Morgunblaðið - 19.04.2014, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014
Fæst án lyfseðils.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun.
20% afsláttur Hver á skilið að fáumhverfisverðlaun
Norðurlandaráðs 2014?
Auglýst er eftir tilnefningum til
umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs.
Öllum er frjálst að skila inn tilnefningum
fyrir 23. apríl 2014. Verðlaunin verða
veitt norrænu sveitarfélagi, borg eða
staðbundnu samfélagi fyrir framlag
til umhverfismála.
Allar nánari upplýsingar á norden.org
Auður Albertsdóttir
audura@mbl.is
Hrafnhildur Árnadóttir hófnám við Söngskólann íReykjavík árið 2004 oglærði þar söng hjá Dóru
Reyndal. Hrafnhildur lauk burtfar-
arprófi þaðan árið 2009 og lá þaðan
leiðin til Hollands. Þar hóf hún nám
hjá Valerie Guillorit við Konserva-
toríið í Amsterdam en þaðan lauk
hún bachelor-prófi árið 2013. Býr
hún þar enn og gegnir nú stöðu við
Hollensku óperuakademíuna.
Meðal þess sem er á döfinni hjá
Hrafnhildi er þátttaka í Grachten-
festival í Amsterdam þar sem hún
mun syngja aðalhlutverkið í óperu
eftir Othmar Schoek. Einnig mun
hún syngja hlutverk Greifynjunnar í
Brúðkaupi Fígarós í næstu upp-
færslu Hollensku óperuakademí-
unnar. Í næsta mánuði stendur þó
mikið til þar sem Hrafnhildur mun
taka þátt í alþjóðlegri tónlistar-
keppni sem haldin er í Brussel í
Belgíu á hverju ári.
„Keppnin er kennd við Elísa-
betu Belgíudrottningu og er hún
haldin á hverju ári. Þó er hún haldin
þriðja hvert ár fyrir söngvara en hin
árin fyrir píanóleikara og fiðluleik-
ara,“ segir Hrafnhildur blaðamanni.
Keppnin fer fram í þremur lotum og
tekur hún tvær vikur. Nú er búið að
velja 73 keppendur úr hópi þeirra
214 sem sóttu um að taka þátt. Er
Hrafnhildur eini Íslendingurinn í
keppninni og eini Norðurlandabúinn
ef út í það er farið.
Tilbúin með tuttugu titla
„Fyrsta umferðin hefst 14. maí
en ég þarf að fara til Brussel 11. maí
til að draga um sæti í umferðinni,“
segir Hrafnhildur sem bætir við að
dagskráin sem hún er að undirbúa
fyrir keppnina samanstandi af 20
titlum, bæði aríum og sönglögum. „Í
fyrstu umferð mun ég syngja tvær
aríur en ef ég kemst áfram þá þarf
ég að hafa tvær mismunandi dag-
skrár tilbúnar, sem eru hálftími að
lengd hvor. Það má því segja að ég
þarf að undirbúa tvenna hálftíma
langa tónleika. Ef ég kemst áfram í
undanúrslitin fæ ég að vita daginn
áður hvora dagskrána dómnefndin
vill heyra.“
Syngur til sigurs í
alþjóðlegri keppni
Hrafnhildur Árnadóttir er ung söngkona sem er búsett í Amsterdam í Hollandi.
Í næsta mánuði tekur hún þátt í virtri alþjóðlegri tónlistarkeppni í Belgíu
sem kennd er við Elísabetu Belgíudrottningu. Keppnin er mjög krefjandi
og þarf Hrafnhildur að undirbúa tuttugu söngtitla til að syngja fyrir dómarana.
Ljósmynd/Álfheiður Erla Guðmundsdóttir
Söngur Hrafnhildur Árnadóttir hefur komið víða við heimi söngsins.
Tónleikar Hrafnhildur hóf söngnám sitt í Söngskólanum í Reykjavík.
Aldrei fór ég suður, rokkhátíð alþýð-
unnar, fer fram núna um páskahelg-
ina á Ísafirði. Í ár á hátíðin 10 ára
afmæli og verður mikið um dýrðir. Á
vef hátíðarinnar má fræðast um
Aldrei fór ég suður, dagskrá hennar
og sögu. Hátíðin er sannkölluð hátíð
fólksins enda er öll vinna við hana
unnin af sjálfboðaliðum og frítt
verður inn eins og fyrri ár. Mörg fyr-
irtæki styrkja hátíðina til að gera
aðstandendum kleift að sleppa
gestum við aðgangseyrinn og allir
tónlistarmenn sem koma fram gefa
vinnu sína. Á síðunni má einnig
nálgast aðgang að vefmyndavél þar
sem hægt verður að fylgjast með
hátíðinni. Vefsíðan býður einnig
uppá ýmsar upplýsingar um Ísa-
fjörð, hvernig best sé að komast
þangað, þjónustu þar og gistingu.
Aldrei fór ég suður hófst í gær-
kvöldi og heldur áfram í kvöld.
Vefsíðan www.aldrei.is
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Tónlistarhátíð Tónlistarmaðurinn Mugison á hátíðinni á Ísafirði á seinasta ári.
Rokkhátíð alþýðunnar í beinni
Mótorhjólasafn Íslands verður opið
alla páskana frá klukkan 14 til 16.
Þar er að finna skemmtilegt safn
bifhjóla sem ungum og öldnum finnst
spennandi að skoða. Safnið er til
húsa á Krókeyri 2 á Akureyri, rétt inn-
an við Skautahöllina. Mótorhjóla-
safnið var stofnað 20. des árið 2007
til minningar um Heiðar Þ. Jóhanns-
son sem lést í bifhjólaslysi árið 2006.
Í dag á safnið nálægt 50 mótorhjól
og mikið magn af hjólatengdum mun-
um og ljósmyndum sem spanna alla
sögu mótorhjólsins á Íslandi. Safnið
er því kjörið fyrir allt áhugafólk um
bifhjól og sögu þeirra hér á landi.
Endilega...
...skoðaðu Mótor-
hjólasafnið
Morgunblaðið/Sverrir
Hjól Safnið býr að 50 mótórhjólum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.