Morgunblaðið - 19.04.2014, Page 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014
Laugardagstilboð
– á völdum dúkum, servéttum og kertum
SE
RV
ÉT
TÚ
R
KE
RT
I
DÚ
KA
R
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
®
Ýmisservéttubrot
Sjá hér!
Opið laugardaga kl. 10-16
0 kr. útborgun
Langtímaleiga
Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram
allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða.
Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun,
tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert
vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald.
Losnaðu við vesenið með langtímaleigu
Kynntu þér málið í síma 591-4000
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Nú dregur til tíðinda í peninga-
sendingaþjónustu því bandaríska
verslunarkeðjan Wal Mart hyggst
bjóða upp á ódýrar peningasend-
ingar milli verslana sinna.
Þetta var tilkynnt á fimmtudag.
Til þessa hafa Western Union
og Money Gram verið nánast alls-
ráðandi í hrað-peningasendingum í
Bandaríkjunum en frá og með
næstu viku geta viðskiptavinir þar
í landi sent peninga milli lands-
hluta með þjónustu sem fengið
hefur nafnið Walmart-2-Walmart.
Ólíkt Western Union og Money
Gram verður þjónusta Walmart
aðeins fáanleg fyrir peningasend-
ingar innan Bandaríkjanna. Verð-
ur hægt að taka við og senda pen-
inga í öllum af þeim u.þ.b. 4.000
Wal-Mart-verslunum sem finna
má dreifðar um gervöll Bandarík-
in.
Washington Post segir verslana-
keðjuna munu bjóða talsvert lægri
þjónustugjöld en keppinautarnir,
og í sumum tilvikum býður Wal-
Mart allt að helmingi lægra verð.
Fréttastofa ABC News segir frétt-
irnar af þessum nýja keppinauti
hafa framkallað 18% lækkun á
verði hlutabréfa Money Gram og
rösklega 5% lækkun á hlutum í
Western Union.
Sambúðin ekki í hættu
Money Gram hefur haldið úti
útibúum í mörgum verslunum
Wal-Mart og gefa fréttatilkynning-
ar til kynna að ekki standi til að
gera breytingu þar á, a.m.k. af
hálfu verslanakeðjunnar.
Talið er að um 28% Bandaríkja-
manna stóli á peningasendingafyr-
irtæki frekar en bankakerfð til að
koma fjármunum milli staða. Pen-
ingasendingar hjá Wal-Mart verða
takmarkaðar við 900 dali til að
sneiða hjá íþyngjandi reglum um
fjármagnsflutninga sem kveða á
um ítarlega skýrslugerð fyrir
flutning á hærri upphæðum.
Wal-Mart býður upp á peningasendingar
AFP
Metnaður Frá og með næstu viku
verður hægt að senda peninga inn-
anlands í Wal-Mart í BNA.
Stórverslanarisinn í slag við Western Union og Money Gram með ódýrar sendingar milli verslana
Kínverski samfélagsmiðillinn
Weibo fór vel af stað í hlutafjár-
útboði á Nasdaq-markaðinum í
New York á fimmtudag. Hækkuðu
hlutir um 19% á fyrsta degi við-
skipta, en fóru hæst upp um 40% yf-
ir daginn.
Weibo er oft kallað kínverska út-
gáfan af Twitter og býr að 130
milljón virkum notendum. Tekjur
Weibo á síðasta ári jafngiltu 188
milljónum dala, jafnvirði um 21
milljarðs króna, sem var nærri því
þreföldun frá tekjum ársins áður.
Er fyrirtækið þó ekki enn rekið
með hagnaði, og kemur það sér því
eflaust vel að hlutafjárútboð
fimmtudagsins aflaði Weibo 286
milljóna dala, jafnvirði 32 milljarða
króna, að því er Forbes greinir frá.
Innreið Weibo á Nasdaq er talin
ryðja brautina fyrir kínverska vef-
veldið Alibaba inn á bandaríska
hlutabréfamarkaðinn en Alibaba á
nærri fimmtungshlut í Weibo. Wall
Street Journal segir að þegar og ef
Alibaba kemur á bandaríska mark-
aðinn gæti það orðið eitt af stærstu
hlutafjárútboðum sögunnar.
ai@mbl.is
AFP
Rautt Vegfarendur á Times Square þar sem skilti Nasdaq auglýsir Weibo.
Kínverska Weibo
komið á Nasdaq
Fór upp um 19% á fyrsta degi
Ryður brautina fyrir Alibaba inn á
bandaríska hlutabréfamarkaðinn
Vikan 7. til 11. apríl var slæm
fyrir stóru bandarísku hluta-
bréfavísitölurnar sem misstu þá
frá 2,4 til 3,1% yfir vikuna. Var
því gott svigrúm fyrir markaðinn
að spretta aftur á lappirnar í lið-
inni viku og gengu lækkanirnar
frá vikunni áður að mestu til
baka.
MarketWatch, fjármálavefur
Wall Street Journal, bendir á að
S&P 500 hækkaði um 2,7% yfir
vikuna og endaði í 1.864,85 stigum.
Dow Jones styrktist um 2,4% yfir
vikuna og endaði í 16.408,54 stig-
um. Nasdaq-vísitalan endaði vik-
una í 4.095,52 stigum, sömuleiðis
um 2,4% hærri en í vikunni áður.
Viðskiptavikan á bandaríska
markaðinum var degi styttri en
venjulega vegna lokunar markaða
á föstudaginn langa. ai@mbl.is
Bandarísk hlutabréf
skoppa aftur upp
Lækkanir síðustu viku gengu til baka