Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Qupperneq 47
sorgir annarra
Morgunblaðið/RAX
11.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47
tjá sig um dagbókarfærslurnar ári
eftir þessa örlagaríku viku. Her-
mann er í fésbókarhópi fyrir ekkjur
og ekkla. Hann hefur ekki fundið sig
þar en segist sjá hvað sá fé-
lagsskapur gerir mikið fyrir ungt
fólk sem hefur misst maka sinn og er
með lítil börn. Það hentar honum
frekar að vera í stuðningshópi innan
kirkjunnar sem hann hittir á reglu-
bundnum samverum. Hermann seg-
ist aldrei hafa sett inn fesbók-
arfærslur á erfiðu dögunum, þá
velur hann að tjá sig við trún-
aðarmann. Hann er ekki með lokaða
síðu og telur mikilvægt að vanda sig
í öllum skrifum. Hann hefur gert
mikið af því að finna gamlar myndir
af Gunnhildi og dætrunum og setja á
vegginn sinn. Það er huggunarríkt
og rifjar upp góðu stundirnar. Það
er skoðun Hermanns að fesbókin
hafi gildi í sorgarúrvinnslunni, þetta
sé viðbótarmiðill í góðum og mik-
ilvægum samskiptum, en hann bætir
því við að það geti verið áhættusamt
að vera of einlægur og honum hafi
aldrei dottið í hug að setja neitt inn
til að slá á einmanaleikann sem
fylgir líka sorginni.
ing fyrir giftinguna og veisluna
þennan dag. Veitingar, skreytingar
og margt, margt fleira sem fólk er
að undirbúa í fimm vikur eða fimm
mánuði. Nei, við tókum okkur heila 5
daga í að skipuleggja alvöru brúð-
kaup. Já, og allan pakkann. Allt inni
var orðið klárt og úti í garði var búið
að hreinsa, gróðursetja, vökva og
setja upp stóla, borð og bekki fyrir
garðveislu. Kærleiksveggurinn var
það síðasta sem við gerðum þennan
dag. Hugmyndin að veggnum fædd-
ist þegar að ég fór að velta því fyrir
mér hvernig hægt væri að koma á
framfæri öllum minningunum og
ferðalögunum sem við höfðum farið
í. Veggur sem sýndi allar góðu
stundirnar okkar saman. Þetta hefur
gefið okkur og öllum þeim sem hafa
séð vegginn ótrúlega mikið. Mynd-
irnar tala sínu máli. Þetta var ótrú-
lega fallegur og tilfinningaríkur dag-
ur. Hefði ekki getað orðið betra og
allir þeir sem lögðu hönd á plóginn,
Kærar, kærar, kærar þakkir til ykk-
ar allra.
Hermann á rúmlega tvö hundruð
fésbókarvini. Hann sér að þriðj-
ungur þess hóps var mjög virkur að
ótrúlegur dagur eftir alla eftirvænt-
inguna daginn áður þegar Gunn-
hildur kom heim. Það átti eftir að
dressa upp brúðhjónin og það var
tekin stefnan á bjart og sumarlegt.
Við Saga, Fanny og Ásgeir fórum í
bæinn að versla brúðarkjól fyrir
Gunnhildi og alklæðnað á mig.
Gunnhildur og Ransý Guðmunds-
dóttir voru heima að slaka á fyrir
giftingardaginn. Það tók okkur
klukkutíma að versla alklæðnað og
ég hef aldrei gert þetta áður á svo
stuttum tíma og með jafn góðum ár-
angri. Enda voru þrír sérfræðingar
með í för, allir með reynslu að versl-
unarstörfum og miklir stílistar. Þessi
dagur var fullur að gleði og ánægju,
en það var líka ýmislegt sem kom
upp á sem reyndi á líkama og sál.
Við náðum að klára allan undirbún-Hermann Georg og Gunnhildur Þóra á sjúkrabeðinum.
* Það er hugg-unarríkt ogrifjar upp góðu
stundirnar.