Morgunblaðið - 19.04.2014, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014
DAGSKRÁ:
12:30 Afhending gagna
12:50 Formaður LF
13:00 Ávarp
Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra
fiskeldismála.
13:10 Staða, útflutningsverðmæti og framtíðarsýn
í fiskeldi
Guðbergur Rúnarsson, framkvæmdastjóri LF.
13:20 Bleikir fiskar – ofurfæða
Friðrika Hjördís Geirsdóttir, fjölmiðlakona.
13:40 Áhrif fiskeldis á samfélagið á sunnanverðum
Vestfjörðum
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar.
13:55 Áhrif laxeldis á færeyskt samfélag og hvaða
þýðingu getur fiskeldi haft á íslenskt atvinnulíf
í dreifbýli?
Stefan í Skoruni hjá Havbúnaðarfelaginu.
14:15 Umræður
14:45 Kaffi
15:00 Hvernig er staðið að sjúkdómavörnum og
hvernig er laxalús haldið í skefjum í laxeldi?
Vöktun og viðbrögð við umhverfisálagi frá
laxfiskaeldi í sjó
Ketil Rykhus, dýralæknir og eigandi ráðgjafa-
fyrirtækisins One Health Consultants í Noregi.
15:30 Staða heilbrigðismála fiskeldis á Íslandi
og efnanotkun
Gísli Jónsson, dýralæknir hjá MAST.
15:40 Fiskeldissvæði, fyrirbyggjandi aðgerðir
og hugsanleg áhrif á villta laxfiskastofna
Jón Örn Pálsson, sjávarútvegsfræðingur
hjá Fjarðalaxi.
15:50 Kynning á burðarþoli fjarða
Sólveig R. Ólafsdóttir, forstöðumaður sjó-
og vistfræðisviðs Hafrannsóknastofnunar.
16:00 Umræður
16:15 Samantekt og ráðstefnuslit
Jón Kjartan Jónsson, fráfarandi formaður LF.
16:25 Móttaka
Liggja tækifæri við sjávarsíðuna í eldi laxfiska?
Ráðstefna um áhrif, vöxt og reynslu af sjókvíaeldi hér og í nágrannalöndum okkar.
RÁÐSTEFNA
LANDSSAMBANDS
FISKELDISSTÖÐVA
29. apríl 2014 / Hilton Reykjavík Nordica
FRAMTÍÐ
Ókeypis aðgangur.
Hvetjum alla til að koma
og kynna sér stöðu eldis á laxfiskum.
Skráning: www.lf.is/skraning
LANDSSAMBAND
FISKELDISSTÖÐVA
Borgartúni 35, 105 Reykjavík
Sími 591 0360 www.lf.is
einhver og þar með var nafnið kom-
ið. Svo var gengið áfram og komið að
hól með skútum og hraundrýlum.
Þar var lítið gat eða munni sem vakti
forvitni manna, sem þar smokruðu
sér niður í þrönga rás sem varð fljótt
manngeng og greiðfær.
Hellirinn sem mældist um 100
metra langur skiptist upp í tvo stúta
um það bil 30 metra frá munnanum,
sem svo sameinast aftur í eina rás
talsvert innar.
Morkin bein og eldstæði
„Þetta er ótrúlegur staður,“ segir
Þór. Í hellinum eru gróðurrætur,
hraunmyndanir, leggir af stór-
gripum, steinhleðslur og eldstæði.
Beinin voru dökk og morkin. Eru
það taldar geta verið vísbendingar
um tímabundna mannvist í hellinum,
sem engar heimildir eru þó til um.
Vegna þessa gerði Þór út í leiðangur
Guðbjörgu Gunnarsdóttur, þjóð-
garðsvörð á Snæfellsnesi, Magnús
A. Sigurðsson, minjavörð Vestur-
lands, og fleiri. Stórgripabeinin voru
tekin til aldursgreiningar og annað
skráð, mælt og myndað.
„Það er greinilegt að eldurinn í
hellinum hefur verið hafður jafn lítill
og mögulegt var til að reykur sæist
helst ekki – sem hefði skapað at-
hygli. Þá virðist sem tálma hafi átt
inngöngu með stórum steini í hellis-
opi sem þarna hefur verið komið fyr-
ir. Allt er þetta forvitnilegt og von-
andi finnst lausnarorð í þessa gátu
einhvern tímann,“ segir Þór um hell-
inn í Neshrauni sem hefur gefið hef-
ur verið nafnið Leynir. Það er við
hæfi, nánari staðsetning er ekki gef-
in upp til að verja staðinn ágangi.
Bárðarstofa
og Vættagangur
Náttúra á utanverðu Snæfellsnesi
er sérstök. Óvíða sést jafn glöggt
hvernig landið hefur mótast; hvernig
hraunlögin hafa lagst hvert ofan á
annað, víða eru rústir, minjar og
allskonar kynjamyndir. Þarna eru
tilkomumiklir Lóndrangarnir og
skammt frá þeim er Þúfubjarg.
„Þverhöggvið gnapir Þúfubjarg /
þrútið af lamstri veðra; Ægir greiðir
því önnur slög,/ ekki er hann mildur
héðra,“ segir í Áföngum, hinu
kynngimagnaða kvæði Jóns Helga-
sonar.
Ekki langt frá Þúfubjargi og
Lóndröngum eru Purkuhólar og þar
er Vatnshellir. Nafnið kemur þannig
til að þegar vatn þraut við sjávarsíð-
una var jafnan skafl við munna
hellisins sem bræða mátti svo þyrst-
ur fénaður Malarrifsbænda fengi
vatn.
Fjögur ár eru síðan Vatnshellir
var gerður fólki aðgengilegur með
rúmlega sjö metra háum hringstiga
frá yfirborði jarðar á gólfið í niður-
fallinu og kallast þar einu nafni Und-
irheimar. Þar er komið niður í
hraunrásina, sem liggur til tveggja
átta. Er Bárðarstofa til norðurs og
Vættagangur til suðurs. Víða í loft-
unum sést glitrandi endurskin frá
bakteríum sem hafa lifað í algeru
myrkri um aldir. Þá eru í hellinum
eru spenar, dropasteinar, syllur og
bríkur.
Til mafíueyjunnar
Syðst í Vættargangi Undirheima,
er neðsti hluti Vatnshellis. Þar heitir
Iður, sem um 70 metra langur hellir
sem liggur til austurs. Stiginn niður
í Iður er tæpir 12 metrar á hæð og
er við hlið hraunfoss. Í þessu gímaldi
má sjá allskonar skúlptúra reginafl-
anna.
Og hér mætast veruleiki og skáld-
skapur, því þar sem gengið er að
stiganum niður í Iður hefur verið
komið upp skilti sem vísar á Stom-
poli skammt frá Sikiley. Má skálda í
skörðin; hver veit nema að úr Iðrum
megi brjóta sér lengri leið um
krákustíga og ómælisdjúp allt til
mafíueyjunnar í Miðjarðarhafi. - Já,
nú fer þetta fyrst að verða spenn-
andi.
Hellaheimur á Snæfellsnesi
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Vatnshellir
Öndverðarnes
Tröllakirkja
Lóndrangar
Hellissandur Rif
Ólafsvík
Arnarstapi
Hellnar
Neshraun
Jökulháls
Fróðárheiði
Snæfellsjökull
Sv
ör
tu
lo
ft
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vegvísir Eins og í sögu Jules Vernes, Leyndardómar Snæfellsjökuls, er
skáldað í skörð og sagt að úr Vatnshelli liggi leiðin til Stromboli við Sikiley.
Ljósm/Ægir Þór Þórsson
Hellisbúi Þór Magnússon í hellinum Leyni sem hann fann í janúar síðast-
liðnum. Ýmislegt bendir til þess að fólk hafi hafst þarna við fyrr á tíð.
Þá hafa dropasteinar og hraun-
myndanir í hellinum verið lagfærð-
ar en um þá vinnu sá Árni B. Stef-
ánsson, augnlæknir og hella-
áhugamaður, sem var upphafs-
maður Vatnshellisverkefnisins og
vann ötullega við að ýta því úr vör
og þykir vel hafa tekist til.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Snæfellsnes Gengt er niður í Vatnshelli úr þessu eldflaugalaga skýli sem
stendur í laut í Purkhólum upp af Lóndröngum þar sem snjóa er að leysa.
Dýrbítur Sumt í hellinum hefur varðveist óhreyft um aldir við góð skilyrði
svo sem þessi refur, sem holdið er horfið af svo beinagrindin ein er eftir.