Morgunblaðið - 19.04.2014, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014
Óháð ráðgjöf
til fyrirtækja
Firma Consulting gerir fyrirtækjum
tilboð í eftirfarandi þjónustu:
• Kaup, sala og sameining.
• Verðmat fyrirtækja.
• Samningaviðræður, samningagerð
• Áætlanagerð.
• Fjárhagsleg endurskipulagning.
• Samningar við banka.
• Rekstrarráðgjöf.
Firma Consulting, Þingasel 10, 109 Reykjavík.
Símar: 820-8800 og 896-6665. Fax 557-7766
info@firmaconsulting.is, www.firmaconsulting.is
Gjaldkeri Sóma, starfsmannafélags
Alcoa Fjarðaáls, hefur verið kærður
til lögreglu en grunur leikur á að
hann hafi dregið sér fjármuni úr sjóð-
um félagsins. Dagmar Ýr Stefáns-
dóttir, upplýsingafulltrúi Fjarðaáls,
staðfesti í samtali við mbl.is að gjald-
kerinn hefði verið kærður til lög-
reglu. Hún sagði að starfsmanninum
hefði verið vikið úr störfum hjá
Fjarðaáli meðan rannsókn stæði yfir.
Hún sagði að málið hefði komið upp
við gerð ársreiknings.
Dagmar vildi ekki segja hversu há-
ar upphæðir væri um að ræða, en
sagðist reikna með að það skýrðist
fljótlega.
Austurfrétt.is segist hafa heimildir
fyrir því að milljónir króna hafi horf-
ið úr sjóðum starfsmannafélagsins.
Grunur um fjárdrátt
í starfsmannafélagi
Lögreglan á höf-
uðborgarsvæð-
inu hafði í nógu
að snúast aðfara-
nótt föstudagsins
langa. Sex öku-
menn voru stöðv-
aðir víðs vegar
um borgina
vegna gruns um akstur undir áhrif-
um ölvunar eða fíkniefna. A.m.k.
einn þeirra olli umferðaróhappi.
Flestum var sleppt að lokinni
skýrslutöku.
Um nóttina var maður handtek-
inn vegna gruns um líkamsárás.
Fórnarlambið var flutt á slysadeild
að sögn lögreglu, en ekki fengust
upplýsingar um hversu alvarleg
meiðslin voru. Síðar um nóttina var
tilkynnt um rúðubrot, innbrot í fyr-
irtæki og tvö útköll voru að kvöldi
skírdags vegna elds í heimahúsi og
skúr, hvort tveggja minniháttar.
Erill hjá lögreglu í
aðdraganda páska
Lítilsháttar gassprenging varð í
líkamsræktarstöðinni World Class í
Laugum í gær. Sprengingin varð
þegar starfsmaður ætlaði að
kveikja upp í arni á spa-svæði lík-
amsræktarstöðvarinnar en arinn-
inn gengur fyrir gasi. Að sögn
slökkviliðs var einn starfsmaður
sendur á spítala með minniháttar
brunasár.
Hlaut brunasár
í gassprengingu
Reykjavíkur. Ármann Kr. Ólafsson,
bæjarstjóri Kópavogs, segir
skemmdarverk á biðskýlum bæjar-
ins ekki hafa verið stórt vandamál í
bænum. „Við látum skemmdir á
eignum bæjarins ekki óáreittar því
það ýtir undir frekari skemmdar-
verkastarfsemi,“ segir Ármann en
með þeim hætti hefur tekist að
sporna við frekari skemmdum á
biðskýlum og öðrum eignum bæj-
arins. „Auðvitað koma upp einstaka
vandamál við fjölförnustu leiðirnar
okkar en við höfum lagt okkur fram
við að laga allar skemmdir jafn óð-
um og þannig dregið úr frekari
skemmdarverkarstarfsemi.“
Skemmdarverk á skýlum
Strætó aldrei verið meiri
Morgunblaðið/Golli
Strætóskýli Hlaupið framhjá strætóskýli sem fengið hefur að kenna á því hjá skemmdarvörgum.
Júlía
Þorvaldsdóttir
Ármann Kr.
Ólafsson
Hrina í gangi, segir sviðsstjóri hjá Strætó Kostnaður liggur ekki fyrir
SVIÐSLJÓS
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Spellvirki á biðskýlum og biðstöðv-
artöflum strætó hefur færst í
aukana á undanförnum misserum,
að sögn Júlíu Þorvaldsdóttur, sviðs-
stjóra farþegaþjónustusviðs Strætó
bs. „Það er einstaklega dapurlegt
að verða vitni að þessu og nú virðist
vera einhvers konar hrina í gangi
þar sem skemmdir eru unnar með
kroti og öðrum hætti á eignum
sveitarfélaganna svo stórsér á,“
segir Júlía. Kostnaður vegna eigna-
spjalla á biðskýlum borgarinnar
liggur ekki fyrir en ljóst er að hann
er töluverður þar sem ástandið hef-
ur aldrei verið verra að sögn Júlíu.
„Við gerum ekki samanburð milli
ára en starfsmenn sem annast hafa
biðskýlin í fjölda ára hjá okkur full-
vissa mig um að ástandið hafi aldrei
verið verra.“
Mestar skemmdir miðsvæðis
Ekkert hverfi borgarinnar hefur
sloppið undan skemmdarverkastarf-
seminni en Miðborgin hefur orðið
hvað mest fyrir barðinu á skemmd-
arverkum en þar eru stórar skipti-
stöðvar sem fjöldi fólks fer um á
hverjum degi. „Fámennari leiðir inn
í úthverfum verða síður fyrir
skemmdarverkum en þau sleppa þó
ekki alveg og skýli eru skemmd í
úthverfum eins og annars staðar,“
segir Júlía en verið er að krassa á
biðskýlin með spreybrúsum og
málningu og brjóta gler í þeim og
skemma tímatöflur. „Við reynum að
laga skýlin um leið og skemmdir
eru unnar því það hefur sýnt sig að
fólk skemmir síður hrein og falleg
skýli. Um leið og einn skemmd-
arvargur krotar líta aðrir á það sem
leyfi til að skemma skýlið enn frek-
ar. Við höfum því miður ekki
mannafla til að lagfæra öll skýli um
leið.“
Umgengnin betri í Kópavogi
Kópavogsbær er næststærsta
sveitarfélag landsins og nágranni
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í
Garðabæ, segir eignaspjöll á bið-
skýlum og biðstöðvartöflum ekki
vera stórt vandamál í bænum.
„Auðvitað er þetta vandamál sem
hverfur aldrei en það er ekki mikið
um skemmdarverk hjá okkur í
dag,“ segir Gunnar en hann segir
bæinn lýsa vel upp opinber svæði
og íbúar bæjarins séu duglegir að
tilkynna strax skemmdarverk sem
þeir verða varir við. „Krot kallar á
meira krot og þess vegna höfum
við haft svo kallað „zero-
tolerance“ fyrir öllum eignaspjöll-
um. Það er fólgið í því að við
hreinsum og lagfærum skemmdir á
biðskýlum strax. Eignaspjöll og
skemmdir mega aldrei standa óá-
reitt.“ Mikill metnaður er lagður í
skólakerfið í Garðabæ og telur
Gunnar það ekki síst geta útskýrt
fækkun á
skemmdum í
bænum. „Sá
sem skemmir
meðvitað er að
tjá einhverja
reiði eða
óánægju og
eitthvað hefur
þá brugðist.
Eftir því sem
við höldum bet-
ur utan um unga fólkið ætti svona
hegðun að minnka.“
Gott viðhald og eftirlit, samstarf
við íbúa, skólakerfið og ekki síst
snyrtilegt og fallegt umhverfi helst
allt saman í hendur við að draga úr
skemmdarverkum að sögn Gunn-
ars. „Við viljum að bærinn sé sá
snyrtilegasti á landinu en þá þarf
margt að haldast í hendur.“
Krot kallar á meira krot
BETRI LÍÐAN Í SNYRTILEGUM GARÐABÆ
Gunnar
Einarsson
Táp og fjör var á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður
á Ísafirði í gærkvöldi. Þá var hátíðin sett í ellefta sinn,
að viðstöddu fjölmenni. Á setningarathöfninni, sem fór
fram í skemmu Gámafélagsins í Grænagarði, hlýddu
gestir á fjölda tónlistarmanna sem munu láta ljós sitt
skína á hátíðinni. Stjörnurnar létu þó aðeins bíða eftir
sér vegna tafa í flugi vestur. Menn létu það þó ekki
aftra sér og tónlistarmennirnir að sunnan komu flestir
í rútuferð vestur. Hátíðinni lýkur í kvöld en þar koma
m.a. fram hljómsveitirnar Grísalappalísa, Hjaltalín,
Mammút, Retro Stefsson, Hermigervill, Kaleo og High-
lands. Fjöldi fólks er einnig á skíðavikunni á Ísafirði.
Stjörnurnar létu bíða eftir sér
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Fjölmenni á Ísafirði á rokkhátíð og skíðaviku