Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.8. 2013
S
ýningin Stolnar fjaðrir fjallar að
hluta til um eyðingu; dýr í útrým-
ingarhættu og eyðing skóga koma
m.a. við sögu, en þau málefni hafa
lengi verið listakonunni ofarlega í
huga. „Ég hef tekið þátt í alls kyns samsýn-
ingum á síðustu árum en þegar mér bauðst að
sýna hér fannst mér það kalla á stóra innsetn-
ingu. Ketilhúsið er spennandi salur fyrir fólk
sem vinnur í þrívídd; hægt er að horfa á verk-
ið frá öllum hliðum, að ofan, utan og innan úr
og ég ákvað því fljótlega að gera innsetningu
sem væri dálítið há,“ segir Þórdís Alda Sig-
urðardóttir, í samtali við Sunnudagsblað
Morgunblaðsins í tilefni sýningarinnar hennar
sem hefst í dag, laugardag, í Ketilhúsinu.
Líf mannsins á jörðinni
Í stóra salnum eru einskonar tré – að vísu úr
járni. „Trén mynda rætur sem fléttast saman
í rótarflækju. Á veggjunum eru myndir af
dýrum sem eru í útrýmingarhættu, sem ég
valdi úr af gríðarlega löngum lista. Líklega
hefði ég þurft að leggja undir mig allt Lista-
gilið eins og Aðalheiður!“ segir hún og vísar
til stórsýningar Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur í
sumar, „ef ég hefði gert stóra úttekt af þeim
lista. Í stað þess að vera með myndir af öllum
valdi ég ellefu dýr en ljósritaði síðan lista þar
sem öll hin eru talin upp.“
Þetta er þungamiðjan í sýningunni. „Inn-
setningarnar eru reyndar fjórar, sú sem ég
nefndi áðan er glæný, hinar hef ég sýnt áður í
örlítið breyttri mynd en þær tóna vel saman;
eru greinar á sama tré.“ Verk listamannsins
eru einnig á svölum Ketilhússins og þá nýtir
Þórdís herbergi inn af salnum.
Þetta er fyrsta einkasýning Þórdísar í
nokkur ár sem fyrr segir, en hún hefur tekið
virkan þátt í samsýningum, ekki síst erlendis,
auk þess sem hún kom að rekstri START
ART listamannahússins í Reykjavík um nokk-
urra ára skeið. Hún segist hafa unnið að sýn-
ingunni allar götur síðan í október, þegar
Hannes Sigurðsson Sjónlistamiðstöðvarstjóri
bauð henni að sýna í Ketilhúsinu.
Vegferð mannsins á jörðinni hefur lengi
verið listakonunni ofarlega í huga. „Einstefna
mannsins er óneitanlega mjög mikil; hann set-
ur sjálfan sig á oddinn; við virkum einhvern
veginn ekki eins og hluti af lífskeðjunni, tök-
um ekki nægjanlegt tillit til þarfa annarra
tegunda og hrifsum til okkar allt það besta
sem næst til.“
Hluti innsetningarinnar er myndband þar
sem lítið barn segir frá; tilvísun í framtíðina,
segir Þórdís Alda. „Ég hef unnið að sýning-
unni í vetur í Skagafirði, þar sem ég bý núna,
og meðal annars rætt töluvert við krakka sem
hafa sagt mér frá áhyggjum sínum. Þetta eru
glöð og kát börn en segjast samt velta mikið
fyrir sér hvað verður um heiminn í framtíð-
inni, mögulegum náttúruhamförum og öðru
slíku. Það hreyfði verulega við mér að tán-
ingar og krakkar niður í 11 ára, væru strax
farnir að hugsa um þetta. Hver einasta kyn-
slóð hefur líklega haft áhyggjur af framtíðinni,
en mér finnst það átakanlegt að þau skuli
þurfa að hafa þessar áhyggjur og hversu
nærri jörðinni við ætlum að ganga.“
Þórdís Alda segist ekki hafa getað gleymt
áðurnefndu myndbandi, þar sem barnið segir
frá, og fengið góðfúslegt leyfi foreldranna til
að nota það. „Mér finnst þar koma fram svo
margt um sakleysi og umhyggju; umhyggjan
er eðlislæg, held ég, að minnsta kosti á meðan
sakleysið er til staðar.“
Listakonan segist hafa löngun til að koma
skoðunum sínum á framfæri og hafa áhrif, en
kveðst þó ekki vera með vísifingurinn á lofti í
verkum sínum. „Ég vona að verk mín séu
sjónrænt spil, ekki lexía. Ég vil frekar að
verkin hafi skynræn og tilfinningaleg áhrif,
hreyfi við fólki. Það getur svo verið mjög mis-
jafnt hvernig fólk upplifir sama verkið og
sami einstaklingur getur upplifað eitthvað
nýtt við endurtekna skoðun.“
Allt síðan Þórdís Alda byrjaði í myndlist
hefur hún notað nýtt gamalt efni sem henni
áskotnast með einhverjum hætti. Nú er t.d.
mikið um járn og fatnað á sýningunni. „Það
má segja að ég hafi alltaf verið í endurvinnslu
og gefið sumum hlutum nýtt líf.“
Hún segir það vissulega meiri áskorun að
halda einkasýningu en að taka átt í samsýn-
ingum. „En ég stóð í nokkur ár í gallerí-
rekstri ásamt fleiri myndlistarmönnum og var
í því að setja upp sýningar, oft tvær til þrjár
á mánuði; við höfðum heilt hús til umráða,
nokkrar sýningar í gangi í einu, maður var á
kafi í þessu og gleymdi eiginlega sjálfum sér á
meðan maður var að pæla í annarra manna
list. En ég hef sjálf tekið þátt í samsýningum
á undanförnum árum og það er vissulega líka
ákveðin áskorun í sjálfu sér að vinna með öðr-
um. Þá þarf að miðla málum og það er lær-
dómsríkt.“
Heimatúnið
Þetta er fyrsta einkasýning Þórdísar Öldu á
Akureyri en í annað skipti sem hún sýnir í
bænum, því hún átti verk á sýningunni Bæ,
bæ Ísland, fyrir nokkrum árum. Þar var hún
á svipuðum nótum og á samsýningunni Mega
Vott í Hafnarborg á sínum tíma, þar sem hún
fjallaði um „eiturefni sem við sáldrum í kring-
um okkur en finnst við samt vera svo hrein og
fín og flott, og lítum frekar niður til þeirra
sem eru ekki komnir á okkar stað í „þróun-
inni“ – köllum það vanþróuðu löndin. Sýningin
er því í sjálfu sér mikil sjálfskoðun; ég bendi
ekki bara á aðra heldur dreg sjálfa mig fram
sem geranda. Mér finnst athyglisvert hve
Vesturlandabúar hugsa mikið um sjálfa sig
sem öxul jarðarbúa; við erum á kafi í eigin
fréttum og eru Vesturlönd þó aðeins lítið
svæði þegar hugsað er um allan heiminn sem
heild. Það sem gerist hér er þó alltaf einhvern
veginn aðalmálið í fréttum okkar. Áður hugs-
uðu menn mikið og vel um sitt heimatún og
eina von mannsins gæti verið sú að fólk fari
að hugsa þannig að allur heimurinn sé heima-
túnið.“
Þórdís Alda: Maðurinn er alltaf settur á oddinn; hann er ekki eins og hluti af lífskeðjunni heldur stendur utan við og hrifsar til sín allt það besta.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
STOLNAR FJAÐRIR ÞÓRDÍSAR ÖLDU SIGURÐARDÓTTUR Í KETILHÚSINU Á AKUREYRI
Einstefna gráðugrar
mannskepnu á jörðinni
FYRSTA EINKASÝNING LISTAKON-
UNNAR ÞÓRDÍSAR ÖLDU SIGURÐ-
ARDÓTTUR Í NOKKUR ÁR ER
VIÐAMIKIL INNSETNING. KETIL-
HÚSIÐ ER SPENNANDI SALUR;
HÆGT ER AÐ HORFA Á VERKIÐ
FRÁ MÖRGUM HLIÐUM, AÐ OFAN,
UTAN OG INNAN ÚR, SEGIR HÚN.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Hluti eins verka Þórdísar Öldu í Ketilhúsinu.
Margra og fjölbreyttra grasa kennir hjá Þórdísi.
Menning