small World er tekin á Hofsósi.
Mér fannst sú mynd skemmtileg
en hélt reyndar að ég myndi
aldrei nota hana. Þegar ég var
byrjaður að vinna í bókinni og
kominn með nafnið Iceland
Small World þá fór ég að leita
að mynd sem hæfði titlinum.
Þessi mynd kom upp í hugann
og ég sá að hún smellpassaði.“
Bjóstu við þessum miklu vinsæld-
um þegar þú varst að koma bókinni saman?
„Ég er gjarn á að sýna fólki það sem ég er
að gera og taka við athugasemdum. Mörgum
fannst þetta fáránleg hugmynd að forsíðu á
Íslandsbók. Það var eins með Lost in Ice-
land, mögum fannst óviðeigandi að hafa á
forsíðu þeirrar bókar svarta rigningarmynd
af Íslandi. En ég hef séð hvernig útlendingar
upplifa íslenskt landslag og það er ekki endi-
lega sólin sem heillar þá heldur kannski
miklu frekar rigning og rok og auðn. Þannig
að ég bjóst nú frekar við að þessi bók myndi
ná athygli útlendinga. En þessar viðtökur eru
auðvitað ótrúlegar.“
Hvað ertu að gera núna?
„Ég er að vinna bók fyrir erlendan útgef-
anda sem kemur ekkert Íslandi við. Eins og
stundum er þá get ég ekki sagt meira um
það að sinni. Svo er ég með ýmsa aðra hluti í
gangi. Þegar ég er að gera eina bók verður
oft önnur bók til út frá henni. Ég fer að tína
út úr bókinni myndir vegna þess að ég sé að
þar er efni í annað verk. Þannig að úr einni
bók koma sprotar sem vaxa seinna meir.“
Áttu þér uppáhaldsstað á Íslandi?
„Já, mér finnst svæðið i kringum Veiðivötn
vera hreint ótrúlegt.“
RIGNING OG ROK OG AUÐN HEILLA ÚTLENDINGA
Ótrúlegar viðtökur
Aðalatriðið er að finna eitthvað sem kveikir í fólki og þá skipta kápan og titillinn miklu máli, auk vandaðrar vinnu segir Sigurgeir Sigurjónsson.
Morgunblaðið/Eggert
LJÓSMYNDABÓKIN ICELAND SMALL WORLD HEFUR SELST Í UM 30 ÞÚSUND EINTÖKUM.
Þegar ég var unglingur rakst ég á litla ljóðabók, Endurtekin orð eft-
ir Guðberg Bergsson. Það varð ekki aftur snúið. Höfundurinn
Guðbergur Bergsson varð mitt skáld. Ég hef sérstakt dálæti á
„Tanga-bókunum“ svonefndu, Það sefur í djúp-
inu, Hermann og Dídí og Það rís úr djúpinu,
enda vann ég upp úr þeim leikrit fyrir Þjóðleikhúsið
á sínum tíma sem ég nefndi Sannar sögur af sálar-
lífi systra. Eitthvað það skemmtilegasta sem ég hef
gert um ævina er að fá að sökkva mér á þann hátt í
þennan sagnaheim Guðbergs. Guðbergur á sér
margar hliðar og er ekki alltaf á vísan að róa með
hann. Það má segja að bækur hans skiptist í tvo meg-
inflokka: annars vegar prakkaralegar bækur og hins
vegar einlægar og tregafullar. Í seinni flokknum má
nefna endurminningabækurnar hans sem eru einhverjar þær bestu
sem hafa komið út á síðari árum: Faðir og móðir og dulmagn
bernskunnar og Eins og steinn sem hafið fágar. Í þessum seinni
flokki er líka ein fallegasta og ljúfsárasta bók hans, Missir, sem kom
út fyrir nokkrum árum. Ein besta bók Guðbergs. Af öðrum höf-
undum í miklu uppáhaldi vil ég nefna Gyrði Elíasson, Jón Kalman
Stefánsson (sérstaklega hinn magnaði þríleikur hans) og galdrakon-
urnar Kristínu Ómarsdóttur og Vigdísi Grímsdóttur. Oddný
Eir Ævarsdóttir er nýjasta uppáhaldið mitt eftir að ég las bók
hennar Jarðnæði. Sigfús Daðason, Sigurður Pálsson og Vil-
borg Dagbjartsdóttir eru þau skáld sem ég gríp til þegar ég vil
sökkva mér í ljóðadjúpin. – Þá eru ónefndir allir erlendu rithöfund-
arnir...
Í UPPÁHALDI
VIÐAR EGGERTSSON
LEIKSTJÓRI
Viðar Eggertsson hefur sérstakt dálæti á bókum Guðbergs Bergssonar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðbergur
Bergsson.