Morgunblaðið - 02.11.2013, Page 95
Óeirðirnar við Alþingishúsið þegar aðild að
NATO var samþykkt 1949.
Meðal minnisstæðra forsíðna um erlenda
atburði er fréttin um morðið á John F. Kenn-
edy, forseta Bandaríkjanna, í nóvember 1963
og tunglferðin 1968. Leiðtogafundurinn í
Höfða var í senn innlend og alþjóðleg frétt og
viðbúnaður blaðsins vegna hans var meiri en í
aðra tíð. Forsíðan um árásina á tvíbura-
turnana í New York 11. september er áhrifa-
mikil svo og um hryðjuverkið í Noregi áratug
síðar.
Af minnisverðum forsíðum af innlendum
vettvangi á seinni hluta 20. aldar fyrir utan
það sem áður er nefnt eru hér dregnar fram
sem sýnishorn forsíða með Heklugosinu 1947,
veitingu nóbelsverðlaunanna í bókmenntum
til Halldórs Laxness 1955, brunanum á Þing-
völlum 1970 þegar Bjarni Benediktsson for-
sætisráðherra, kona hans og dóttursonur lét-
ust, afhendingu handritanna ári síðar, kjöri
Vigdísar í forsetaembætti 1980, snjóflóðinu á
Flateyri 1995 og bankahruninu haustið 2008.
Á vefnum timarit.is er hægt að skoða öll
tölublöð Morgunblaðsins fram til ársloka
2009. Er þar hægt að kynna sér betur þær
forsíður ssem hér eru birtar og aðrar sem les-
endur hefðu áhuga á að kynna sér.
Skipt var um forsíðu að næturlagi þegar
Hekla gaus í mars 1947.
Varnarliðið kemur til Íslands vorið 1951.
Komið var upp varnarstöð í Keflavík.
John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna,
myrtur í Dallas í Texas í nóvember 1963.
Fyrsta ferð mannaðs geimfars til tunglsins
1969 var mesta tækniafrek sögunnar.
Aðfaranótt 26. október 1995 féll snjóflóð á
Flateyri. Tuttugu létust.
Ódæðisverkið í New York 11. september
2011 sem breytti heiminum.
Neyðarlög sett á Íslandi haustið 2008 í kjöl-
far þess að viðskiptabankarnir hrundu.
Öfgamaðurinn Anders Breivik fremur
hryðjuverk í Útey við Osló í Noregi.
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013 95
Þegar gos hófst í Heimaey um miðnætti 23. jan-
úar 1973 voru blaðamenn Morgunblaðsins farnir
heim af vaktinni. Prentun blaðsins var hafin.
En viðbrögðin voru snögg þegar hringt var til
blaðsins og látið vita af því hvað var að gerast.
Prentvélarnar voru stöðvaðar og blaðamenn
ræstir út. Forsíða blaðsins og ein innsíða voru
þegar teknar frá til að rýma fyrir fréttinni.
Að morgni var Morgunblaðið eina dagblaðið
sem flutti þjóðinni fréttir af atburðunum. Margir
urðu agndofa þegar blaðið kom inn um lúguna,
enda fáir að fylgjast með útvarpsfréttum að næt-
urlagi.
Blaðið bætti um betur og um hádegi var gefin
út tólf blaðsíðna aukaútgáfa með nánari fréttum
af gosinu, viðtölum við Vestmannaeyinga, lög-
reglu, björgunarmenn, jarðfræðinga og for-
ystumenn þjóðarinnar.
Enga ljósmynd var unnt að birta í blaðinu sem
unnið var um nóttina, en öll forsíða aukaútgáf-
unnar var lögð undir mynd af eldgosinu.
Næstu daga gerði Morgunblaðið gosinu ríkuleg
skil, fjallaði um björgunarstörf og brottflutning
íbúanna sem voru um 5.000, viðtökur á meginlandinu og síðan tilraunir þær sem gerðar
voru til að hefta útbreiðslu hraunsins með kælingu.
Gosið setti mikinn svip á þjóðlífið næstu mánuði. Vestmannaeyjar voru helsta verstöð
landsins á þessum tíma og margir höfðu þungar áhyggjur af áhrifum gossins á efnahags-
lífið. Erlendis vakti gosið mikla athygli og nágrannaþjóðirnar buðu fram aðstoð. Eftir á að
hyggja er með ólíkindum hvernig tókst að virkja krafta og samheldni þjóðarinnar á þessum
tíma. Enginn lét lífið af völdum hamfaranna og ekki leið á löngu þar til Vestmannaeyingar
gátu snúið aftur til síns heima. Tók þá við mikið uppbyggingarstarf.
STÖÐVIÐ PRESSUNA!
Einir með gosfréttina
Prentun var stöðvuð þegar fréttin
barst.
Halldór Kiljan Laxness fær Nóbels-
verðlaunin í bókmenntum árið 1955.