Morgunblaðið - 02.11.2013, Side 54
Ljósmyndir: Árni Sæberg, Kristinn, Eggert, Golli og Rósa Braga
Það er flókið og margþætt ferli að gefa út dagblað. Vinnudagurinn hefst
hjá ritstjórn með fundi snemma dags þar sem stjórnendur ræða fréttir og
verkefni dagsins. Síðar hittast blaðamenn á einstökum deildum með
fréttastjórum og skipta með sér verkum. Margt helst í hendur yfir daginn
í framleiðslu blaðsins; sala auglýsinga, úrvinnsla frétta og umbrot blaðs-
ins þar til fullunnið blað er sent yfir til prentsmiðjunnar um kvöldið. Að
morgni næsta dags er blaðið borið út til áskrifenda.
DAGUR Í LÍFI BLAÐS
Arna Sigurðardóttir og Erna Kristjánsdóttir ræða hönnun
auglýsingar sem þær eru að vinna fyrir blað morgundagsins.
Guðmundur Sveinn Hermannsson fréttastjóri og Steinþór
Guðbjartsson rýna í eitt af baksíðuviðtölum Steinþórs.
Kristinn Garðarsson og Árni Matthíasson á netdeild eru á
meðal þeirra sem sjá um að allt sé í lagi að baki mbl.is.
Guðrún Hálfdánardóttir, Óskar Magnússon, Haraldur Johannessen, Guðmundur Sveinn
Hermannsson, Sunna Ósk Logadóttir og Emilía Björg Björnsdóttir hefja daginn með fundi.
Þorsteinn Ásgrímsson, Una Sighvatsdóttir, Guðrún Hálfdánardóttir fréttastjóri, Lára Halla
Sigurðardóttir og Hjörtur J. Guðmundsson ræða fréttir mbl.is og daginn sem er framundan.
Haraldur Johannessen og Davíð Oddsson, ritstjórar Morgunblaðsins, á kaffistofunni. Davíð heldur á gamalli mynd eftir
Ragnar Axelsson sem sýnir flutning Ludwigs Lugmeier, þýsks strokufanga, á áttunda áratugnum aftur til Þýskalands.
Snorri Guðjónsson kerfisstjóri hugar hér að netþjónabúi
Morgunblaðsins, sem skiptir reksturinn höfuðmáli.
Ragnar Axelsson ljósmyndari og Harpa Grímsdóttir um-
brotsmaður ræða hvernig mynd Ragnars njóti sín best.
54 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013