Morgunblaðið - 19.04.2014, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 19.04.2014, Blaðsíða 21
en hún varð oft vör við að einhver væri að fylgjast með sér. Hefur hún verið mjög berdreymin og stundum getað sagt fyrir um hver kæmi í heimsókn eða hringdi. „Ég er ekki í nokkrum vafa um að mér hefur oft verið hjálpað, þegar erfiðleikar hafa steðjað að.“ Stutt er síðan Elísabet fór til dval- ar á Heilbrigðisstofnuninni en hún fer enn reglulega heim til sín á Hólmagrundina á Króknum þar sem fjölskyldan hittist og drekkur kaffi saman. Þar stofnuðu þau Skarphéð- inn heimili árið 1972, eftir að þau brugðu búi á Gili. Eftir að hafa komið upp öllum barnaskaranum var Elísa- bet útivinnandi um nokkurra ára skeið, eða til ársins 1988. Lengst af starfaði hún á saumastofunni Vöku en einnig á sláturhúsi kaupfélagsins. Ekkert barnanna skilið Afkomendur Skarphéðins eru margir hverjir búsettir í Skagafirði eða annars staðar á Norðurlandi. Einhverjir hafa komið sér fyrir á suðvesturhorninu og aðrir á Norð- urlöndunum. Fjölskyldan öll er mjög samhent og hafa Gilsararnir komið saman á hverju sumri í Skagafirði nokkur undanfarin ár. Alltaf hefur Elísabet mætt til að eiga glaðan dag með sínu fólki. Til marks um sam- heldnina þá hefur ekkert barna El- ísabetar sagt skilið við sinn maka, hjónaböndin halda enn eftir áratuga sambúð! Elísabet er vel ern og segist við ágæta heilsu, les bækur og blöð og prjónar sokka í gríð og erg. Í fyrra, þá 95 ára að aldri, tók hún uppá því að læra skrautmálun, þar sem hún málar á keramikmuni margskonar. Getur blaðamaður vitnað um að munirnir eru listilega vel málaðir og vandaðir. „Ég verð að hafa eitthvað fyrir stafni og get ekki hugsað mér að gera ekki neitt,“ segir Elísabet en það er einnig nokkur starfi að fylgjast með öllum af- komendunum; afmælum þeirra og tímamótum. Um jólin rignir inn kveðj- um og pökkum og þetta árið eru sex fermingar í ættinni. Elísabet heldur skrá yfir sína afkomendur en nýjasti meðlimurinn, sá 154. í röðinni, kom í heiminn í lok febrúar sl. Og þeir eiga eftir að verða fleiri, svo mikið er víst, því von er á þeim 155. á næstu vikum. Fjölskylda Elísabet og Skarphéðinn Pálsson (sitjandi fyrir miðju) með börnum sínum og barnabörnum árið 1966. Síðan þá hefur fjölgað verulega í hópnum. Faðir Elísabetar, Stefán Jón Sigurjónsson, er við hlið Skarphéðins. Morgunblaðið/Björn Jóhann Ríkust Elísabet Stefánsdóttir með einn platta af mörgum sem hún hefur skreytt í tómstundastarfi sínu á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki. FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.