Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Blaðsíða 20
*Heilsa og hreyfingMargar vinsælar getnaðarvarnir handa konum innihalda hormón »22
Nýjasta bók þeirra félaga, Davids Zinc-
zenko og ritstjóra tímaritsins Mens
Health, Peter Moore, Átta tíma megr-
unin, er vinsælasta heilsubókin um þessar
mundir. Í bókinni segir að lesendur eigi
að fasta í átta klukkutíma á dag, annað-
hvort frá 9-17 eða frá 23-07.
Höfundarnir segja að með því að láta
máltíðir passa inn í þennan ramma verði
neytandinn meira meðvitaður um hvað
hann lætur ofan í sig. Hugsunarlaust át er
ákveðin gildra fyrir marga. Í bókinni segir
að það megi borða það sem lesandinn
vill, bara að þetta sé innan marka tíma-
rammans. Samt eigi þetta að grenna. Sé
farið eftir þessum ráðum komi þetta í veg
fyrir kvöldsnarl sem yfirleitt sé eitthvað
óhollt.
Ef hungrið sækir hins vegar á er gott
að borða hnetur, jógúrt eða grænmeti. Bókin er að slá í gegn um þessar mundir.
Átta tíma megrunin
NÝ BÓK, NÝTT ÆÐI
L
ýðheilsustöð gaf út bæklinginn Ráðleggingar um heilsu
þar sem margt forvitnilegt kemur fram, allt frá
hreyfingu barna að öldruðum. Hálftíma hreyfing á
dag er ráðlagður dagskammtur af hreyfingu, hvort
sem hún er í formi göngu eða keppni. Roskið fólk má ekki
gleyma þeirri gullnu setningu: það er aldrei of seint að
byrja.
Heilbrigt roskið fólk getur að mestu leyti stuðst við ráð-
leggingarnar fyrir fullorðna og ætti að stunda miðlungserfiða
hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega. Miðlungserfið hreyf-
ing er hreyfing sem krefst þrisvar til sex sinnum meiri
orkunotkunar en hvíld. Við miðlungserfiða hreyfingu verður
hjartsláttur og öndun heldur hraðari en venjulega en hægt
er að halda uppi samræðum. Dæmi um miðlungserfiða hreyf-
ingu eru rösk ganga, garðvinna, heimilisþrif og að hjóla,
synda eða skokka rólega. Styrkþjálfun er sérstaklega gagnleg
rosknu fólki, meðal annars til að viðhalda hreyfifærni og
stuðla að auknu gönguöryggi.
Aldrei of seint að byrja
Æskilegast er að stunda hreyfingu reglulega alla ævi en það
er aldrei of seint að byrja. Umfram allt er mikilvægt að
velja hreyfingu í stað kyrrsetu í daglegu lífi t.d. með því að
fara milli staða gangandi eða á hjóli eins oft og mögulegt
er, þrífa heimilið, velja stigann í stað lyftunnar, ganga rösk-
lega, synda eða skokka rólega og sinna garðvinnu.
Þeir sem hafa lengi lifað kyrrsetulífi geta byrjað á því að
fara daglega í göngu og auka síðan álagið smám saman. Það
er til dæmis hægt að gera með því að lengja göngutímann,
ganga hraðar eða í meiri halla (t.d. í stiga eða brekku).
Rannsóknir hafa sýnt að regluleg þjálfun gagnast ekki síð-
ur eldra fólki en yngra. Með heppilegri þjálfun er til dæmis
hægt að bæta þol, vöðvastyrk, jafnvægi og liðleika fram eftir
öllum aldri.
Þannig það er ekki eftir neinu að bíða. Allir út að hreyfa
sig. Í þrjátíu mínútur – hvern einasta dag.Morgunblaðið/Styrmir Kári
MIKILVÆGI HREYFINGAR FYRIR ROSKIÐ FÓLK
30 mínútur
á dag
ROSKIÐ FÓLK ER MARGBREYTILEGUR HÓPUR, BÆÐI
AÐ ALDRI OG EKKI SÍST FÆRNI. SUMIR ÞURFA AÐ-
STOÐ VIÐ AÐ STANDA UPP ÚR STÓL EN AÐRIR
STUNDA JAFNVEL LANGHLAUP.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Ný rannsókn lækna í Newcastle og Sunderland í
Bretlandi sem birtist í Plos One blaðinu leiddi í
ljós að þeir sem eru komnir yfir 65 ára aldur
ættu að neyta minna áfengis en þeir gerðu áður.
Stíf drykkja roskins fólks er falið vandamál í
Bretlandi, segir meðal annars í rannsókninni. 53
tóku þátt í rannsókninni og voru þeir á aldrinum
65-90 ára.
Í dag er sagt að eldra fólk megi drekka 14-21
einingar af áfengi. En margir sem tóku þátt í
rannsókninni sögðust drekka mun meira. Ein
drakk rauðvínsflösku á dag, en það munu vera 63
einingar af áfengi. Karlmennirnir sögðust drekka
fimm til sex bjórkönnur á dag. Graeme Wilson,
sem stjórnaði rannsókninni, segir að líkami eldra
fólks sé lengur að vinna úr áfenginu og sé drykkj-
an því mjög skaðleg heilsu þessa fólks. „Þá kom
einnig í ljós að fólk notar áfengi til að deyfa sárs-
auka, til að slaka á, til að vera með vinum og
einnig til að vinna á einmanaleika. Morgunblaðið/Heiddi
NÝ RANNSÓKN UM ÁFENGISNEYSLU
Drykkja eldra fólks falið vandamál