Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Blaðsíða 16
Hægt er að fljúga beint til Ósló frá Íslandi og njóta norskrar gestrisni. Borgin er svolítið dýr en fjörið er líka mikið. Margir
þekkja Óperuhúsið í borginni og fara flestir eina ferð að skoða þá byggingu. Hún er þeirra Harpa.
Sé fólk lítið fyrir arkitektúr má skella sér í Frognerbadet sem er útisundlaug. Þar kostar 83 norskar krónur ofan í fyrir full-
orðna, rúmar 1700 íslenskar krónur. Stökkbretti, stökkpallur, vatnsrennibraut, barnalaug og annað skemmtilegt sem ekki er
hér á landi má finna í Frognerbadet.
Vilji fólk meira adrenalín má skella sér í stærsta klifurgarð Norðurlanda, Sumargarð Ósló. Þar er ekki bara hægt að klifra
og leika sér, þar er einnig fjallahjólabraut sem hefur sex brautir. Erfiðleikastuðullinn er frá byrjanda að atvinnumanni. Vin-
sælt er að koma með sinn eigin mat og einnota grill og grilla í garðinum. Komi fólk til Ósló yfir vetrartímann og missi af
Sumargarðinum má alltaf skella sér í Vetrargarðinn. Hann er hálftíma í burtu frá Ósló og þekktist áður sem Tryvann. 18
brekkur og 11 lyftur eru í garðinum og brekkurnar eru jafn mismunandi og þær eru margar. Allt frá barni til atvinnumanns.
Dagpassi fyrir fullorðinn kostar 310 norskrar krónur, rúmlega sex þúsund krónur. Opið er frá nóvember fram í apríl en opið
er lengur um jól og páska.
Sé enginn vilji til að skíða heldur skauta er Spikersuppa svellið í miðbænum og er frítt þar inn. 1 norsk króna eru 20 ís-
lenskar og því ekkert sérstaklega gott að versla í borginni. Hinsvegar má gera kjarakaup í Grunerlokka hverfinu þar sem
margar second hand búðir eru.
„Það sem mér fannst best við að vera í Ósló er að borgin er nánast alveg vindalaus. Það er aldrei vindur þarna. Veturnir
eru kaldir en sumrin mild og góð. Þetta er mjög skemmtileg borg,“ segir Bjarni Ólafur Eiríksson sem bjó í Ósló um nokkurra
ára skeið.
Perlurnar í Ósló
HÖFUÐBORG NOREGS, ÓSLÓ, ER SKEMMTILEG BORG ÞAR SEM MARGT ER HÆGT
AÐ GERA, SUMAR, VETUR, VOR OG HAUST.
ÓperuhúsiðVinterparkSommerpark
Íslensk hjón stofnuðu ABC-skóla í Búrkína Fasó og komu í kjölfarið á fót sjóði »18
Ferðalög og flakk
Um verslunarmannahelgina var ég staddur í borg drauma minna, New York. Ég
fór ásamt Sesselju vinkonu minni til þess að fá innblástur og sjá enn og aftur
hversu mikið borgin hefur upp á að bjóða. Það sem er skemmtilegast við New York
er að ganga um og upplifa. Ég verð alltaf jafn heillaður í West Village, bæði af götu-
menningunni og aðallega strákunum en allir þessir myndarlegu virðast safna sér
saman á þessu svæði. Við fórum út að borða eitt kvöldið á Spice Market, stað sem ég
fer alltaf á í borginni. Ótrúlega góður matur, flottur staður og stutt þaðan á einn af
mínum uppáhalds skemmtistöðum á Manhattan, Le Baine. Við vinirnir fórum á
Broadway-sýningu á laugardagskvöldinu og sáum Rock of Ages þar sem fólk stóð
margsinnis upp úr sætum sínum til að dansa og syngja með. Á sunnudeginum fór-
um við til Williamsburg en um helgar er æðislegur markaður þar sem heitir Brook-
lyn Flea og þar er hægt að finna margar gersemar. Þessi ferð var fáránlega skemmti-
leg með góðum vinum og til urðu margar nýjar og ógleymanlegar minningar.
Eyjólflur Gíslason Eyjólfur og Andrea Röfn.
Alltaf jafn heillaður
PÓSTKORT F
RÁ NEW YO
RK