Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Page 19
lána peninginn í stað þess að gefa
hann, því mennirnir eða stór-
fjölskyldan yrði fljót að eyða pen-
ingunum. Guðný ákvað því að
stofna örlánasjóð sem fékk nafnið
„Dignity“ eða reisn á íslensku. Ör-
lánasjóðurinn vikar þannig að kon-
urnar fá ákveðna upphæð að láni
vaxtalaust sem þær geta notað til
þess að hefja einfaldan atvinnu-
rekstur. Konurnar greiða pen-
ingana svo til baka í nokkrum
greiðslum. Þegar konurnar eru
búnar að greiða af láninu geta þær
fengið lánað aftur til þess að bæta
við stofninn í fyrirtækinu.
Til þess að fá lánið þurfa kon-
urnar að vera í litlum hópi með
gjaldkera og formann og tilkynna
hópinn til lögreglunnar. Gjaldker-
inn ber svo ábyrgð á sínum hóp.
Konurnar koma 12 til 50 í hóp og
ræða við Guðnýju og skrif-
stofukonuna Katy. Konurnar fá um
5.000 krónur hver til þess að
stofna einhverskonar rekstur.
Gyðný segir að þær kaupi ýmislegt
fyrir peningana sem hægt sé að
græða á þarna úti. Til dæmis
kaupa þær lítið eldstæði, pott og
olíu og steikja kartöflusneiðar eða
bananasneiðar og selja. Sumar
hafa keypt maíssekki þegar þeir
eru ódýrir og selt þá aftur þegar
verðlagið hefur hækkað, einhver
stofnaði sápugerðarrekstur og svo
mætti lengi telja. Guðný segir
þetta verkefni hafa gengið vonum
framar og séu konurnar mjög
ánægðar með þetta, enda hafi það
verið nánast ómögulegt fyrir þær
að verða sér úti um stofnfé áður
en að Dignity-sjóðurinn kom til
sögunnar. Nú er verkefnið búið að
vera í gangi í þrjú ár og er 361
kona að nýta sér örlánin og fleiri á
biðlista. Guðný segir að konurnar
hafi nánast undantekningarlaust
staðið í skilum. „Þetta er yndislegt
verkefni og hefur gefið konunum
nýja von, nú langar mig bara til
þess að fara lengra með það,“ seg-
ir Guðný.
Eilífðarverkefni
fyrir stórhuga
Guðný og Hinrik vilja byggja
stærri skóla, auka fjölbreytnina í
skólanum, fara lengra með Dig-
nity-sjóðinn, koma upp heilsugæslu
og foreldrafræðslu svo fátt eitt sé
nefnt. Guðný segir að ekki vanti
hugmyndirnar og þörfin sé mikil á
svæðinu og með guðs hjálp takist
þeim vonandi að byggja svæðið
hægt og rólega upp. Í haust er
hópur frá Íslandi að koma út til
þess að aðstoða þau og á meðal
þeirra er hjúkrunarfræðingur sem
hefur unnið í mörgum þróun-
arlöndum. Guðný ætlar að fá
hjúkrunarfræðinginn með sér í það
að kenna Dignity-konunum heilsu-
fræði og hreinlæti, um sjúkdóma
og mataræði. Guðný segir mikla
þörf vera á slíkri fræðslu þar sem
fólk í Búrkína Fasó viti ekki hvað
hægt sé að nota mikið af auðlind-
um landsins í lækningaskyni.
Guðný og Hinrik eru búin að
sækja um styrk til þess að byggja
hús með þremur stofum næsta vet-
ur sem á að rúma heilsugæslu,
saumastofu og kennslustofu fyrir
fullorðinsfræðslu. Mikið ólæsi er á
meðal foreldranna á svæðinu og
vilja Guðný og Hinrik bæta úr því.
Guðný segir þetta vera eilífð-
arverkefni því þörfin sé mikil í
Bóbó líkt og alls staðar í Búrkína
Fasó, þau ætli því að halda áfram
að vinna að uppbyggingu á svæð-
inu svo lengi sem þau hafi heilsu
til.
málakvenna sem hefðu lofað öllu
fögru en ekki staðið við neitt.
Guðný segir konurnar þarna úti
vera í mikilli neyð því þær eigi oft
ekki fyrir mat og þurfi að sjá fyrir
stórum fjölskyldum. Þegar Guðný
kom heim til Íslands um vorið fór
hún að sækja um fjármagn fyrir
þetta nýja verkefni. Hún leitaði til
hinna ýmsu fyrirtækja og hjálp-
arstofnana en kom alls staðar að
lokuðum dyrum. Hún leitaði til
kirkjunnar sinnar og fjölskyld-
unnar og tókst að safna hálfri
milljón sem hún fór með út um
haustið.
Fyrst ætlaði hún að gefa kon-
unum peningana sem hún hafði
safnað en ákvað að ráðfæra sig við
skrifstofukonuna og matráðskon-
una fyrst. Þær ráðlögðu henni að
Betra er að flýta sér,
ekki má koma of
seint í röðina.
Guðný Ragnhildur og Hinrik hafa breytt lífi margra barna í Bósó.
*Draumur Guðnýjar hafðialltaf verið að
hjálpa börnum og
konum í Afríku
Stoltir nemar með nýju skólatöskurnar sínar. Þær eru ekki sjálfgefinn gripur.
eru með ýmis verkefni á prjón-
unum. Þau eru að reyna að safna
fjármagni fyrir fleiri verkefnum,
þar á meðal verkmenntaskóla þar
sem kennd yrði hagnýt iðn, til
dæmis smíði, saumaskapur, bíla-
viðgerðir eða hjólaviðgerðir. Regl-
urnar í Búrkína Fasó eru þannig
að ef barnið nær ekki prófum að
vori þarf það að sitja í sama bekk
aftur. Þetta gerir það að verkum
að oft eru krakkar innan um smá-
börn og segir Guðný það mikla
niðurlægingu fyrir þá. Þau hafa
ekki fjármagn til þess að sinna
sérkennslu og vilja þau því setja
upp þennan verkmenntaskóla, til
þess að auka atvinnumöguleika
þeirra barna sem geta ekki lært á
bókina. Guðný segir þessi hjálp-
arsamtök í Englandi mikla guðs
blessun því þau hafi hjálpað þeim
mikið og ætli einnig að aðstoða
þau við að koma upp verkmennta-
skólanum. Í haust kemur fólk úr
hjálparsamtökunum með allskonar
tæki og tól og ætlar að þjálfa fólk
í að kenna krökkunum á tækin.
„Okkur langar líka til þess að
byggja gagnfræðaskóla á skólalóð-
inni en kennararnir hafa lagt hart
að okkur að reyna að fá ABC til
þess að styrkja það. Kennararnir
vilja geta fylgt nemendunum úr
hlaði og séð til þess að þeir fái
gott atlæti,“ segir Guðný.
Með fullri reisn
Draumur Guðnýjar hafði alltaf ver-
ið að hjálpa börnum og konum í
Afríku. Þegar hjálparstarfið fyrir
börnin var komið á skrið höfðu
mæður barnanna í skólanum sam-
band við Guðnýju og báðu hana
um aðstoð. Guðný vissi ekki hvað
hún var að fara út í en var mjög
spennt. Hún fór á fund með þess-
um 130 konum undir stóru man-
gótré og í ljós kom að þær vildu fá
fjárhagslega aðstoð. Þær sögðust
hafa leitað til hinna ýmsu stjórn-
11.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19