Morgunblaðið - 19.04.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014
Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir
Sumar 2 22.maí - 1. júní
Alpafegurð&Arnarhreiður
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Salzburgerland í Austurríki og þjóðgarðurinn Berchtes-
gaden í Þýskalandi eru heillandi á þessum árstíma þar sem
allt er í blóma og Alpafjöllin skarta sínu fegursta.
Farið verður t.d. að Arnarhreiðri Hitlers, Königsee
vatninu og til tónlistarborgarinnar Salzburg.
Verð: 219.600 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
eh
f.
Fréttir af versnandi stöðu sjávar-útvegsins, lækkun framlegðar
um 20-50% að mati framkvæmda-
stjóra LÍÚ, eru mikið áhyggjuefni
og hljóta að verða meðal þess sem
haft verður til hliðsjónar við ákvörð-
un um sérstaka skatta á greinina og
stjórnkerfi fiskveiða almennt.
Rekstur sjávarútvegsins hefurverið öflugur á nýliðnum ár-
um, sem varð til þess að greinin hef-
ur komist ótrúlega vel í gegnum
þann skell sem fylgdi falli bankanna.
Greinin naut þess einnig að hafavegna kvótakerfisins tekið til í
rekstrinum næstu ár og áratugi á
undan. Hagkvæmni var því mun
meiri en ella hefði verið.
En svo fékk sjávarútvegurinn ásig mikla ágjöf þegar stjórn-
völd ákváðu á sama tíma að gera
viðamiklar breytingar á stjórnkerfi
fiskveiðanna og taka upp nýja
skatta af áður óþekktri stærðar-
gráðu.
Rökin voru meðal annars þau aðrekstur og ytri aðstæður væru
með besta móti. Ekki var á það
hlustað þegar bent var á að rekstur-
inn væri háður miklum sveiflum og
fyrirtækin þyrftu að fá að njóta
góðu áranna til að geta tekist á við
þau mögru.
Nauðsynlegt er, við þá endur-skoðun laga sem nú stendur
yfir, að tekið verði tillit til raunveru-
legra aðstæðna í rekstri sjávar-
útvegsins og gjaldtaka og starfsum-
hverfi að öðru leyti stillt þannig af
að sjávarútvegur geti áfram verið
grunnstoð byggðar hér á landi.
Versnandi staða
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 18.4., kl. 18.00
Reykjavík 1 snjóél
Bolungarvík 1 skýjað
Akureyri 4 skýjað
Nuuk -7 snjóél
Þórshöfn 9 skúrir
Ósló 11 heiðskírt
Kaupmannahöfn 10 skýjað
Stokkhólmur 11 léttskýjað
Helsinki 12 heiðskírt
Lúxemborg 11 heiðskírt
Brussel 11 léttskýjað
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 13 heiðskírt
London 12 léttskýjað
París 12 skýjað
Amsterdam 8 skýjað
Hamborg 7 skýjað
Berlín 11 léttskýjað
Vín 17 skýjað
Moskva 12 heiðskírt
Algarve 20 skýjað
Madríd 27 léttskýjað
Barcelona 18 léttskýjað
Mallorca 18 heiðskírt
Róm 17 léttskýjað
Aþena 15 skýjað
Winnipeg 3 léttskýjað
Montreal 6 alskýjað
New York 5 skýjað
Chicago 10 léttskýjað
Orlando 24 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:42 21:13
ÍSAFJÖRÐUR 5:36 21:29
SIGLUFJÖRÐUR 5:18 21:12
DJÚPIVOGUR 5:08 20:45
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík fyrir komandi sveitar-
stjórnarkosningar 31. maí vilja íbúa-
kosningu um framtíð innanlands-
flugvallar í Vatnsmýrinni.
Þetta kom fram á opnum fundi
frambjóðenda flokksins í Rimaskóla
í Grafarvogi á skírdag en þar voru
helstu stefnumálin kynnt.
Halldór Halldórsson, borgar-
stjóraefni Sjálfstæðisflokksins,
sagðist í samtali við mbl.is vilja
virkja einkaaðila til að auka framboð
á leiguhúsnæði í borginni.
Borgin virki einkaaðila
„Meirihlutinn hefur verið að ræða
þetta allt kjörtímabilið og er enn að
setja upp nefndir og tala um einhver
Reykjavíkurhús þar sem borgin á að
vera eignaraðili og rekstraraðili. Það
er dauðadæmt að okkar mati.
Borgin á auðvitað að reka sitt fé-
lagslega húsnæði en á að öðru leyti
ekki að koma nálægt þessu. Miklu
frekar á hún að segja: Hér eru lóð-
irnar, og setja svo ákveðin skilyrði
varðandi leigu og láta svo einkaaðila,
til dæmis stúdenta og einkafyrirtæki
sem eru í tengslum við markaðinn,
sjá um afganginn, því þau eru miklu
fljótari að þessu. Okkar hlutverk er
bara að ná niður lóðaverði, auka
lóðaframboð vegna þess að borgin
sjálf hefur verið að skapa þennan
vanda með því að skapa lóðaskort,“
sagði Halldór.
Efli íbúalýðræði í borginni
Þá sagði Halldór að flokkurinn
myndi beita sér fyrir því að íbúa-
kosningar yrðu haldnar í ríkari mæli
um stærri mál. Á þann hátt megi efla
íbúalýðræði í borginni. Var Reykja-
víkurflugvöllur nefndur sem dæmi.
Sjálfstæðismenn vilja að borgar-
búar fái að kjósa um tillögur þegar
nefnd um framtíð innanlandsflugs
skilar tillögum í haust. Þeir vilja ekki
að innanlandsflug fari til Keflavíkur.
Halldór vill einnig virkja einka-
framtakið í skólamálum. „Ég tel að
okkur geti tekist betur að opna
skólakerfið, veita skólunum meira
sjálfstæði og draga úr miðstýring-
unni. Það er í anda okkar frjálslynda
flokks að gefa fólki meira val.“
Af öðrum áherslum sem kynntar
voru í Rimaskóla má nefna bættar
samgöngur í úthverfum.
Kosið verði
um flugvöllinn
Sjálfstæðismenn kynna áherslurnar
Morgunblaðið/Ómar
Í Rimaskóla á skírdag Halldór Halldórsson, oddviti sjálfstæðismanna í
borginni, kynnir stefnuna ásamt öðrum borgarfulltrúum í Reykjavík.
Skörp skil milli sinumóa og ösku-
grárra og nagaðra hrosshaga í
brekkunum ofan við bæinn Núpa-
kot undir Eyjafjöllum, hafa vakið
athygli vegfarenda þar. Girðing
skilur þessi hólf að og þar sem
hrossin valsa um er aska úr eldgos-
inu fyrir fjórum árum áberandi. Á
friðaða svæðinu, sem er innar og
norðar, liggja hins vegar gul sinu-
grös yfir.
„Það hafa margir spurt hverju
þetta sæti,“ segir Pétur Freyr Pét-
ursson, bóndi í Núpakoti. Hann seg-
ir að nú sjáist gróðurnálar eystra.
Á dögum eins og í gær, í hlýindum
og rigningu, sé gróður fljótur að
taka við sér og brátt verði hlíðin öll
græn. sbs@mbl.is
Græn og skörp skil í brekkunni við Núpakot
Eyjafjöllin Andstæður í gróðri jarðarinnar.
Ljósmynd/Sigþór Sigurðsson