Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.8. 2013
deila með hnyttnum tilsvörum dótturinnar
eða nýjum þroska. Í sorginni hefur fésbók
fyrst og síðast hjálpað henni að gleðjast yfir
framförum dótturinnar, þar fær hún við-
brögð vina og fjölskyldu frá degi til dags og
það er gefandi að mati Unu Bjargar. Fyrir
utan það hvað það er gefandi öllum að heyra
hvernig barnssálin tekst á við missinn og
hvernig hún hugsar um pabba sinn í dagsins
önn. Fésbókarvinirnir bregðast mjög sterkt
við þessum færslum og það hjálpar þeim líka
sem næst stóðu í þeirra sorg.
Fésbókarfærsla:
Una Björg Einarsdóttir
25. mars
Arna Eir, þessi elska, virðist vera örlítið
lausnamiðuð:
Arna Eir: Edda Guðrún (leikskólakenn-
ari), ég veit hvernig ég get talað við pabba á
himnum.
Edda Guðrún: Nú, hvernig?
Una Björg Einarsdóttir og Rúnar ÖrnHafsteinsson kynntust árið 2005.Þau fóru í reisu um Evrópu sumarið
2006 og ferðataska Unu Bjargar fór ekki
heim til hennar eftir það. Rúnar Örn bað
hennar árið 2008 og þau giftu sig 31. október
2009, viku fyrir andlát hans. Þá var Rúnar
orðinn mjög veikur en brúðhjónin áttu ótrú-
lega góðan dag á Hótel Holti með sínu nán-
asta fólki. Þau ætluðu fyrst að gifta sig 5. des-
ember en flýttu brúðkaupinu vegna
aðstæðna. Rúnar fékk beinsarkmein í hné
þegar hann var sautján ára, mein sem hægt
var að lækna. Hann fékk síðar meinvörp í
lungu sem hann barðist við meira og minna í
þrjú ár af þeim fjórum árum sem þau tvö
áttu saman. Rúnar var búinn að vera í
geislum og lyfjameðferðum á meðan Una
Björg gekk með Örnu Eir dóttur þeirra sem
fæddist 2. september 2008 og allt gekk ágæt-
lega, fannst þeim, þar til í júní 2009. Þá voru
þau í sumarbústað og Rúnar „missir fæt-
urna“. Hann stóð ekki mikið upp úr hjóla-
stólnum eftir það því æxlið var komið í mæn-
una og lungun. Hann fór í aðgerð þar sem
reynt var að fjarlægja meinin. Æxlin voru
hins vegar svo hraðvaxandi að 14. október
kemur krabbameinslæknir til þeirra og tjáir
þeim að staðan sé orðin vonlítil, það sé búið
að reyna allt. Rúnar lést 8. nóvember 2009.
Una Björg fékk margar samúðarkveðjur á
fésbókinni, en vinahópur hennar er rúmlega
sex hundruð manns. Hún þekkti alla sem
vottuðu henni samúð sína og enginn
ókunnugur ávarpaði hana eða sendi henni
skilaboð. Una Björg minnist þess þegar hún
setti brúðkaupsmyndirnar þeirra Rúnars inn
á síðuna hvað viðbrögðin voru mikil og sterk.
Hún gerði sér líka grein fyrir því að sumir
sem stóðu henni fjær notuðu fésbók af því að
þeir hreinlega treystu sér ekki til að hringja.
Una Björg setti aldrei inn færslur um líðan
sína, hún er mikil prívatmanneskja og þegar
sorgin lagðist yfir af þunga var henni eðl-
islægara að hringja í vinkonu eða fá útrás í
ræktinni.
Að segja frá í hversdeginum
Una Björg fann aukna þörf fyrir að segja frá
dóttur sinni Örnu Eir á síðunni sinni. Henni
fannst gott að deila litlu hlutunum í hvers-
deginum þeirra þegar Rúnar var farinn. Hún
fann svo til undan því að hafa hann ekki til að
Arna Eir: í gegnum Skype!
Una Björg lét loka fésbókarsíðu Rúnars
tveimur mánuðum eftir andlát hans og sér
eftir því. Það hefði verið henni og sjálfsagt
fleirum ákveðin huggun að hafa síðuna opna,
sem eins konar minningarsíðu. Hún minnist
þess hversu viðbrögðin voru sterk frá nánum
vinum og fjölskyldu þegar hún setti uppá-
haldslag Rúnars á vegginn sinn á afmæl-
isdeginum hans.
Þau bjuggu til sinn lokaða hóp
Una Björg minnist þess ekki að neinn hafi
sært hana á þessum vettvangi. Henni fannst
mikilvægt að minnast fyrsta dánardagsins en
nú orðið leggur hún áherslu á afmælisdag
Rúnars og þá fara allir út að borða. Una
Björg hefur verið í sorgarhópi í kirkjunni og
þar kynntist hún ungum ekkjum og ekklum
sem henni finnst gott að eiga samfélag við.
Þau tóku sig til og stofnuðu lokaðan fésbók-
arhóp sem gerði það að verkum að þau voru
duglegri að hafa samband á milli funda og
deila líðan og hugsunum. Þetta auðveldaði
þeim líka að skipuleggja hitting heima hjá
hvert öðru, sem þau gerðu og höfðu börnin
sín með, börnin fundu einnig til mikillar sam-
kenndar og gátu opnað sig hvert við annað,
sem foreldrarnir voru þakklát fyrir. Una
Björg er líka á ekkju- og ekklasíðunni, þó að
hún sé ekki að tjá sig mikið þar, þá finnur
hún styrk í því að lesa hugleiðingar þeirra
sem eru í sömu sporum.
Sér eftir að hafa
lokað síðunni
Una Björg og Rúnar Örn á brúðkaupsdaginn ásamt dóttur sinni, Örnu Eir.
UNA BJÖRG EINARSDÓTTIR VERKEFNASTJÓRI
*Una Björg minnistþess þegar hún settibrúðkaupsmyndirnar
þeirra Rúnars inn á síð-
una hvað viðbrögðin
voru mikil og sterk.
PI
PA
R\
TB
W
A
-S
ÍA
-1
3
1
5
7
4