Morgunblaðið - 19.04.2014, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.04.2014, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014 Gleðilega páska Kringlunni 4 Sími 568 4900 VIÐTAL Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðár- króki dvelur nú „ríkasta amman“ á Íslandi, Elísabet Stefánsdóttir, 96 ára, kennd við Gil í Borgarsveit. Hún á langflesta afkomendur á lífi, eða 154 að tölu, og hefur engan misst nema eiginmann sinn, Skarphéðin Pálsson, bónda og smið á Gili, sem lést árið 1978. Samkvæmt upplýsingum frá Ís- lendingabók er fjöldi afkomenda nú 133 hjá þeim sem næstur kemur á eftir Elísabetu. Saman eignuðust þau Elísabet og Skarphéðinn 12 börn, þar af átta dæt- ur og fjóra syni, en fyrir átti hann sex börn með Kristínu Björnsdóttur. Séu afkomendur þeirra taldir með þá eru Gilsararnir, sem gjarnan eru kallaðir svo, orðnir 272. Ömmubörn Elísabet- ar eru 45, langömmubörnin 89 og langalangömmubörnin 8. Ætlaði bara að eignast eitt Elísabet fæddist að bænum Skuggabjörgum í Deildardal í Skaga- firði 27. mars 1918, eða undir lok frostavetrarins mikla. Hún fagnaði því 96 ára afmæli sínu á dögunum. Foreldrar hennar voru Stefán Jón Sigurjónsson og Arnfríður Guðrún Sveinsdóttir. Elísabet ólst upp á Skuggabjörgum með fimm bræðrum, næstyngst systkinanna. Hún á einn bróður á lífi, Þorstein, en látnir eru Óskar, Sveinn, Gunnar og Sigurjón. „Ég þurfti stundum að elta bræður mína til að fá þá til að leika við mig, þeir voru ekki alltaf til í að hafa mig í eftirdragi,“ segir hún og hlær. Elísa- bet gekk fljótlega í öll störf eins og al- siða var í þá daga. Hún segist hafa haft yndi af hestum. „Það voru engir bílar í þá daga, þá fór maður um allt gangandi eða á hestum,“ segir Elísabet og rifjar upp þegar hún var á fermingaraldri að hún fékk taminn hest frá bónda á næsta bæ. „Hann setti það sem skilyrði að enginn skyldi fá að nota þennan hest nema ég. Honum fannst ég fljót í förum en ég var oft í því að sækja hesta fyrir pabba.“ Í orðsins fyllstu merkingu gekk El- ísabet í barnaskólann í Hlíðarhúsinu í Óslandshlíð, sem er í nokkurra kíló- metra fjarlægð frá Skuggabjörgum. „Mér var aldrei fylgt, labbaði þetta bara ein. Þegar snjórinn kom var gott að geta gengið á skíðum í skólann. Þetta tíðkast ekki lengur, nú er öllum krökkum keyrt í skólann upp að dyr- um.“ Elísabet lærði snemma að sauma og prjóna og var dugleg að sækja saumanámskeið. Hún segist hafa alist upp við að nýta alla hluti mjög vel en á heimilinu var prjónaefni og fatn- aður af skornum skammti. Þá varð að gera við fötin og jafnvel snúa þeim við til að nýta þau sem best. Saumaskap- urinn kom sér vel síðar meir þegar þurfti að sauma föt á öll börnin. En sem stelpa í sveitinni ætlaði hún reyndar bara að eignast eitt barn, verða búðarkona og fín frú í kaup- stað! Elísabet kynntist Skarphéðni í Deildardal er hann vann sem smiður á bænum Kambi. Það var síðan dans- leikur á Hofsósi sem kom þeim end- anlega saman. „Skarphéðinn var af- skaplega flinkur dansari og hafði gaman af því að dansa. Við vorum eitthvað búin að kynnast áður,“ segir Elísabet en þau Skarphéðinn eign- uðust sitt fyrsta barn 1943, þá var hún 25 ára gömul. Ári seinna hófu þau búskap á Gili, skammt sunnan Sauðárkróks, og börnunum fjölgaði jafnt og þétt. Árið 1962 voru þau orð- in 12 að tölu og að auki ól Elísabet upp eitt af börnum Skarphéðins af fyrra hjónabandi. Bættu við börnum í sveit Eins og barnaskarinn hafi ekki verið nægur á heimilinu þá segir El- ísabet það hafa þótt sjálfsagt að taka líka börn í sveit á sumrin. „Okkur fannst ekki muna um að bæta við fleiri krökkum,“ segir hún en þegar mest var voru á þriðja tug manna í heimili á Gili. Vinnudagur Elísabetar var því langur og það varð að beita góðu skipulagi og aga. Aldrei þurfti hún að byrsta sig við börnin, þau einfaldlega hlýddu foreldrum sín- um. Hún viðurkennir að stundum hafi heimilisstörfin verið erfið, þegar vaknað var eldsnemma til að fara í fjósið og síðasta verk á kvöldin var að sauma föt og hnoða í deig til að baka daginn eftir. „Það var ekkert í boði að gefast upp, maður vann bara þau verk sem þurfti að vinna,“ segir hún en stundum var hörgull á aðföngum, eins og kringum 1950 þegar ríkti inn- flutningsbann og víða þröngt í búi. Þurfti Elísabet til dæmis að beita út- sjónarsemi til að útvega efni í bleiur um haustið 1950, þá með nýfæddan son. „Á skömmtunarárunum fékk maður kannski eina flík í kaupfélag- inu eða eitt skópar. Þetta gerði mað- ur sér að góðu.“ Skarphéðinn vann oft utan heim- ilisins við smíðar og akstur og bú- störfin lentu því meira á Elísabetu og krökkunum, þegar þau höfðu aldur og krafta til. Eitt sinn var Guð- mundur Andrésson dýralæknir, Gvendur dýri eins og hann var kall- aður, fenginn í Gil en ein kýrin var þá veik. Þegar Gvendur mætti og sá El- ísabetu og dætur hennar á hlaðinu sagði hann: „Hva, ég veit ekki til hvers var verið að sækja mig, hér er ekkert nema kvenfólk heima.“ Hann fór þó að huga að kúnni og fékk við það aðstoð frá heimasætunum. Að verki loknu sagði Gvendur við Elísa- betu: „Mikið ansvíti áttu sterkar dæt- ur!“ Hlutir hurfu á heimilinu Elísabet segir enga sérstaka skýr- ingu hafa á öllu barnaláninu, þetta sé einfaldlega guðsgjöf sem beri að þakka fyrir. Aðspurð segist hún vera trúuð og útilokar heldur ekki að sér fylgi einhverjar góðar vættir. „Það hurfu stundum hlutir á heimilinu sem ég hafði aldrei neina skýringu á. Einu sinni prjónaði ég peysu fyrir jólin og setti hana síðan inn í skáp til að geyma hana þar til jóla. Þegar komið var að jólum ætlaði ég að sækja peys- una en þá var hún ekki þar. Ég leitaði svosem ekki mikið og hugsaði ekki meira út í þetta. Löngu seinna sat ég á stól á ganginum heima og það er hvíslað að mér: Opnaðu skápinn! Ég stóð upp og opnaði skápinn, þá datt peysan í fangið á mér,“ segir Elísabet Var ekki í boði að gefast upp  Elísabet Stefánsdóttir á Sauðárkróki, 96 ára, á flesta afkomendur á lífi í dag, eða 154  Hefur eng- an misst nema eiginmanninn  Áttu saman 12 börn og hann átti 6 áður  Gilsarar orðnir 272 að tölu Systkinin Börn Elísabetar Stefánsdóttur og Skarphéðins Pálssonar á 95 ára afmæli hennar í fyrra. Frá vinstri í efri röð: Hafdís, Sigurbjörn, Stefán, Sóley, Símon, Sigurjóna, Alda og Elísabet. Frá vinstri í neðri röð: Pálína, Sigríður Kristín, dóttir Kristínar en alin upp á Gili, síðan afmælisbarnið Elísabet, Guðrún og Þuríður. Á myndina vantar yngsta soninn, Svein, og börn Skarphéðins og Kristínar, þau Steinar og Höllu. Látnir eru þeir Ásbjörn, Páll og Gunnar. Síðasta met yfir fjölda afkomenda á lífi átti Stella Stefánsdóttir á Akureyri, eða 190, en hún lést í lok janúar sl., 90 ára að aldri. Svo skemmtilega vill til að þær Elísabet á Gili tengjast með þeim hætti að eiga sameiginlega fjögur langömmubörn. Það er því ekkert smáríkidæmi sem þau börn hafa búið við. Talið er að Ragnheiður Halldórsdóttir hafi átt allra flesta afkomendur er hún féll frá, eða 263 ár- ið 1962. Þá var Ragnheiður orðin 86 ára. Við hana er kennd svonefnd Bæjarætt. Fjögur börn tengjast STELLA STEFÁNSDÓTTIR Á AKUREYRI ÁTTI METIÐ ÁÐUR Stella Stefánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.