Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Blaðsíða 28
*Matur og drykkir Snotur veitingastaður á Laugaveginum í frönskum stíl »30
Í
raun tók ég uppskrift frá mömmu sem var mín eftirlætis
þegar ég var lítil og aðlagaði hana þannig að rétturinn ætti
að vera orðinn svolítið hollari,“ segir Guðrún Ásdís Stur-
laugsdóttir. Upprunalega uppskriftin var mun óhollari en
er núna uppfull af kjúklingi og grænmeti. „Þetta er klassískur
ofnréttur, í sama dúr og þeir sem klárast alltaf fyrst í veislum,
en það er líka mjög gott að útbúa réttinn í stórt fat og eiga í
nokkra daga og hita upp. Hann er ekki síðri næstu daga á eft-
ir.“
Guðrún og eiginmaður hennar, Tjörvi Óskarsson, hafa haldið
úti síðu á Facebook sem kallast Heilshugar en hvorki fleiri né
færri en 16.000 manns hafa gert síðuna að eftirlæti. Hjónin
fóru að halda úti síðunni eftir að þau breyttu sjálf algerlega
um lífsstíl en á síðunni deila þau uppskriftum og heilsutengd-
um fróðleik. Auk verkefnisins í kringum Heilshugar á Guðrún
Ásdís og rekur eigið fyrirtæki og Tjörvi er kennari í Tækni-
skólanum. Eftir þær góðu undirtektir sem þau fengu við fram-
takinu á Facebook fóru þau að framleiða möndlublöndu, sem
þau kalla Millimál, sem þeim þótti vanta á markaðinn, og fæst
það víða í verslunum undir vörumerkinu Heilshugar.
„Þess má geta að við erum ekki höll undir neina öfga og það
má ekki misskilja að þótt við séum til dæmis ekki með neitt
brauð í réttinum erum við ekki á því að fólk eigi að sneiða hjá
kolvetnum. Það eru hins vegar margir sem borða brauð í öll
mál og allt of mikið af kolvetnum þannig að þessi réttur er til
dæmis kjörinn fyrir þá,“ segir Guðrún. Þau hjón segja að
framundan sé enn frekari framleiðsla á vörum Heilshugar, en
það sé enn í þróun.
Morgunblaðið/Kristinn
BREIÐA ÚT HOLLUSTUBOÐSKAPINN
Brauðréttur án brauðs
HÆGT ER AÐ ÚTBÚA HINN DÆMIGERÐA HEITA SAUMAKLÚBBSRÉTT SEM ALLTAF GENGUR FYRST
ÚT Í VEISLUM, ÁN BRAUÐS OG SETJA TIL DÆMIS KJÚKLING OG GRÆNMETI Í STAÐINN.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir og Tjörvi Óskarsson eru dugleg
að breyta uppskriftum og gera þær hollari um leið.
1 msk. ólífuolía
2-3 hvítlauksrif, smátt skorin
2 rauðlaukar, smátt skornir
2 brokkolíhausar, skornir í bita
1 dós kotasæla, hægt að nota 1 box
af léttsmurosti í staðinn
1 dós kókosmjólk
1 heill grillaður kjúklingur, rifinn
1 dós aspas
50-100 g rifinn ostur
2-3 tsk. karrí
1 tsk. íslenskt sjávarsalt
svartur pipar eftir smekk
Takið stóran pott og mýkið lauk og
hvítlauk í ólífuolíunni við miðlungshita.
Bætið kókosmjólk og kotasælu, eða
léttsmurosti, út í pottinn og bræðið sam-
an. Setjið kotasælu og kókosmjólk og
grænmetið og setjið brokkólíið saman við.
Rífið kjúklinginn út í pottinn og kryddið.
Blöndunni er svo hellt í eldfast mót og
osti stráð yfir. Hitið í ofni við 180°C í 15-
20 mínútur.
Kjúklingaofnréttur