Morgunblaðið - 02.11.2013, Page 38
38 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
Vonin
„Snjóflóðin á Súðavík og Flateyri
voru með eftirminnilegustu og erf-
iðustu verkefnum sem ég hef tek-
ið að mér,“ segir Ragnar. Það hafi
tekið á að koma inn í þetta um-
hverfi og þá miklu sorg sem ríkti
eftir hamfarirnar 1995. „Maður
þurfti að reyna að ná hörmung-
unum á mannlegan hátt. Öll þjóðin
beið á milli vonar og ótta eftir því
að vita hvort fólk hefði bjargast.“
Ragnar segir að myndirnar þrjár
sem valdar eru á þessari síðu segi
saman heilmikla sögu um þessa
hræðilegu atburði.
„Þessi mynd er tekin í minningar-
athöfn,“ segir Ragnar um myndina
Vonin, sem var tekin á Flateyri.
Barnið var aftast í kirkjunni ásamt
móður sinni sem reyndi að hugga
það. „Augnablikið þegar barnið
leit upp í litla stund og hætti að
gráta, var eins og ljósið í myrkrinu.
Það vakti von um að fleiri myndu
finnast á lífi.“
Ragnar Axelsson (RAX)
ljósmyndari hefur verið viðloð-
andi Morgunblaðið frá árinu
1976. Á þeim tíma hefur hann
haldið margar sýningar er-
lendis og hlotið alþjóðlegar
viðurkenningar. Meðal annars hafa verið
gefnar út þrjár bækur eftir hann, Andlit norð-
ursins, Veiðimenn norðursins og Fjallaland.
Leitin
„Það er mikilvægt fyrir söguna að eiga svona myndir sem sýna hvað fólk þurfti að leggja á sig,“
segir Ragnar, „þeir eru að moka í snjó, sem er eins og steypa að þykkt, og hríðin blæs á meðan.“
Sorgin
Þessi mynd af fána í hálfri stöng sýnir sorgina sem fylgdi þegar fréttir bárust af hörmung-
unum. „Á þessu augnabliki var ljóst hversu alvarlegur hlutur hafði komið fyrir,“ segir Ragnar.
RAX