Morgunblaðið - 19.04.2014, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014
Yfirleitt höfum við fjölskyldan farið á skíði á heimaslóðir okkarnorður á Akureyri um páskana, en nú verðum við heima.Páskanir fara líklega í að grisja tré í garðinum og svo verður
tekin góð rispa við tiltekt á háaloftinu. Jú, og síðan verður eitthvað
gott matbúið og tappinn tekinn úr bestu rauðvínsflöskunni sem til er í
rekkanum,“ segir Þór Freysson hjá Stórveldinu sem er 52 ára í dag.
Þór hefur starfað við sjónvarp í áratugi. Hóf ferilinn á Stöð 2 árið
1987 og var tökumaður, útsendingarstjóri og fleira. Hann starfaði hjá
Saga Film 2005 til 2013 og flutti sig á síðasta ári til Stórveld-isins.
Fyrirtækið framleiðir efni fyrir sjónvarpsstöðvarnar Bravó og Mikla-
garð, en járnin í eldinum eru fleiri. Til að mynda sáu Stórveldismenn
um framleiðslu fyrir RÚV á Ferðastiklum feðginanna Láru og Ómars
Ragnarssonar, en annar þátturinn í þeirri syrpu verður sendur út á
morgun. „Þetta er eitt skemmtilegasta sjónvarpsverkefni sem ég hef
tekið þátt í. Það er gaman að ferðast um landið í efnisöflun. Oft
gleymist hreinlega að maður er að vinna en ekki í leik,“ segir Þór og
bætir við að þetta samtvinnist áhugamálum sínum að nokkru. Sömu-
leiðis þyki sér fluguveiðin frábær og að fara á skíði sé skemmtilegt
sport. „Stóra ánægjuefnið er þó að vera með fjölskyldunni,“ segir Þór
sem er kvæntur Halldóru Jakobsdóttur og eiga þau þrjú börn.
sbs@mbl.is
Þór Freysson er 52 ára í dag
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sjónvarp „Það er gaman að ferðast um landið í efnisöflun. Oft
gleymist hreinlega að maður er að vinna,“ segir Þór Freysson.
Í Ferðastiklunum
hjá Stórveldinu
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Ernir fæddist 25. júní kl.
3.28. Hann vó 2.730 g og var 47 cm
langur. Foreldrar hans eru Helga Árna-
dóttir og Arngrímur Stefánsson.
Nýir borgarar
Vestmannaeyjar Þorbjörg Unnur
fæddist 12. júní kl. 4.14. Hún vó 3.800
g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar
eru Sólveig Sverrisdóttir og Birkir
Karlsson.
U
nnar fæddist í Nes-
kaupstað 20.4. 1934 en
ólst upp í Hveragerði
frá tveggja ára aldri.
Hann var í barnaskól-
anum í Hveragerði, lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á Laug-
arvatni 1954 og viðskiptafræðiprófi
frá HÍ 1959:
„Við voru tíu talsins í þessum
fyrsta stúdentsárgangi frá Laugar-
vatni. Þetta var skemmtilegur og
samheldinn hópur.
Fyrsti skólameistarinn á Laugar-
vatni var Sveinn Þórðarson frá
Kleppi og þar voru afbragðskenn-
arar á borð við Ólaf Briem og Har-
ald Matthíasson.“
Unnar var blaðamaður við Al-
þýðublaðið á sumrin, samhliða námi.
Unnar Stefánsson, fyrrv. ritstjóri Sveitarstjórnarmála – 80 ára
Fjölskyldan Unnar og María með börnunum sínum þremur, tengdabörnum og barnabörnunum tíu.
Sáttasemjari höfuðborg-
arsvæðis og landsbyggðar
Nafnarnir Unnar með nafna sínum og dóttursyni, Sveinbjarnarsyni.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is