Morgunblaðið - 19.04.2014, Síða 25
FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014
VELDU VIÐHALDSFRÍTT
Sýningarsalur í Skipholti 35 • Seljabót 7, Grindavík • www.pgv.is • Sími 510 9700
• Barnalæsing
• Mikil einangrun
• CE vottuð framleiðsla
• Sérsmíði eftir málum
• Glerjað að innan
• Áratuga ending
• Næturöndun
PVC gluggar og hurðir - íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Ef spár Helgu Kristínar Auðuns-
dóttur rætast er næsta víst að
starfsumhverfi lögfræðinga muni
breytast mikið í framtíðinni, með
aukinni tækni-
væðingu í grein-
inni.
Helga er sviðs-
stjóri lögfræði-
sviðs Háskólans á
Bifröst og þátt-
takandi í Law-
Without Walls,
alþjóðlegum sam-
starfsvettvangi
lögfræðideilda
háskóla um allan
heim. Verkefnið fer þannig fram að
þátttakendur vinna saman í litlum
hópum að þróunarverkefnum á sviði
lögfræði og viðskipta. Verkefnin
snúa mörg að því að endurhugsa
samskipti lögfræðinga og viðskipta-
vina þeirra. Hvernig notast megi við
tæknilausnir til þess að leysa úr lög-
fræðilegum álitaefnum og hvernig
sinna megi viðskiptavinum með
gagnvirkum þjónustulausnum. Í
hverjum vinnuhópi eru fulltrúar
ólíkra háskóla, nemendur, kennarar
auk fólks úr atvinnulífinu. Verkefnið
sem Helga vann að var að kanna
hvernig nota mætti gervigreind til
að auka sjálfvirkni í lögfræðiþjón-
ustu.
Möguleikar til notkunar gervi-
greindar í lögfræði eru lítt þekktir
og Helga Kristín segist ekki hafa
rekist á dæmi um slíkt við vinnslu
verkefnisins. Hins vegar sé ljóst að
tæknigetan sé til staðar og áhuga-
vert verði að fylgjast með frekari
þróun á þessum vettvangi. „Notand-
inn gæti þá lagt fram spurningu og
fengið lögfræðilegt svar frá róbóta
eða gervigreindarlögfræðingi. Verk-
efnið sem unnið var að miðaðist við
að þróa róbóta sem myndi svara ein-
földum spurningum um réttindi og
skyldur á vinnumarkaði. Nú þegar
er notast við forritun við staðlaða
skjalagerð og geta kaupendur ein-
faldlega matað kerfið á þeim upplýs-
ingum sem koma þurfa fram í skjöl-
unum á meðan tölvan gætir þess að
öll formsatriði séu frágengin með
lagalega réttu formi.“
Ekki til höfuðs lögfræðingum
Nú kynnu lögfræðingar að vera
farnir að ókyrrast við lestur þess-
arar greinar en Helga segir mark-
miðið ekki að láta tæknina gera lög-
fræðinga af holdi og blóði úrelta,
heldur frekar að auðvelda þeim að
nota meira af tíma sínum í verk sem
ekki er hægt að leysa með sjálf-
virkni.
„Með því að leyfa tækninni að
leysa sum verk af hendi væri hægt
að gera ýmsar tegundir lögfræði-
þjónustu aðgengilegri, svo að fólk
leiti sér aðstoðar lögfræðings fyrr og
oftar en það annars hefði gert. Í
raun vonast menn til að þetta auki
umsvif hjá lögfræðingum og bæti
réttaröryggi almennings.“
Hún segir erlendar fyrirmyndir
að lögfræðistofum sem bjóða upp á
þjónustuviðmót á netinu sem svo
getur vísað fyrirspurnum og verk-
efnum á lögfræðinga þegar þess
þarf. „Viðskiptavinurinn greiðir þá
lægra gjald í byrjun fyrir þá lög-
fræðiþjónustu sem hann þarf og
tæknin getur leyst af hendi. Lög-
fræðingarnir sjálfir fá þá betri tíma
til að einbeita sér að flóknari og
meira krefjandi málum sem kalla á
annars konar túlkun og þekkingu en
tölva býr yfir núna. Það verður
áhugavert að sjá hvernig þróun
gervigreindar á sviði lögfræði vind-
ur fram og hvernig hún getur nýst
bæði lögfræðingum og almenningi.“
Gæti tölva svarað lagaspurningu?
Vann að alþjóðlegu verkefni um notkun gervigreindar til að auka sjálfvirkni í lögfræðiþjónustu
Myndi breyta störfum lögfræðinga og gera það auðveldara og ódýrara að fá lögfræðilega aðstoð
Morgunblaðið/Ernir
Bylting Það er sennilega langt í að tölva geti flutt mál fyrir héraðsdómi en gervigreind gæti leyst vel af hendi sum þau
verkefni sem lögfræðingar sinna í sínum daglegu störfum, til hagsbóta fyrir bæði neytendur og lögfræðistéttina.
Helga Kristín
Auðunsdóttir