Morgunblaðið - 19.04.2014, Qupperneq 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014
ÞAR SEM FAGMENNSKAN
RÆÐUR
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Davíð
útfararstjóri
Jóhanna Erla
guðfræðingur
útfararþjónusta
Óli Pétur
útfararstjóri 551 3485 • udo.is
✝
Okkar ástkæra
RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Skörðum,
til heimilis
á Óðinsgötu 32b,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn 10. apríl.
Hún verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík þriðjudaginn 22. apríl kl. 13.00.
Sigurður B. Markússon
og aðstandendur hinnar látnu.
✝
Ástkæri eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN SVAVAR JÓNASSON
blikksmíðameistari,
Drekavöllum 57,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu föstudaginn 11. apríl
í faðmi fjölskyldu sinnar.
Hann verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju miðvikudaginn
23. apríl kl. 11.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu
Landspítalans.
Kolbrún Ósk Óskarsdóttir,
Kristens Jónsson, Ingibjörg Jóna Kristjánsdóttir,
Katrín Svava Jónsdóttir, Stefán Kristófersson,
Jórunn Jónsdóttir, Einar Þór Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elsku hjartans sonur okkar, bróðir og faðir,
ÓTTAR ÖRN VILHJÁLMSSON,
Reynigrund 9,
Akranesi,
lést föstudaginn 11. apríl.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðviku-
daginn 23. apríl kl. 14.00.
Þökkum öllum þann gríðarlega hlýhug og stuðning
sem fjölskyldunni hefur verið sýndur á þessum erfiðu tímum.
Vilhjálmur Birgisson, Þórhildur Þórisdóttir,
Allan F. Vilhjálmsson, Hafþór Æ. Vilhjálmsson,
Vilhjálmur R. Vilhjálmsson, Þórir Gunnar Jónasson,
Róbert Óttarsson, Bríet Óttarsdóttir.
✝
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
GUÐBRANDUR JÓN HERBERTSSON
frá Lækjarbakka,
Tálknafirði,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 22. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Björgunarsveitina Tálkna á Tálknafirði.
Olga Herbertsdóttir, Ásgeir Kristinsson,
Sævar Herbertsson, Dagný Bjarkadóttir,
Einar Herbertsson, Freyja Benediktsdóttir,
Ómar Herbertsson, Margrét Hermannsdóttir
og systkinabörn.
✝ Skúli Jónsson,fv. verkstjóri
fæddist á Húsavík
7. október 1930.
Hann lést 13. apríl
2014.
Hann var sonur
hjónanna Jóns Sö-
renssonar sjó-
manns, f. 18.2.
1894, d. 2.5. 1979,
og Guðbjargar Jó-
hannesdóttur hús-
freyju, f. 10.10. 1903, d. 23.3.
1971. Systkini hans voru 6.
Elstur var Jóhann Kristinn,
fæddur 6.10. 1924, d. 15.6.
1994, Sören, fædd-
ur 19.10. 1925, d.
15.12. 1992, Ingi-
björg, fædd 26.2.,
1928, Kristín Sig-
urbjörg, f. 6.2.
1935, d. 16.5. 2003,
Hafliði, fæddur
9.12. 1938 og
yngst, Sigrún,
fædd 23.10. 1942.
Skúli kvæntist
Freyju Sigurpáls-
dóttur, f. 7.12. 1928, frá Flatey
á Skjálfanda, árið 1952. For-
eldrar Freyju voru Sigurpáll
Jenson, f. 8.11. 1892. d. 27.11.
1935. og Þuríður Jónsdóttir, f.
16.7. 1893, d. 2.6. 1983. Skúli
og Freyja eignuðust 6 börn.
Elst er Hulda Sigríður, fædd
1954, maki Oddur Örvar Magn-
ússon og eiga þau þrjú börn.
Þá Guðbjörg, fædd 1956, maki
Árni Sigtryggsson, eiga þau
tvær dætur. Næstur er Birgir,
fæddur 1961, hann á 3 börn.
Þá Anna Þuríður fædd 1963,
hún á 3 börn. Skúli, fæddur
1964, d. 27.8. 2013, hann lætur
eftir sig 3 börn, og yngstur er
Sigþór Kristinn, fæddur 1972,
hann á 3 dætur, maki er Heidi
Johannsen.
Útför Skúla fer fram frá
Húsavíkurkirkju í dag, 19. apr-
íl 2014, og hefst athöfnin kl.
14.
Elskulegur afi dóttur minnar,
Birnu Drafnar, er látinn. Afi
Skúli eins og hann var alltaf kall-
aður á mínu heimili, ekki bara af
dóttur minni heldur líka af sonum
mínum sem ég átti síðar.
Það var nánast á hverju sumri
sem ég og Búi, ásamt krökkunum
okkar, komum við á Reykjaheið-
arveginum og kíktum til afa
Skúla og ömmu Freyju og ávallt
var okkur tekið fagnandi, eins og
við værum hluti af fjölskyldunni.
Höfðum við Búi, maðurinn minn,
jafngaman af heimsóknunum til
þeirra enda Skúli og Freyja
ávallt hlý og góð í viðmóti. Þegar
Birnu Dröfn voru sendar afmæl-
isgjafir var líka hugsað til litlu
bræðranna og laumað með sokk-
um og vettlingum eins og þeir
væru líka barnabörnin þeirra
hjóna.
Þakka ég Skúla fyrir góð
kynni og hlýju í minn garð í gegn-
um árin. Minningarnar um góðan
tengdaföður og afa eiga eftir að
ylja fjölskyldunni um ókomna tíð.
Elsku Freyja mín. Megi algóður
Guð vaka yfir þér og fjölskyldu
þinni og leiða ykkur í sorginni og
hugga ykkur með góðum minn-
ingum um Skúla. Með þökk.
Harpa Hrönn Davíðsdóttir.
Skúli Jónsson
Mig langar að
minnast þín með
nokkrum orðum,
elsku mamma mín.
Ekki það að nokk-
ur orð geti á einhvern hátt lýst
þér eða hvernig það var að eiga
þig fyrir móður. Þú varst alltaf
svo jákvæð, skilningsrík og góð
og dæmdir aldrei. Ég gat alltaf
komið til þín og trúað þér fyrir
öllu, rætt málin og sá allt í
miklu skýrara ljósi eftir að við
höfðum talað saman. Ég óskaði
þess þegar ég eignaðist dóttur
að ég gæti orðið móðir hennar
og vinkona eins og þú varst
mér.
Þið pabbi þurftuð að ganga í
gegnum margt á ykkar ævi en
stóðuð ótrúlega sterk eftir
hverja raun. En sem betur fer
eru svo margar gleðilegar
minningar og þær lifa í huga
mínum um eilífð. Þið tvö að fara
eitthvað út, þú svo glæsileg í
síðkjól og á fallegustu skóm
Ólöf Ragnheiður
Helgadóttir
✝ Ólöf Ragnheið-ur Helgadóttir
fæddist 24. júlí
1920. Hún lést 5.
apríl 2014. Ólöf var
jarðsungin 16. apríl
2014.
sem ég hafði séð og
pabbi leiddi svo
stoltur fallegu kon-
una sína. Þið pabbi
hlæjandi og dans-
andi inni í stofu,
þið tvö syngjandi
við orgelið. Jólin í
Norðurgötunni
þegar allur hópur-
inn ykkar safnaðist
saman, þá ljómuð-
uð þið pabbi.
Eftir að pabbi dó reyndi mik-
ið á þig en eins og alltaf stóðstu
sterk og tókst á við lífið með já-
kvæðni og gleði að leiðarljósi.
Elsku mamma mín, ég veit
að nú getið þið pabbi dansað
aftur saman með öllum þeim
sem gengnir eru og við elsk-
uðum öll. Ég á eftir að sakna
þín óumræðilega mikið en
minningin um yndislega
mömmu mun lifa í huga mínum
og hjarta um ókomna tíð. Þú
ert og verður alltaf mín falleg-
asta fyrirmynd. Guð blessi þig.
Þín
Guðbjörg.
Mig langar til að minnast
Lóu ömmu minnar.
Ólöf Ragnheiður eða Lóa
eins og hún var alltaf kölluð
fæddist 24. júlí árið 1920.
Dugnaðarbóndakona sem lifði
margt á langri ævi. Amma mín
og afi byggðu sér heimili á
Krónustöðum í gamla Saurbæj-
arhreppi. Þar eignuðust þau tíu
börn sem hún var ákaflega stolt
af, afkomendurnir eru nú orðn-
ir fjölmargir. Amma mín var
kjarnakona sem vann alla tíð
mikið og sinnti öllu vel. Hún
hafði miklar skoðanir á lífinu og
hlutunum, langoftast var hún
jákvæð og sá lífið bjartsýnis-
augum. Handavinna var henni
kær og fengu öll börn og barna-
börn eitthvað fallegt frá henni á
meðan hún hafði heilsu til. Mig
minnir að hún hafi hætt að
prjóna sokka handa afkomend-
um sínum um nírætt. Það var
gott að heimsækja ömmu, það
var alveg á hreinu að af kaffi
fengi maður nóg, hláturinn var
ekki langt undan og hún var
alltaf með góð ráð fyrir mann,
hún beindi augum/huga manns
á réttu leiðina þegar eitthvað
bjátaði á. Amma virtist eiga
auðvelt með að finna lausnir á
öllu. Ræddi hún við mig um lífið
og tilveruna, eins og ömmur
gera best. Dætur mínar eru
líka heppnar að hafa fengið
tækifæri til að kynnast henni
og minnast þær þess einnig
hvað langamma var alltaf glöð
og gott að heimsækja hana og
eitthvað heimabakað á boðstól-
um. Amma Lóa hafði gaman af
að segja sögur og ég elska að
hlusta á skemmtilega sagðar
sögur. Sumarbíltúrarnir okkar
voru um sveitina sem var henni
svo kær. Að keyra langt undir
leyfilegum hámarkshraða, njóta
fallegu sveitarinnar og heyra
ömmu rifja upp ævintýri æsku
sinnar veitti mér gleði. Sú fal-
lega mynd sem hún dró upp af
bernskuárum sínum og síðar
fullorðinsárum hefur gefið mér
dýpri sýn á sveitina. Ferðin
okkar út í Hrísey er líka eft-
irminnileg. Fyrir nokkrum ár-
um fórum við amma saman út í
Hrísey, fengum okkur að borða
á Brekku og í sund á eftir,
amma sólaði sig á sundlaugar-
bakkanum á meðan við Lovísa
svömluðum í lauginni. Það var
virkilega eftirminnilegur og
góður dagur. Amma sagði mér
að þetta hefði verið hennar eina
sjóferð um ævina, þ.e.a.s. sigl-
ingin út í Hrísey. Amma hafði
alla tíð gaman af því að ferðast,
bæði innanlands og erlendis, að
klæðast fínum og fallegum föt-
um og vera með fallegt skart,
semsagt að vera smart var sko
ekta hún. Ég er glöð í hjarta
mér að eiga allar þessar góðu
minningar um sterka og góða
konu sem var frábær fyrir-
mynd. Það verða ekki fleiri
kaffiheimsóknir til ömmu í
þessu lífi, en það verða fleiri líf,
því trúum við amma.
Blessuð sé minnig þín, elsku
amma Lóa.
Ólöf Ragnheiður
Guðbjörnsdóttir.
Kveðja frá
Jazzhátíð
Reykjavíkur
Djassáhugafólk á Friðriki
Theodórssyni mikið að þakka.
Frá upphafi Jazzhátíðar
Reykjavíkur var hann stjórnar-
maður og gjarnan það sem kalla
má rödd skynseminnar í góðum
selskap fleiri hugsjónamanna um
þessa list augnabliksins. Það
Friðrik
Theodórsson
✝ Friðrik Theo-dórsson fædd-
ist 7. febrúar 1937.
Hann lést 28. mars
2014.
Útför Friðriks
fór fram 11. apríl
2014.
reyndist oftar en
ekki farsælt að hafa
Friðrik með í ráðum,
uppfullan af þekk-
ingu á því hvernig
kaupin gerðust í at-
vinnulífinu sem hann
og hans kynslóð tón-
listarmanna deildu
svo margir farsæl-
lega með tónlistarlífi
sínu. Hann var
óþreytandi að leita
leiða til að koma á framfæri tón-
listinni sem getur oft verið áþreif-
anlega fjarlæg meginstraumi dag-
legs lífs. Það var því dýrmætara
að hafa glaðsinna lífskúnstnera til
skrafs og ráðagerða sem músíkin
varð skrítnari.
Hún skein skært ást Frikka á
músíkinni, hvort sem það var af
hljómsveitarpallinum eða úr
áheyrendahópnum. Fram á síð-
asta dag tók hann þátt í starfi
Lúðrasveitar Reykjavíkur auk
þess að vera miðpunktur í starfi
eldri herramanna úr röðum hljóm-
listarmanna sem reglulega hittast
og spila big-band-músík. Á
djasshátíðum átti hann það til að
skjótast á svið og skatta sig í gegn-
um nokkra kórusa af Summer-
time, ef hann las salinn þannig.
Á Jazzhátíð Reykjavíkur í
ágúst sl. setti hann hátíðina með
glæsibrag enda maður augna-
bliksins og hvergi eins vel fyrir
kallaður og fyrir framan hljóð-
nema. Sem framkvæmdastjóri
Jazzhátíðar til margra ára setti
Friðrik viðmið sem enn eru í há-
vegum höfð og undir það síðasta
var hann enn starfandi sem
stjórnarmaður í djassdeild FÍH.
Það eru orðnar margar kyn-
slóðir djassleikara sem eiga minn-
ingar um Friðrik Theodórsson,
minningar sem ná yfir allan skala
mannlegra tilfinninga. Hann var
ákveðinn og réttsýnn, honum
fannst óþarfi að laga hluti sem
voru ekki bilaðir og hann vor-
kenndi sjálfum sér ekki að vera á
skítenda skóflunnar þegar djass-
inn var annars vegar.
Á meðan við sjáum á eftir góð-
um félaga og vini huggum við okk-
ur við að félagslífið í básúnudeild
big-bandsins hinum megin muni
taka flugið í staðinn.
Hafðu kæra þökk fyrir þitt
ómetanlega óeigingjarna starf, og
ekki síður fyrir öll skemmtileg-
heitin. Þín verður sárt saknað af
fremsta bekk á komandi djasshá-
tíðum.
Pétur Grétarsson.
Hann Frikki er dáinn, maður
sem ég á mikið að þakka. Hann og
Edda vinkona mín voru mínir
bjargvættir þegar ég kom heim
frá London eftir að maðurinn
minn lést þar. Þau lánuðu mér bíl,
Frikki réð mig í vinnu í verslun
sinni og seinna útvegaði hann mér
vinnu á Hótel Loftleiðum, svo mér
var borgið. Frikki var víðförull
heimsmaður og djassisti, eins og
allir vita sem þekktu hann. Ég er
þakklát fyrir allt sem þau gerðu
fyrir mig.
Elsku Edda mín, Hildur,
Hrefna og Halla Rún, það er mikil
eftirsjá hjá ykkur mæðgum og
fjölskyldu, og vafalaust öllum sem
hann þekktu.
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudaga.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs-
ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Minningargreinar