Morgunblaðið - 02.11.2013, Side 8
8 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
I
Í lok kreppunnar miklu komu danskir blaðaritstjórar til Ís-
lands. Þá langaði til þess að kynnast landi og þjóð. Ferðuðust
þeir um, meðal annars í fylgd Valtýs Stefánssonar, ritstjóra
Morgunblaðsins. Í lok ferðar hitti Ólafur Thors dönsku ritstjór-
ana að máli. Voru þeir hinir ánægðustu með ferðina. Þrennt var
þeim hugstæðast: fegurð landsins, gestrisni þjóðarinnar og al-
hliða þekking Valtýs Stefánssonar. Þeir sögðu að það hefði ver-
ið alveg sama um hvað þeir hefðu spurt, alls staðar hefði Valtýr
verið heima, hvort sem spurnarefnið var jarðfræði, gras og
gróður eða saga Íslands í fortíð og samtíð. „Allt veit þessi Val-
týr ykkar!“ sögðu dönsku ritstjórarnir. „Mér þótti vænt um
þessi orð,“ sagði Ólafur síðar. „Þau voru sönn.“
Fróðleiksfýsn Valtýs endurspeglaðist á síðum Morgunblaðs-
ins. Hann vildi að blað sitt væri „eins konar skóli fyrir íslensku
þjóðina,“ eins og Bjarni Benediktsson komst að orði.
Gild rök má færa fyrir því að Valtýr Stefánsson (1893–1963)
sé áhrifamesti blaðamaður sem Ísland hefur alið. Hann var
frumkvöðull nútímalegrar og sjálfstæðrar blaðamennsku í
landinu og gerði Morgunblaðið að „blaði allra landsmanna“.
Valtýr var ritstjóri og stærsti eigandi Morgunblaðsins um
fjörutíu ára skeið, frá 1924 til 1963.
Á þessum árum var blaðaútgáfa í landinu meira eða minna á
forræði stjórnmálaflokka. Morgunblaðið var stóra undantekn-
ingin — og það skýrði öðrum þræði hinar geysimiklu vinsældir
blaðsins. Í anda fyrsta ritstjóra Morgunblaðsins, Vilhjálms Fin-
sens, var það hugsjón og markmið Valtýs Stefánssonar að blað
hans væri áreiðanlegasta og fjölbreyttasta fréttablað landsins.
II
Valtýr Stefánsson fæddist á Möðruvöllum í Hörgárdal 26. jan-
úar 1893, sonur hjónanna Steinunnar Frímannsdóttur og Stef-
áns Stefánssonar skólameistara. Möðruvellir voru stórbú og
fast heimilisfólk var jafnan 20–30 manns. Í skólanum, sem þar
var starfræktur, voru um 40 nemendur hvaðanæva af landinu.
Möðruvellir voru í þjóðleið og því mikið um gestakomur, auk
þess sem messað var í kirkjunni á hverjum sunnudegi. Það var
því jafnan mikið um að vera á æskuheimili Valtýs og margt
þjóðfrægra manna sem átti þangað erindi.
Faðir Valtýs naut mikillar virðingar sem skólamaður, en
hann var jafnframt einn fremsti náttúrufræðingur landsins.
Hann vann að umfangsmiklum gróðurrannsóknum meðfram
skólastörfum sínum og skrifaði m.a. bókina Flóra Íslands
(1905). Þá var hann atkvæðamikill í félagslífi og stjórnmálabar-
áttu samtímans. Hann var alþingismaður um hríð og nánasti
samherji dr. Valtýs Guðmundssonar, fóstbróður síns úr skóla.
Gerðist Valtýr ungur handgenginn nafna sínum, hinum
virðulega doktor. Í æsku varð Valtýr einnig fyrir miklum áhrif-
um frá tveimur öðrum þjóðþekktum heimilisvinum á Möðru-
völlum, Ólöfu skáldkonu frá Hlöðum og Ólafi Davíðssyni nátt-
úru- og þjóðfræðingi.
Að loknu stúdentsprófi 1911 stundaði Valtýr búnaðarnám í
Hólaskóla en hélt síðan til framhaldsnáms í búnaðarfræðum við
Landbúnaðarháskólann í Kaupmannahöfn. Þar kynntist hann
eiginkonu sinni, Kristínu Jónsdóttur listmálara, sem hann
reyndar þekkti frá æskuárum. Eignuðust þau tvær dætur,
Helgu leikkonu og Huldu blaðamann og borgarfulltrúa.
Eftir háskólanám vann Valtýr ýmis störf tengd landbúnaði
bæði á Íslandi og í Danmörku. Meðal annars var hann um nokk-
urra ára skeið ráðunautur Búnaðarfélags Íslands og ritstýrði
búnaðarblaðinu Frey.
Auk þess að vera ritstjóri Morgunblaðsins frá 1924 til dán-
ardægurs 1963 gegndi Valtýr ýmsum trúnaðarstörfum utan
blaðsins. Hann sat í útvarpsráði á árunum 1935–1943, var bæj-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 1938–1946 og for-
maður Menntamálaráðs á árunum 1943–1956. Þá var hann einn
ötulasti skógræktarfrömuður landsins. Hann var meðal stofn-
enda Skógræktarfélags Íslands á Alþingishátíðinni 1930 og for-
maður félagsins á árunum 1940–1961.
Til að treysta stöðu sína á Morgunblaðinu fór Valtýr snemma
að kaupa hlutabréf í Árvakri, útgáfufélagi blaðsins. Þau voru
dreifð og á lágu verði, en fjölmargir einstaklingar í bænum
höfðu keypt þau til að leggja blaðinu lið á erfiðleikatímum.
Eignaðist Valtýr á skömmum tíma yfir 46% hlut í blaðinu.
Hann var því lengst af í ritstjóratíð sinni langstærsti eigandi
Morgunblaðsins.
Valtýr sendi frá sér sjö bækur sem fengu góðar viðtökur. Það
voru Minningar Thors Jensens í tveimur bindum og fimm bæk-
ur með viðtalsþáttum Valtýs úr Morgunblaðinu og Lesbókinni,
en viðtöl hans voru lengi meðal vinsælasta lesefnis blaðsins.
Af þessu yfirliti má ljóst vera að Valtýr Stefánsson var mjög
fyrirferðarmikill maður í íslensku þjóðlífi á sínum tíma.
III
Hrein tilviljun réð því að Valtýr varð ritstjóri Morgunblaðsins.
Blaðið átti erfitt uppdráttar um þær mundir og eigendur þess
vildu skipta um ritstjóra. Þeir höfðu augastað á ungum lögfræð-
ingi, sem var nýorðinn þingmaður Vestur-Skaftfellinga, Jóni
Kjartanssyni. Hann borðaði á matsölustað stúdenta, Mensa
academica í Lækjargötu. Svo vildi til að það gerði Valtýr líka
þegar hann dvaldi í Reykjavík, en hann var þá búsettur í Kaup-
mannahöfn og löngum utanbæjar þegar hann var á Íslandi.
Tókust með þeim Jóni góð kynni. Jón treysti sér ekki til að
taka einsamall við Morgunblaðinu og fór fram á að Valtýr yrði
ráðinn sér við hlið. Stjórn Árvakurs, útgáfufélags Morg-
unblaðsins, féllst á það. Jón hafði fyrst og fremst áhuga á
stjórnmálahlið blaðamennskunnar og vildi að Valtýr sæi að
mestu um aðrar hliðar hennar.
Óhætt er að segja að það hafi reynst gæfuspor að fá Jón
Kjartansson og Valtý Stefánsson til að taka við ritstjórn Morg-
unblaðsins 1. apríl 1924. Þeir voru saman ritstjórar blaðsins til
1947 eða í nær aldarfjórðung. Þeir skiptu bróðurlega með sér
verkum og bættu hvor annan upp.
Árni Óla, sem vann á Morgunblaðinu í sex áratugi, sagði að
það væri ein af hugljúfustu endurminningum sínum frá Morg-
unblaðs-árunum „hin snurðulausa og alúðlega sambúð og sam-
vinna þeirra ritstjóranna Jóns og Valtýs. Á henni byggðist og
heill blaðsins,“ bætti Árni við. — Þetta var grundvöllurinn að
hinum einstaka Morgunblaðsanda sem ríkti á ritstjórn blaðsins
lengst af.
IV
Á tuttugu ára afmæli Morgunblaðsins, 2. nóvember 1933, skrif-
aði Valtýr hugvekju um blaðamennsku í blað sitt. Hann vakti
athygli á því að enskumælandi þjóðir nefndu dagblöð sín
„newspapers“ eða fréttablöð og Þjóðverjar „Zeitungen“, tíð-
indi. Nöfnin fælu í sér meginhlutverk blaðanna, fréttaflutning-
inn.
En hér á landi legðu menn almennt annan skilning í blaða-
mennsku og settu „skammir og rifrildi“ skör hærra en frétta-
flutninginn. Íslensk blöð hefðu aðallega verið gefin út sem
„pólitísk flugurit“ og „bardagavopn pólitískra flokka“ en minni
rækt lögð við önnur viðfangsefni blaðanna.
Valtýr sagði að hlutverk raunverulegra dagblaða væri ekki
aðeins að greina frá því sem gerðist heldur ekki síður að skýra
með hvaða hætti það gerðist. Við hvern atburð vöknuðu ótal
spurningar hjá áhugasömum blaðamanni. Þær væru nauðsyn-
legar til að geta skýrt lesendum sem gleggst frá atburðarás og
öllum málavöxtum. Aðalvandi blaðamannsins væri að segja rétt
og skipulega frá einstökum atburðum. Blaðamaðurinn yrði að
hafa snarar hendur þar sem hann skrifaði samdægurs um það
sem gerðist og væri að gerast og þótt ekki skorti sjónarvotta
gæti verið mjög erfitt að fá rétt samhengi í frásögnina.
Ívar Guðmundsson, sem vann á Morgunblaðinu í 17 ár, sagði
að Valtýr hefði haft einstakt fréttanef. Hann hefði iðulega séð
fréttir þar sem aðrir komu ekki auga á þær. Sá háttur var við-
hafður á ritstjórnarskrifstofum Morgunblaðsins í litla skúrnum
í Austurstræti að hengja fréttir á snaga — sem kallaður var
dagbókarnagli — áður en þær fóru í prentun. Einn daginn þeg-
ar Valtýr var að glugga í þetta safn rauk hann upp og sagði:
„Nei, nei, nei! Þetta gengur ekki!“
Höfundur Morgunblaðsins
Jakob F. Ásgeirsson
Nærri lætur að upplag Morgunblaðsins hafi tífaldast í ritstjóratíð Valtýs Stefánssonar. Valtýr var frumkvöðull í
blaðamennsku á Íslandi, þekktur fyrir viðtöl sín og fréttanef. Undir hans stjórn varð Morgunblaðið áreiðanleg-
asta dagblað landsins, laust við æsifréttamennsku og þó stærsta og vinsælasta blað þjóðarinnar.
Valtýr Stefánsson ritstjóri með blað dagsins í höndunum.
Sigfús Jónsson, framkvæmdastjóri Morgunblaðsins, Valtýr Stefánsson ritstjóri og Jón Kjartansson ritstjóri.