Morgunblaðið - 19.04.2014, Blaðsíða 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014
GÆÐI - ENDING - ÁNÆGJAwww.weber.is
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Að minnsta kosti tólf innfæddir
leiðsögumenn fórust þegar snjóflóð
féll úr hlíðum Everest-fjalls
snemma á föstudagsmorgun. Talið
er að þetta sé mannskæðasta slys
sem orðið hefur á fjallinu.
Talsmaður ferðamálaráðuneytis
Nepals sagði breska ríkisútvarpinu
BBC að nokkrum göngumönnum
hefði verið bjargað úr flóðinu en að
nokkurra væri enn saknað. Síðdeg-
is í gær var talið að allt að fjórir
göngumenn væru enn ófundnir.
Flóðið féll þegar klukkuna vant-
aði um fimmtán mínútur í sjö í gær-
morgun. Það er talið hafa fallið á
milli grunnbúðanna og búða númer
tvö á leiðinni upp Everest.
Leiðsögumennirnir, sem voru
sjerpar, höfðu klifrað upp Khumbu-
skriðjökulinn snemma morguns til
þess að laga reipi fyrir vestrænu
fjallgöngumennina og undirbúa
leiðina upp Suðurskarð þegar flóðið
féll.
Þrjár björgunarþyrlur voru
sendar á staðinn til að leita að fólki
í snjónum og flytja slasaða niður í
grunnbúðirnar. Auk þess aðstoðuðu
fjallgöngumenn og leiðsögumenn á
svæðinu við björgunaraðgerðirnar.
Reiða sig á ferðamennskuna
Apríl og maí eru sá árstími þegar
flestir leggja á Everest og skipta
fjallgöngumennirnir hundruðum.
Leiðin upp Khumbu-skriðjökulinn
er torfær en þar þarf að klifra upp
brattan ísinn sem steypist fram af
klettabrúnum og brotnar upp.
Sjerparnir þurfa að finna nýja leið
yfir hann á hverju ári.
Undanfarin ár hafa deilur skap-
ast um laun, aðstæður og öryggi
þeirra en heilu samfélögin í
Khumba-héraði í Nepal reiða sig á
fjallgönguferðamennskuna til að
framfleyta sér. Fjallgöngumenn
greiða allt að 5,6 milljónir króna til
að komast á tindinn.
Örtröð á síðustu metrunum
Einnig hefur verið bent á að
ásóknin í að klífa fjallið sé orðin of
mikil. Alls komust um fimm hundr-
uð manns á tindinn á síðasta ári en
19. maí skapaðist öngþveiti þegar
um 150 manns voru á síðustu 915
metrunum á sama tíma. Það olli
miklum töfum og þurftu fjallgöngu-
mennirnir að bíða í röð eftir að klífa
upp eða niður erfiðustu hluta leið-
arinnar.
Átta manns létust á Everest-fjalli
í fyrra, þar á meðal einn þekktasti
og reyndasti sjerpinn. Hann fórst á
skriðjöklinum.
Í heildina hafa fleiri en þrjú þús-
und manns náð tindi Everest frá
því að Bretinn Edmund Hillary og
sjerpinn Tenzing Norgay gerðu það
fyrstir manna árið 1953. Fjölmargir
hafa hins vegar látist á leiðinni á
tindinn.
Versta slysið fram að þessu var
árið 1996 þegar átta fjallgöngu-
menn fórust í stormi á fjallinu.
Snjóflóð á Everest
Mannskætt slys á föstudag
Áætluð
staðsetning
um 5.800 metra
hæð snemma á
föstudag.
Búðir II
5.913 m
Búðir III
6.157 m
Búðir IV
6.462 m
Búðir V
6.706 m
Búðir VII
7.315 m
Búðir VI
7.010 m
Búðir IX
8.504 m
Khumbu-skriðjökull
Vesturdalur
Lhotse
Suðurskarð
Búðir VIII
7.894 m
Grunnbúðir
5.364 m
Everest-tindur
8.848 m
N
Heimild: Royal Geographical Society/8000ers.com/NatGeo*
KATMANDÚ
INDLAND
KÍNA
60 km
NEPAL
Mannskæðasta slysið á Everest
Nepalskir leiðsögumenn fórust í miklu snjóflóði í Everest-fjalli Höfðu farið á undan til að undirbúa
leiðina fyrir vestræna fjallgöngumenn Áhyggjur af því að umferðin upp á fjallið sé orðin of mikil
Þrír Íslend-
ingar sem
hafa verið á
Everest-
fjalli und-
anfarna
daga eru all-
ir heilir á
húfi. Vilborg
Arna Giss-
urardóttir
lét vita af
sér eftir
snjóflóðið
en hún dvelur nú í grunnbúð-
unum. Allar frekari göngur á
Everest-fjall voru stöðvaðar í
gær eftir slysið. Óvíst er hvaða
áhrif hamfarirnar hafa á þá
fyrirætlan Vilborgar að klífa
þennan hæsta tind veraldar á
næstu vikum.
Ingólfur Axelsson lét einnig
vita af því á Facebook-síðu
sinni að hann væri óhultur.
Leikkonan Saga Garðarsdóttir
sem gekk í grunnbúðirnar með
Ingólfi var komin aftur til
byggða í Nepal.
Íslending-
arnir óhultir
GÖNGUGARPAR
Íslendingarnir
þrír á fjallinu.