Morgunblaðið - 19.04.2014, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.04.2014, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014 Verið er að huga að öðrum leiðum. Lítið sveitarfélag á Skaga, Skaga- byggð, hefur ráðist í það verkefni að leggja ljósleiðara um sveitina ásamt þrífasa rafmagni. Áætlað er að heild- arkostnaður verði um 80 milljónir sem svarar til 800 þúsund króna á hvert mannsbarn í sveitarfélaginu. Þennan kostnað greiðir sveitarfélagið en ætlar að reyna að ná einhverju til baka með samningum um kaupleigu á strengnum. Eitt skyldi yfir alla ganga Þeir sem tengst hafa ljósleið- aranum eru ánægðir og vilja ekki hverfa til fyrri tíma. „Þetta breytir ekki miklu fyrir þá sem horfa á eina sjónvarpsstöð og senda tölvupóst annað slagið. Lífið á heimilum og í fyrirtækjum sem nota netið meira og vilja hafa aðgang að fleiri sjónvarps- stöðvum í bestu gæðum hefur hins vegar breyst,“ segir Gunnar Örn Marteinsson í Steinsholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Hann tók þátt í að ljósleiðaravæða sveitarfélagið þegar hann var í forystu sveitarstjórnar. „Mestu breytir þetta fyrir ferðaþjón- ustuna og fólk sem vinnur bókhald og önnur störf í fjarvinnu og þarf að hlaða upp eða senda mikið gagna- magn,“ segir Gunnar. „Það var neyðarbrauð að gera þetta og kemur eingöngu til af því hvað þjónusta við landsbyggðina er léleg. Þetta er svo mikilvægur þáttur í lífi fólks í dag að okkur fannst nauð- synlegt að gera þetta sjálfir,“ segir Gunnar Örn. Sveitarfélagið greiddi reikninginn, stofnaði eigið fjarskipta- félag um ljósleiðarann og samdi þannig við símafélögin að notend- urnir geti valið við hvaða félag þeir skipta. Ljósleiðarinn var lagður á alla bæi sveitarfélagsins, líka þangað sem það var ekki hagkvæmt fjárhagslega. „Eitt skyldi yfir alla ganga,“ segir Gunnar. Sveitarfélagið gat gert þetta án þess að setja sig í klemmu fjár- hagslega. Póst- og fjarskiptastofnun er að uppfæra reglur um svokallaða al- þjónustu við almenna fjar- skiptakerfið. Snýst hún um skiptingu kostnaðar á milli notanda og fjar- skiptafyr- irtækis. Vegna þess hversu dýrt er að leggja ljós- leiðara í dreifbýli borgar sig ekki fyrir Mílu eða önnur ljósleið- arafyrirtæki að fara af stað. Talið er að 6% landsmanna búi á svæðum þar sem markaðs- brestur kemur í veg fyrir upp- byggingu símafyrirtækja á að- gangsneti. Í umræðuskjali PFS er gert ráð fyrir að minnka þær kvaðir sem lagðar eru á símafyrirtækið. Heimilt verði að leggja á notand- ann kostnað sem fer yfir 500 þúsund kr. við tengingu, í stað 650 þúsund kr. Þó er hámark heimtaugagjaldsins 300 þúsund kr. Óleyst er hvernig á að greiða það sem umfram er en rætt um kröfur sem gerða þarf þeirra sem standa í framkvæmdum um útboð og tæknileg mál til þess að jöfnunarsjóður á vegum ríkis- ins komi þar inn í. Óvíst er hvaða fjármagn hann hefur til skipt- anna. Dregið úr kvöðum ÞJÓNUSTUKRAFA UPPFÆRÐ Hrafnkell V. Gísla- son forstjóri PFS. Mjúkar sumarg jafir TM UMBOÐSAÐILI: www.danco.is Sölustaðir: Fjarðarkaup, Vínberið, Bókabúð Máls og menningar, Fríhöfnin, helstu apótek og verslanir um land allt. Safnaðu þeim öll um! „Við gerum þetta af illri nauðsyn. Það virðist engin von um úrbætur, hvorki af hálfu hins opinbera né símafyrir- tækjanna,“ segir Steinþór Vigfússon, hótelstjóri á Hót- el Dyrhólaey í Mýrdal. Hann er einn forsvarsmanna fé- lagsins Lífs í Mýrdal sem leggur ljósleiðara um dreifbýli sveitarfélagsins. Hann segir að erfitt sé að reka ferðaþjónustufyrir- tæki í dag nema geta boðið upp á gott netsamband á öllum herbergjum. Sú þjónusta sem nú sé í boði full- nægi ekki þeim kröfum. Forsvarsmenn nokkurra ferðaþjónustufyrirtækja könnuðu áhuga fólks í sveitinni og niðurstaðan var að ráðast í að leggja ljósleiðara. Er verið að plægja hann í jörðu og er stefnt að tengingu í byrjun júní. Mýrdals- hreppur og tvö búnaðarfélög leggja fram hlutafé auk fyrirtækja og einstaklinga. Mikil þátttaka er í verkefn- inu þótt greiða þurfi 300 þúsund króna tengigjald, auk virðisaukaskatts. Auk bættra fjarskipta eiga heimili og fyrirtæki kost á að ná háskerpusjónvarpi. Sumir bænd- ur leggja ljósleiðara í útihús til að geta verið vel tengdir við vinnuna og bætt eftirlit með skepnunum og sparað sporin, til dæmis á sauðburði. „Við leggjum upp með að þjónustan verði sambæri- leg við það sem best gerist. Á þeim bæjum sem tengj- ast er hægt að vera með hvaða starfsemi sem er.“ Samið hefur verið við Vodafone um þjónustuna. Virðist engin von um úrbætur ÍBÚAR Í SVEITINNI TÓKU MÁLIN Í SÍNAR HENDUR Í MÝRDAL Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Ljós Ingólfur Bruun miðlar Mýrdælingum af reynslu sinni frá því hann stóð fyrir ljósleiðaravæðingu Öræfa- sveitar fyrir nokkrum árum. Hann dregur ljósleiðararör inn í bæinn Steig í Mýrdal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.