Morgunblaðið - 02.11.2013, Page 102
102 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
Landakirkja og Eldfell
Tímatal í Vestmannaeyjum miðast við eldgosið í Heimaey 1973, fyrir og
eftir gos. Útlitið var svart þegar bærinn kaffærðist í hrauni og ösku en
Eyjamenn misstu ekki vonina og Vestmannaeyjar risu á ný.
S
jósókn og fiskvinnsla,
lundaveiðar og rollustúss
í úteyjum. Eldgos, litfög-
ur náttúrufyrirbæri og
Eyjamenn í dagsins önn.
Allt þetta hefur Sigurgeir Jónasson,
ljósmyndari Morgunblaðsins í Vest-
mannaeyjum, skráð af kostgæfni á
löngum ferli sínum sem ljósmyndari.
Sigurgeir fæddist í Vestmanna-
eyjum 19. september 1934 og hefur
búið þar alla ævi. Hann byrjaði ungur
að taka ljósmyndir og birtust fyrstu
myndir Sigurgeirs á prenti þegar
hann var 13 ára gamall.
Fyrstu fréttamyndir Sigurgeirs í
Morgunblaðinu birtust í nóvember
1959. Þá var myndefnið síldveiðar í
Vestmannaeyjahöfn og smölun í Áls-
ey. Ferill hans sem fréttaljósmyndari
hófst í ágúst 1958 þegar myndir hans
af hvalskurði í Vestmannaeyjahöfn
birtust í Tímanum. Fréttaljós-
myndun Sigurgeirs til þessa dags
spannar því meira en 55 ár. Auk þess
að taka myndir var Sigurgeir frétta-
ritari Morgunblaðsins um tíma og
hann og kona hans, Jakobína Guð-
laugsdóttir, voru umboðsmenn Morg-
unblaðsins í um 30 ár.
Sigurgeir hefur verið iðinn við að
skrá hinar ýmsu hliðar atvinnulífsins,
náttúrunytja og mannlífsins. Mynda-
safnið geymir heimildir um vinnu-
brögð og lífsbaráttuna síðustu tæpa
sex áratugina. Sigurgeir var í návígi
við tvö stór eldgos, Surtseyjargosið
1963 - 1967 og Heimaeyjargosið 1973,
og tók af þeim hundruð þúsunda ljós-
mynda. Margar þeirra birtust í víð-
lesnum dagblöðum og tímaritum um
allan heim. Auk þess tók Sigurgeir
myndir af þremur Heklugosum frá
sjónarhóli Eyjamanna.
Fuglamyndir og aðrar náttúrulífs-
myndir Sigurgeirs eru kafli út af fyrir
sig. Myndasyrpur hans af fjöl-
breyttum litbrigðum og formum
kletta, hella og fuglabjarga, lita-
veislum í þangpollum og öðrum mó-
tívum í ótrúlega fjölbreyttri náttúru
Vestmannaeyja glöddu oft augu les-
enda Morgunblaðsins.
Áætlað er að mynda- og filmusafn
Sigurgeirs geymi 3-5 milljónir ljós-
mynda. Lítið brot af þessu gríðar-
stóra safni hefur verið skannað og
myndirnar skráðar með upplýsingum
um myndefnið. Félagið Sigurgeir
ljósmyndari ehf. var stofnað 2005 af
Sigurgeir og fjölskyldu hans í þeim
tilgangi að varðveita og skrá ljós-
myndasafnið. Myndir úr ljós-
myndasafninu eru aðgengilegar á
vefnum sigurgeir.is.
Frægasta ljósmyndin
Þekktasta ljósmynd Sigurgeirs var
tekin að kvöldi 1. desember 1963 þeg-
ar Surtseyjargosið hafði staðið í hálf-
an mánuð. Hún var valin fréttamynd
desembermánaðar 1963 hjá Associat-
ed Press (AP) fréttastofunni og síðar
var hún valin í hóp bestu frétta-
ljósmynda ársins 1963 hjá AP.
Sigurgeir kvaðst hafa farið með
Yasicha Mat 6x6 myndavél og þrífót
út á Breiðabakka þaðan sem vel sást
til gossins. Jakobína, kona Sigur-
geirs, og börnin þeirra voru með.
Risastór gosmökkurinn stóð upp úr
hafinu og í honum leiftruðu eldingar
milli himins og jarðar.
„Ég hafði ekki tekið mynd á tíma
fyrr en þarna,“ sagði Sigurgeir. Jak-
obína skráði ljósopið og tímasetn-
inguna á hverri mynd og hvað hún
var lýst lengi. „Það var frá einni mín-
útu og upp í fimmtán mínútur sem ég
var með vélina opna. Ég reyndi að
meta það hverju sinni eftir því hvað
eldingarnar voru sterkar hvað lengi
vélin þyrfti að vera opin svo eitthvað
kæmi fram í myndinni.“ Verðlauna-
myndin var tekin nákvæmlega klukk-
an 19.25.00 til klukkan 19.26.30. Sig-
urgeir sagði að enn þann dag í dag,
tæpum 50 árum síðar, sé óskað eftir
leyfi til að nota þessa víðfrægu mynd.
gudni@mbl.is
Surtseyjargosið
Víðförulasta ljósmynd Sigurgeirs var tekin að kvöldi 1. desember 1963, rúmlega hálfum mánuði eftir að
gosið hófst í Surtsey. Sigurgeiri tókst að fanga hrikalegan ljósagang í gosmekkinum. Myndin var valin
fréttamynd desember 1963 hjá Associated Press og ein af bestu fréttamyndum ársins 1963.
Litadýrð náttúrunnar
Fjölbreyttir litir og form í náttúrunni hafa orðið Sigurgeiri að yrkisefni.
Þörungagróður í sjávarhellum og þang í pollum geta verið litskrúðug.
Fiskverkakona
Guðrún Þórðardóttir var þekktur borgari í Eyjum.
Hún bjó í Framnesi við Vesturveg og vann í fiski.
Aflahrota í Vestmannaeyjum
Þegar allar þrær og fiskmóttökur voru orðnar fullar var aflanum keyrt út á
Heimaey. Hér þekur loðna 16. braut á golfvellinum.
Sigurgeir var valinn bæjarlista-
maður Vestmannaeyja 2006.
Milljónir ljósmynda
Ljósmyndir | Sigurgeir Jónasson
Sigurgeir Jónasson ljósmyndari í Vestmannaeyjum og Morgunblaðið
hafa lengi átt samleið. Hann hefur myndað eldgos og eyjalíf, sjómenn
og fiskverkakonur og ótrúlega fjölbreytni náttúru Vestmannaeyja.