Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Blaðsíða 38
Bast Magazine. Hægt er að lesa blaðið á www.bast-magazine.com Hvert er uppáhalds-tískutímabilið þitt og hvers vegna? Það eru án efa mörg skemmtileg og mjög áhugaverð tískutímabil en ætli ég verði ekki að nefna tíunda áratuginn. Annars finnst mér alltaf áhugaverðast það sem er að gerast í núinu en ég neita því ekki að það er gaman að líta aftur og skoða hvað var í gangi hverju sinni og sjá hvernig tískutrend koma aftur og aftur. Áttu þér tískufyrirmynd? Ég get ekki sagt að ég eigi einhverja eina tískufyrirmynd en vinkonur mínar veita mér oft innblástur. Amma Rósa er reyndar alltaf ótrúlega flott og óhrædd við að klæða sig í liti og prófa eitthvað nýtt. Áttu þér uppáhalds-hönnuð? Ég á marga uppáhaldshönnuði, í augnablikinu eru það Alexander Wang, Asger Juel Larsen og Kalda. Áttu þér uppáhalds-flík? Ég nota fötin mín mjög mikið og kaupi mér sjaldan ný föt, ætli uppá- haldsflíkurnar mínar séu ekki svörtu gallabuxurnar mínar frá Acne og síði Kalda-jakkinn minn. Ætlar þú að kaupa þér eitthvað sérstakt fyrir haustið? Ætli maður endi ekki á að kaupa sér nýja yfirhöfn sem getur oft verið höfuðverkur þar sem veturnir í Kaupmannahöfn geta verið ansi kaldir og flíkin verður að henta vel til hjólreiða þar sem ég fer allra minna ferða á þriggja gíra dömuhjóli. Hvert sækir þú innblástur? Ég sæki mikinn innblástur í náttúruna og svo fólkið í kringum mig. Ég er líka dugleg að vafra um internetið. Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó, þeg- ar kemur að fatakaupum? Gæði umfram magn. Hverju er mest af í fataskápnum? Ég á mikið af yfirhöfnum og stuttermabolum og svo er fataskápurinn ansi einlita. Ég var einmitt að kaupa mér einn ótrúlega fínan svartan 100% silki bomber jakka í Spútnik, það leynist alltaf eitthvað fínt þar. Hvað einkennir þinn persónulega stíl? Ég myndi segja að hann sé frekar svartur og plain með smá keim af næntís grunge. HAFRÚN ALDA FÍLAR TÍUNDA ÁRATUGINN Gæði um- fram magn HAFRÚN ALDA HEFUR VERIÐ BÚSETT Í KAUPMANNA- HÖFN SÍÐASTLIÐIN SEX ÁR ÞAR SEM HÚN Á OG RIT- STÝRIR TÍMARITINU BAST MAGAZINE. BAST MAGAZINE ER VEFRIT SEM FJALLAR MEÐAL ANNARS UM TÍSKU, HÖNN- UN OG LIST Í SKANDINAVÍU OG ER GEFIÐ ÚT FJÓRUM SINNUM Á ÁRI. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Hafrún Alda sækir innblástur í náttúruna. Uppáhaldsflík Hafrúnar eru svörtu Acne gallabuxurnar. Marc Jacobs 1993 „Grunge“ tímabilið er í uppáhaldi hjá Hafrúnu. Asger Juel er virkilega flottur hönnuður. Morgunblaðið/Eggert *Föt og fylgihlutir Línurnar lagðar að hausttískunni sem einkennist af gráa litnum »40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.