Morgunblaðið - 19.04.2014, Síða 26
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014
ÁLÞAKRENNUR
Viðhaldslitlar
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu
er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki,
ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar.
Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki.
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202
Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is
www.hagblikk.is
HAGBLIKK ehf.
Nýja dömulínan frá
Laugavegi 25, 101 Reykjavík. Sími 552-7499 | Hafnarstræti 99-101, 600 Akureyri. Sími 461-3006
www.ullarkistan.is
Gæða ullarfatnaður á góðu verði
Hlýr og notalegur í útivistina
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Uppreisnarmenn hliðhollir Rúss-
landi létu alþjóðlegt samkomulag
sem gert var á skírdag um að þeir
yfirgæfu stjórnarbyggingar sem
þeir hafa lagt undir sig í Austur-
Úkraínu sem vind um eyru þjóta.
Erindrekar frá Bandaríkjunum,
Rússlandi, Úkraínu og Evrópusam-
bandinu gerðu samkomulagið í Genf
en aðskilnaðarsinnarnir telja sig
óbundna af því þar sem þeir hafi
ekki átt sér málsvara á fundi þeirra.
Þeir segjast ekki ætla að sleppa tak-
inu af byggingunum fyrr en stjórn-
völd í Kænugarði stígi til hliðar enda
hafi þau ekki tekið við völdum með
lögmætum hætti.
„Við ætlum ekki að yfirgefa bygg-
inguna, sama hvaða yfirlýsingar eru
gefnar, vegna þess að við vitum
hvert raunverulega ástandið í land-
inu er og við förum ekki fyrr en yfir-
maður okkar segir okkur að gera
það,“ hefur Reuters-fréttastofan eft-
ir uppreisnarmanni sem heldur lög-
reglustöð í borginni Slaviansk ásamt
félögum sínum.
Oleksandr Túrtsjínov forseti og
Arsení Jatsenjúk forsætisráðherra
lofuðu stjórnarskrárbreytingum,
dreifingu valds til héraðsstjórna og
viðurkenningu rússnesku sem op-
inbers tungumáls í sameiginlegu
sjónvarpsávarpi þar sem þeir
reyndu að biðla til aðskilnaðarsinn-
anna í gær.
Þeir hétu einnig sakauppgjöf til
þeirra sem hafa hertekið stjórnar-
byggingarnar undanfarið eins og
kveðið var á um í Genfarsamkomu-
laginu.
John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, varaði Rússa við því
þegar samkomulagið var gert að
þeir mættu eiga von á frekari refsi-
aðgerðum ef vopnaðir hópar á þeirra
bandi yfirgæfu ekki byggingar í
Austur-Úkraínu fyrir lok þessarar
viku.
Óbundnir af samkomulaginu
Stjórnarbyggingar í A-Úkraínu enn á valdi stuðningsmanna Rússa Forseti
og forsætisráðherra Úkraínu gefa aðskilnaðarsinnum loforð um frekari áhrif
AFP
Uppreisn Stuðningsmenn Rússa í Slaviansk héldu útifund í gær. Þeir halda
enn opinberum byggingum í borginni, þrátt fyrir alþjóðlegt samkomulag.
Heimsbyggðin hefur undanfarna
daga syrgt kólumbíska rithöfundinn
Gabriel García Márquez en hann lést
í Mexíkóborg á skírdag, 87 ára gam-
all. Banamein hans var fylgikvillar
lungnabólgu. Bækur García Már-
quez voru upphaf blómatíðar í bók-
menntum á spænskri tungu.
Hann var upphafsmaður svo-
nefnds töfraraunsæis sem einkenndi
hans þekktasta verk, „Hundrað ára
einsemd“, sem kom út árið 1967.
Áætlað er að bókin hafi selst í um
þrjátíu milljónum eintaka síðan. Kól-
umbíumaðurinn hlaut bókmennta-
verðlaun Nóbels árið 1982 fyrir hana
og fleiri verk sín.
Þriggja daga þjóðarsorg hefur
verið lýst yfir í Kólumbíu, og í
Mexíkóborg, þar sem rithöfundurinn
bjó, verður haldin opinber athöfn til
að minnast hans á mánudag. Þjóðar-
leiðtogar, rithöfundar og bók-
menntaspekingar hafa lofað rithöf-
undinn eftir fráfall hans. Raúl
Castro, forseti Kúbu, sagði Róm-
önsku Ameríku og heiminn allan
hafa tapað táknrænum rithöfundi og
hugsuði.
„Lærimeistari minn er látinn.
Hann er mikilvægasti rómansk-am-
eríski rithöfundur allra tíma,“ sagði
síleski rithöfundurinn Isabel Allende
um Kólumbíumanninn.
Margir hafa mært einstakt ímynd-
unarafl García Márquez. Sjálfur
gerði hann þó lítið úr því í viðtali við
Paris Review árið 1981.
„Mér finnst það alltaf skondið að
mesta hrósið sem verk mín fá er fyr-
ir ímyndunaraflið þegar sannleikur-
inn er sá að það er ekki ein einasta
lína í öllum verkum mínum sem ekki
á sér stoð í raunveruleikanum.
Vandamálið er að karabískur raun-
veruleiki líkist villtustu órum ímynd-
unaraflsins,“ sagði skáldið.
Margir minnast
García Márquez
Nóbelsskáldið lést á skírdag
AFP
Sorg Forsíða kólumbísks dagblaðs
með fyrirsögninni „Ódauðlegur“.
Skipstjóri og
tveir áhafnar-
meðlimir ferj-
unnar sem
hvolfdi við Suð-
ur-Kóreu á mið-
vikudag hafa
verið handteknir
og ákærðir fyrir
vanrækslu í
starfi. Staðfest
er að 28 hafi látist en 268 manns
var enn saknað í gær. Flestir þeirra
eru menntaskólanemar sem voru á
skólaferðalagi.
Aðstoðarskólastjóri Danwon-
menntaskólans, þaðan sem nem-
endurnir voru, fannst látinn í gær,
að sögn lögreglu, en hans hafði ver-
ið saknað frá því á skírdag. Svo
virðist sem hann hafi framið sjálfs-
víg. Hann var 52 ára gamall en hon-
um var bjargað úr ferjunni. Áður
en hann lést hafði lát 28 farþega
verið staðfest en 179 manns hafði
verið bjargað.
SUÐUR-KÓREA
Handtaka skipstjóra
og hluta áhafnar
Kafarar leita nú
farþeganna.
Heilbrigðisstarfsmenn á Kúbu hafa
áhyggjur af því að tíðni kyn-
sjúkdóma og ótímabærra þungana
eigi eftir að
aukast vegna
skorts á smokk-
um sem hefur
gert vart við sig
á eyjunni undan-
farið.
Verst er
ástandið í hafn-
arborginni Santa
Clara en þar
kláruðu apótek
smokkabirgðir
sínar í síðasta mánuði. Skorturinn
hefur síðan breiðst út um landið.
Yfirvöld hafa lítið viljað tjá sig
um ástandið. Yfirmaður fyrirtæk-
isins sem flytur inn og dreifir
smokkum á Kúbu segir orsökina
hins vegar þá að starfsmenn hans
hafi átt erfitt með að anna eftir-
spurninni eftir smokkum í landinu
undanfarin misseri.
Skortur á smokkum
á Kúbu eykur hættu
á kynsjúkdómum
Smokkar geta
skipt sköpum.