Morgunblaðið - 02.11.2013, Qupperneq 76
76 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
Minn tími á Morgunblaðinu
Margir hafa haft viðkomu á Morgunblaðinu í áranna rás, starfað þar í lengri eða skemmri tíma og síðan haslað sér völl á
öðrum vettvangi. Í viðtali í þessu blaði talar Matthías Johannessen um „morgunblaðseggin“ og segir þau jafn margvísleg
og svartfuglseggin. Nokkur þeirra minnast hér tíma síns á Morgunblaðinu.
Ég sagði eitt sinn við ungan blaðamann,sem nú er fjármálaráðherra, að efhann vildi sleppa við að gera eitthvað
sem honum líkaði ekki yrði hann að hætta í
blaðamennsku. Og hann hætti í blaða-
mennsku og varð fjármálaráðherra.“
Þetta sagði Matthías Johannessen, fyrrver-
andi ritstjóri, á ráðstefnu í Edinborg 2004.
Hann var að vísa í samskipti okkar sumarið
1973. Ég var sumarblaðamaður á Mogganum
og ósáttur við að hafa verið falið að hafa uppi
á þáverandi utanríkisráðherra í sumarbústað
hans út af því sem ég taldi vera lítið tilefni.
Matthías reiddist og ég fékk skammir. En ég
talaði ekki við ráðherrann.
Daginn eftir sagði Matthías við mig að það
hefði sennilega verið rétt að leyfa ráðherran-
um að vera í friði í sínu fríi. Ég sagði þá eitt-
hvað á þá leið á fundi ritstjórnar að ég myndi
framvegis gera það sem ég væri beðinn um.
Þá sagði hann glettnislega: „Má ég þá ekki
biðja þig að hoppa út um gluggann?“ Þar
með var málinu lokið. Ég var heppinn að
vera ekki rekinn en lærði mína lexíu. Hún
var sú að það var ritstjórinn sem réð hvað
stæði í Morgunblaðinu en ekki 22 ára sum-
arstrákur. Eftir þetta mat ég Matthías enn
meira en áður og var viðloðandi blaðið í tíu
ár eftir þetta.
Mogginn er skemmtilegasti og líflegasti
vinnustaður sem ég hef unnið á. Ég var á
blaðinu í sex sumur og tók síðan erlendar
fréttavaktir í önnur sex ár þar til ég fór til
starfa á pólitískum vettvangi. Öll námsár
mín í Bandaríkjunum skrifaði ég einnig
pistla í blaðið. Ég sóttist eftir sumarstarfi
eftir stúdentspróf 1971 en fékk ekki. Betur
gekk árið eftir og kom ég til starfa í byrjun
júní. Hef ég ætíð verið ritstjórunum
þakklátur fyrir það tækifæri.
Fyrsta sumarið er mér minnisstæðast. All-
ar deildir blaðsins voru þá til húsa í Að-
alstræti 6 og ritstjórnin á 2. hæð var mikil
mannlífskvika. Allt sem einhverju máli skipti
í þjóðfélaginu kom til umfjöllunar og einnig
margt annað. Á ritstjórnarfundum eftir há-
degið var rætt um margt fleira en fréttir og
efni í blaðið, einkum ef Matthías var í stuði.
Gátu fundirnir þá dregist langt fram eftir
degi. Mér fannst ótrúlega skemmtilegt að
vera þátttakandi í þessari hringiðu og við
yngra fólkið hentum á lofti hnyttilegar setn-
ingar sem Matthías lét út úr sér.
Björn heitinn Jóhannsson var eini frétta-
stjórinn, kröfuharður en jafnan léttur í lund.
Á blaðinu unnu ýmsir kunnir jaxlar úr blaða-
mennsku sem gaman var að kynnast. Margir
þeirra urðu góðir vinir mínir og eru enn. Frá
fyrsta sumri mínu á blaðinu er tveir atburðir
eftirminnilegastir: Skákeinvígi Fischers og
Spasskys, sem ég fylgdist vel með, og út-
færsla landhelginnar í 50 mílur 1. september
1972. Þá vorum við Brynjólfur Helgason ljós-
myndari sendir með skipi frá Ísafirði til að
fylgjast með breskum landhelgisbrjótum sem
breitt höfðu yfir nafn og númer. Einn tog-
arakarlinn hrópaði til okkar: „We are from
Uganda!“ Þetta rataði í fyrirsögn mína í mið-
opnu blaðsins daginn eftir. Þessi setning rifj-
aðist upp fjórum árum síðar þegar Matthías
ákvað á ritstjórnarfundi að Morgunblaðið
skyldi reyna að ná símtali við Idi Amin, for-
seta Úganda. Það var ekki eftirsótt verkefni
en Guðmundur heitinn Halldórsson tók það
að sér. Stúlkurnar á „talsambandi við útlönd“
rak í rogastans þegar Guðmundur bað þær
að hjálpa sér að ná í karlinn. Allt kom þó fyr-
ir ekki, Idi Amin lét ekki ná í sig. Það þótti
ekki drengileg framkoma við Morgunblaðið.
Óneitanlega hefur margt á mína daga drif-
ið á þeim 40 árum sem síðan eru liðin. En
alltaf er þó gaman að rifja upp minningar af
Mogganum með gömlum félögum þaðan.
„Erum frá Úganda“
Morgunblaðið/Golli
Geir H. Haarde
fyrrverandi forsætisráðherra
Geir Haarde byrjaði á Morgunblaðinu hið viðburðaríka sumar 1972 og upplifði þorskastríð
og einvígi aldarinnar. Ristjórnin „var mikil mannlífskvika,“ segir Geir.
Frásögn Geirs af bresku landhelgisbrjótunum sem sögðust vera frá Úganda.
Það var fyrir orðastað Matthíasar skáldsað ég tók að mér að rita tónlistar-gagnrýni í Morgunblaðið. Margt mætti
til tína um sögu gagnrýninnar, því marg-
víslegir og merkilegir viðburðir áttu sér stað,
þar sem heimsfrægir listamenn komu fram, er
með listfengi sínu höfðu mikil áhrif á þróun
tónlistar hér á landi.
Viðfangsefni dagblaðs er að fjalla um pólitík,
birta aðsendar greinar um menn og málefni,
auglýsingar, flytja fréttir, en ekki síst að fjalla
um listir og menningu.
Það var mér töluverður lærdómsauki að
starfa við Morgunblaðið og á ég þar þakk-
arskuld ógreidda starfsmönnum blaðsins. Af-
mælisósk mín til Morgunblaðsins er að í öngu
verði til sparað að gera það sem best úr garði,
þjóðinni til gagns og fróðleiks.
Viðfangsefni
dagblaðs ekki síst
listir og menning
Jón Ásgeirsson
tónskáld
Morgunblaðið/Golli
Jón Ásgeirsson tónskáld var listgagnrýnandi Morgunblaðsins frá 1970 till 2003.