Morgunblaðið - 02.11.2013, Qupperneq 26
sé vandað. Ástæðan er einföld. Fólk ber orðið
svo gott skynbragð á form og innihald ljós-
mynda að séu myndirnar ekki vandaðar og
áhugaverðar flettir fólk framhjá þeim. Þetta er
mjög einfalt.“
Einar Falur segir að ljósmyndadeildin sé
einn helsti styrkur Morgunblaðsins.
„Hér á blaðinu hefur verið safnað saman
sterkasta hópi ljósmyndara, sem nokkurn tím-
ann hefur unnið saman á Íslandi,“ segir hann.
„Það hefur verið gæfa blaðsins hvað hæft fólk
hefur ráðist hingað inn á ljósmyndadeildina – og
gæfa lesenda.“
um í bæinn. Tengslin hafa haldist síðan og ýmist
hefur hann verið fastur starfsmaður eða frétta-
ritari. Hann nam bókmenntafræði við H.Í., er
með meistaragráðu í ljósmyndun frá New York,
varð myndstjóri á Morgunblaðinu þegar hann
sneri þaðan 1995 og gegndi þeirri stöðu þar til
hann fór á menningarritsjórnina 2007. Þáttur
ljósmyndarinnar í að segja sögu eða frétt er
honum því mjög hugleikinn.
„Það hefur margoft verið rannsakað hvernig
fólk les prentmiðla,“ segir hann. „Fyrst tekur
fólk eftir fyrirsögn. Ef hún er áhugaverð skoðar
fólk myndefnið. Ef það heldur athyglinni les
fólk myndatextann. Haldi þetta þrennt áhug-
anum les fólk textann. Þetta virðist vera
mynstrið. Það er gríðarlega mikilvægt í þessum
myndlæsa heimi á 21. öld að myndefni í blöðum
L
ykilatriði í menningarumfjöllun er það
sama og verið hefur síðan ég kom til
leiks inn á Morgunblaðið og það er að
endurspegla breidd og dýpt íslensks
menningarlífs, ætíð með það í huga að
þjónusta áskrifandann sem best,“ segir Einar
Falur Ingólfsson, fréttastjóri á menningarrit-
stjórn Morgunblaðsins. „Hlutverk blaðamanns
hlýtur á hverjum tíma að vera að benda á helstu
viðburði. Vitaskuld fer alltaf fram ákveðið val í
því ferli. Það byggist á því að á menningarrit-
stjórn Morgunblaðsins starfar sérmenntað fólk
á þessu sviði, blaðamenn með góða menntun á
ólíkum sviðum menningar, sem eru í stakk bún-
ir til að fjalla á vandaðan og lifandi hátt um það
sem efst er á baugi á hverjum tíma, og ég vona
að lesendur njóti góðs af því.“
Einar Falur segir að skipta megi menningar-
umfjöllun í tvennt, fréttir og rýni.
„Í fréttaflutningi okkar reynum við að fylgj-
ast með því sem er í gangi, einkum hér á Íslandi
þótt við bendum líka á það sem er mikilvægt og
efst á baugi erlendis. Hin hliðin er rýni. Við ger-
um okkar besta til að rýna í helstu menningar-
viðburði með því að birta gagnrýni,“ segir hann
og leggur áherslu á gagnið í rýninni þegar hann
talar. „Hér áður fyrr var rýnt í fleiri verk og við-
burði, en það hefur breyst með breyttu efna-
hagsástandi í útgáfunni. Nú þurfum við að velja
þá atburði, sem fjallað er um á gagnrýninn hátt,
hvort sem það eru leikhús, tónleikar, myndlist-
arsýningar eða bækur. Engu að síður reynum
við að sinna því, sem efst er á baugi.“
Að umfjöllun sé sanngjörn,
heiðarleg og fagleg
Í menningarumfjöllun þarf að draga fram bæði
það viðtekna og vaxtarbroddinn.
„Á menningarritstjórninni ræðum við á
hverjum degi hvað er að gerast og erum mjög
meðvituð um að bæði þurfi að benda fólki á það
sem er nýstárlegt og forvitnilegt og sinna um
leið þeim reyndu listamönnum, sem þegar hafa
sannað sig,“ segir Einar Falur. „Í þeirri vinnu
hjálpar ólík reynsla okkar blaðamanna gríðar-
lega og hjálpar okkur að ná yfirsýn yfir strauma
og stefnur. En því má ekki gleyma að íslenskt
menningarlíf er – blessunarlega – það blómlegt
og margt í gangi að við náum aldrei að komast
yfir það allt. Vitaskuld geta lesendur verið mis-
sáttir við það val sem á sér stað, en við verðum
að standa og falla með okkar vali og gæta þess
að öll umfjöllun sé sanngjörn, heiðarleg og fag-
leg. Og lykilatriðið er alltaf að þjónusta áskrif-
andann, lesandann.“
Einar Falur byrjaði sem fréttaritari fyrir
Morgunblaðið og íþróttaljósmyndari í apríl
1981. Þá var hann fjórtán ára. Í þrjú ár fór hann
með filmur og fréttir á puttanum eða með rút-
Morgunblaðið/Golli
Einar Falur Ingólfsson, fréttastjóri menningarritstjórnar, segir mikilvægt að sinna jafnt
hinu nýja og þeim reyndu listamönnum, sem hafa sannað sig.
Lesandinn alltaf lykilatriðið
Myndir Einars Fals Ingólfssonar hafa birst í Morgunblaðinu í rúma þrjá áratugi og hann hefur getið sér orð
fyrir að vera jafnvígur á ritmál og myndmál. Nú stýrir hann menningarumfjöllun blaðsins.
Morgunblaðið/Einar Falur
Louisa Matthíasdóttir
Stór hluti af starfi Einars Fals hefur verið
að ljósmynda og ræða við listamenn.
Louisa Matthíasdóttir listmálari var einn
þeirra. „Ég hringdi í hana þegar ég bjó í
New York og spurði hvort ég mætti koma
og taka af henni mynd,“ segir hann. „Það
var auðsótt, hún var þá nýorðin ekkja og
var ein í sínu stóra húsi. Ég heimsótti hana
nokkrum sinnum, sem var gaman, því þótt
Louisa væri sögð orðvör þá hafði hún frá
mörgu að segja.“
Metfjöldi
Í janúar árið 2001 safnaðist
mesti mannfjöldi sem sögur
fara af, saman á trúarhátíðinni
Kumbh Mela við Allahabad á
Indlandi. Einar Falur fylgdist
með hátíðarhöldunum og tók
mynd af mannþrönginni þegar
um 30 milljónir komu saman
við ármót fljótanna Jamuna og
Ganges í birtingu á helgasta
degi hátíðarinnar.
26 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013