Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Síða 9
11.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
N
afn Höskuldar Pét-
urs Halldórssonar
hefur nokkrum
sinnum ratað í fjöl-
miðla þegar fram-
úrskarandi námsárangur er annars
vegar. Árið 2004 stóð hann uppi
sem sigurvegari í landskeppni
framhaldsskóla í stærðfræði, þá
annað árið í röð, ári síðar útskrif-
aðist hann sem dúx MR með met-
einkunn upp á 9,90 og árið 2008
brautskráðist hann úr stærð-
fræðideild Háskóla Íslands með
rétt tæplega 10 í aðaleinkunn, þar
sem hann fékk 10 í öllum prófunum
nema einu.
Nú, 5 árum síðar, er Höskuldur
útskrifaður doktor í stærðfræði frá
MIT, einni flottustu stærð-
fræðideild heims. Brautskráningin
fór fram í byrjun júní síðastliðnum
þar sem Höskuldur setti upp dúsk-
húfu, að hætti bandarískra útskrift-
arnema, og klæddist einkennisbún-
ingi skólans.
Höskuldur hélt út til náms við
MIT á fullum styrk haustið eftir að
hann útskrifaðist frá HÍ og hóf þá
fimm ára doktorsnám í hreinni
stærðfræði. Doktorsverkefnið sner-
ist um að rannsaka einslaga lausnir
á rúmfræðilegri hlutafleiðujöfnu og
segist hann hafa unnið að því síð-
astliðin þrjú og hálft ár. „Fyrstu
þrjú misserin tók ég fullt af kúrs-
um en eftir það var ég eiginlega
bara að vinna að doktorsverkefn-
inu, sem skiptist í nokkra minni
hluta,“ útskýrir Höskuldur, en álíka
langvarandi verkefnavinna hlýtur
að krefjast mikillar ástríðu, eða
hvað? „Ég hafði gaman að verkefn-
inu en vissulega þarf maður mikinn
sjálfsaga. Vegna þess að ég þurfti
ekki að mæta í neina kúrsa hef ég
sem sagt sofið út á hverjum einasta
degi síðastliðin þrjú ár. Það var
kannski helst um helgar sem ég
vaknaði snemma til að horfa á
enska boltann, en leikirnir fara
auðvitað fram eldsnemma að
morgni til á staðartíma hér,“ bætir
hann við á léttum nótum.
Hafnaði Google
Höskuldur kenndi nemum í grunn-
námi stærðfræði samhliða eigin
námi og ber því vel söguna. „Hér
er lögð mikil áhersla á að virkja
nemendur og skapa umræður. Auð-
vitað þurfti maður að vera með
námsefnið alveg á hreinu og útbúa
góð dæmi, en annars var þetta bara
eins og að vera með uppistand.“
Kennarahlutverkið virðist hafa far-
ið Höskuldi vel úr hendi, hann fékk
sérstaka viðurkenningu fyrir
frammistöðu sína á lokahófi stærð-
fræðideildarinnar, en ákvað þrátt
fyrir það að yfirgefa akademíuna
eftir doktorsnámið, ólíkt flestum
samnemendum sínum. „Flestir sem
eru í doktorsnámi í hreinni stærð-
fræði ætla að verða prófessorar og
reyna að klífa upp akademíska met-
orðastigann. Ég fann fljótlega að
mig langaði að prófa eitthvað ann-
að,“ segir Höskuldur. Í kjölfarið
hóf hann atvinnuleit og þá reyndist
drjúgt að hafa doktorsgráðu frá
virtum skóla. „Hún tryggir manni
oft fyrsta atvinnuviðtalið hjá fyr-
irtækjum, sem getur reynst
strembið að fá þegar umsækjendur
skipta þúsundum, en þegar í það er
komið þarf maður auðvitað að
sanna sig á eigin verðleikum.“
Höskuldur sótti um víða en segir
að fáein fyrirtæki hafi boðið honum
vinnu að fyrra bragði. Á meðal fyr-
irtækja sem hann sótti um vinnu
hjá var tæknirisinn Google, sem
jafnframt er þekkt fyrir að vera
einn skemmtilegasti vinnustaður
heims. „Ég komst í fyrsta viðtal hjá
þeim sem var tekið í gegnum síma.
Síðan buðu þeir mér að koma í höf-
uðstöðvar sínar í Kaliforníu í annað
viðtal en þá var ég búinn að fá at-
vinnutilboðið sem ég endaði á að
samþykkja. Ég var búinn að standa
í þessu í umsóknaveseni í alltof
langan tíma og nennti einfaldlega
ekki að fara að flækja málin,“ út-
skýrir Höskuldur, sem hefur störf
hjá fjármálafyrirtækinu Jane
Street í New York í haust. „Það má
segja að þetta sé hópur stærðfræð-
inörda að stunda verðbréfa-
viðskipti,“ segir hann og kveðst
feginn því að þurfa ekki að mæta í
jakkafötum í vinnuna, eins og tíðk-
ast hjá fjármálafyrirtækjum. „Það
er kannski gaman til að byrja með,
en hérna á sumrin þegar hitinn fer
upp í 40 gráður, þá er ekkert hægt
að vera í jakkafötum. Hjá Jane
Street þurfa menn ekkert að vera
fínir af því að við erum bara á bak
við tölvur allan daginn,“ bætir
Höskuldur við á léttum nótum, aug-
ljóslega spenntur fyrir komandi
áskorun á Manhattan.
Höskuldur slær á létta strengi með tilburðum sem minna um margt á fræga ljósmynd sem til er af Einstein nokkrum.
Úr einkasafni
FEGINN ÞVÍ AÐ ÞURFA EKKI AÐ KLÆÐAST JAKKAFÖTUM
Dúxinn orðinn doktor
HÖSKULDUR PÉTUR HALL-
DÓRSSON ER NÝÚTSKRIF-
AÐUR DOKTOR Í STÆRÐ-
FRÆÐI FRÁ MIT Í
BANDARÍKJUNUM. HANN
HEFUR BRÁTT STÖRF HJÁ
VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI
STÆRÐFRÆÐINÖRDA.
Einar Lövdahl elg@mbl.is
*Vegna þess að ég þurfti ekkiað mæta í neina kúrsa hef égsem sagt sofið út á hverjum ein-
asta degi síðastliðin þrjú ár. Það
var kannski helst um helgar
sem ég vaknaði snemma til
að horfa á enska boltann.
Höskuldur hefur búið í Bost-
on síðastliðin fimm ár en flyst
til New York á næstunni
vegna nýja starfsins. „Ég
mun pottþétt sakna Boston en
mig langar líka að prófa eitt-
hvað nýtt,“ segir hann, en
bætir við að borgirnar eigi
ýmislegt sameiginlegt. „Báð-
ar borgirnar eru mjög fjöl-
þjóðlegar, manni líður ekki
beint eins og maður sé út-
lendingur. Það er í raun ann-
ar hver maður hér af erlend-
um uppruna.“
Höskuldur á bandaríska
kærustu, en gerir hann þá
ráð fyrir að ílengjast í Banda-
ríkjunum? „Ég mun allavega
vera hér í nokkur ár í viðbót.
Ég reyndi alltaf að koma
heim tvisvar á ári meðan á
náminu stóð, en það verður
ekki jafnauðvelt þegar maður
er í vinnu. Það gæti alveg
farið svo að maður setjist að
hérna, en annars getur mað-
ur aldrei spáð í framtíðina.“
Raunar mun áframhaldandi
skólavist kærustunnar í Bost-
on verða til þess að hann fær
svo að segja eitt ár til aðlög-
unar að New York. „Ég mun
væntanlega taka lestina
reglulega milli
borganna
svo ég er nú
kannski ekki
alveg búinn
að kveðja
Boston
strax,“
útskýrir
Hösk-
uldur.
Líður ekki
eins og út-
lendingi
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Sími: 564 4700
Opnunartími Dalvegi:
Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
VINSÆLASTA RJÓMATERTAN Í 45 ÁR
fæst hjá Reyni bakara