Morgunblaðið - 19.04.2014, Qupperneq 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014
✝ Haraldur Her-mannsson var
fæddur á Ysta-Mó í
Fljótum 22. apríl
1923. Hann lést á
Heilbrigðisstofn-
uninni Sauðárkróki
3. apríl 2014.
Foreldrar hans
voru Hermann
Jónsson, hrepp-
stjóri og bóndi, f.
12.12. 1891, d. 30.9.
1974 og Elín Lárusdóttir hús-
freyja, f. 27.2. 1890, d. 26.3.
1980. Systkini Haraldar voru
Halldóra, f. 11.10. 1912, Lárus, f
.4.3. 1914, Níels, f. 27.7. 1915,
Rannveig, f. 12.11. 1916,
Hrefna, f. 25.6. 1918, Sæmund-
ur, f. 11.5. 1921, og Georg, f.
24.3. 1925, öll látin, eftirlifandi
er Björn, f. 16.6. 1928. Haraldur
kvæntist 29.12. 1946 Guðmundu
Hermannsdóttur, f. 27.11. 1927,
húsmóður. Foreldrar hennar
voru Hermann Steinn Jónsson,
bóndi og smiður, og Petra Stef-
ánsdóttir húsfreyja. Þau bjuggu
á Hamri í Holtshreppi og síðar í
Vík í Haganesvík. Börn Har-
aldar og Guðmundu eru: 1) Her-
mann Björn, f. 20.3. 1947, d.
18.12. 2006, m. Sigurhanna
Ólafsdóttir. Börn: a) Haraldur,
f. 1969, m. Bryndís Guðmunds-
dóttir, þau eiga 4 börn og 2
barnabörn. b) Guðmundur, f.
1971, samb.k. Kesorn Tangrod,
þau eiga 2 syni. 2) Jóhanna
Petra, f. 22.6. 1949, m. Jónas
Svavarsson. Börn: a) Lydía Ósk,
f. 1967, m. Gísli Sigurðsson, þau
Haraldur Andri, f. 1993, kær.
Hera H. Svansdóttir. 8) Róbert
Steinn, f. 21.12. 1963, maki Erla
Valgarðsdóttir. Börn: a) Jónína,
f. 1987, samb.m. Eyþór F.
Sveinsson. b) Berglind, f. 1992.
c) Ísak, f. 1999. 9) Haraldur
Smári, f. 9.9. 1966, samb.k. Ey-
dís Eysteinsdóttir. Börn: a) Arn-
björg, f. 1985, samb.m. Svein-
björn Magnússon, þau eiga 3
börn. b) Adda Steina, f. 1987,
samb.m. Fannar I. Veturliðason,
hún á 1 son. c) Sindri Rafn, f.
1989, samb.k. Hanna L. Hall-
grímsdóttir. d) Steindóra Ólöf,
f. 1994. e) Guðmunda Góa, f.
2001. f) Flóra Rún, f. 2005. Har-
aldur var í barna- og unglinga-
skóla í Fljótum og síðan einn
vetur í Héraðsskólanum Reyk-
holti, Borgarfirði. Hann hóf bú-
skap á Ysta-Mó ásamt konu
sinni árið 1947 og bjó þar á móti
foreldrum sínum. Hætti búskap
árið 1973 og flutti í Haganesvík
og tók við starfi kaupfélags-
stjóra Samvinnufélags Fljóta-
manna. Gegndi þeim starfa til
1977, er Samvinnufélagið var
sameinað Kaupfél. Skagf. og
starfsemin flutt að Ketilási.
Starfað áfram hjá KS, fyrst í
Ketilási í tvö ár og síðan í bygg-
ingav.deild KS á Sauðárkróki,
út starfsferilinn. Hann gegndi
mörgum trúnaðarstörfum fyrir
sveit sína og sýslu, m.a. hrepp-
stjóri Haganeshrepps, í hrepps-
nefnd og sýslunefnd. Haraldur
gegndi form. í Skíðafél. Fljóta-
manna, veiðifél. Flókadals,
ásamt öðrum félagsstörfum og
stóð lengi í fararbroddi í keppn-
um og félagsstarfi skákmanna í
Skagafirði.
Útför Haraldar fer fram frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 19.
apríl 2014, kl. 11. Jarðsett verð-
ur á Barði í Fljótum.
eiga 3 börn og eitt
barnabarn. b)
Aníta Hlíf, f. 1971,
m. Ólafur R. Ólafs-
son, þau eiga 2
börn. c) Guðrún
Vigdís, f. 1977, m.
Þ. Rúnar Rún-
arsson, þau eiga 3
dætur. 3) Linda
Nína, f. 7.6. 1954,
m. Jón E. Frið-
riksson. Börn: a)
Heba, f. 1974, maki Torrey
John, þau eiga 2 dætur. b) Mar-
teinn, f. 1977, m. Bertína G. Ro-
driguez, þau eiga 5 börn. c)
Harpa Sif, f. 1989. d) Þóra Rut,
f. 1992. 4) Lára Gréta, f. 15.10.
1957, m. Magnús Sigfússon.
Börn: a) Helena, f. 1976, m. Jón
H. Elíasson, þau eiga 2 syni. b)
Arnar, f. 1985. c) Guðmunda, f.
1991, samb.m. Egill I. Ragn-
arsson. 5) Þröstur Georg, f.
11.5. 1959, maki Guðrún Har-
aldsdóttir. Börn Þrastar og
Ingu B. Magnadóttur: a) Stein-
unn Hlín, f. 1982, samb.m. Peter
J. Cassidy, þau eiga 2 börn. b)
Elvar Árni, f. 1984. c) Jón Ingi,
f. 1987, kær. Jóhanna Gunn-
arsdóttir. Guðrún á 2 syni og 1
barnabarn. 6) Ellen Hrönn, f.
19.5. 1961, m. Gunnar B. Ás-
geirsson. Börn: a) Sigrún Andr-
ea, f. 1991. b) Elín Lilja, f. 1993.
7) Stefán Logi, f. 16.11. 1962, m.
Inga S. Baldursdóttir. Börn: a)
Heiðar Örn, f. 1981, maki Gunn-
hildur Á. Sigurðardóttir, þau
eiga 3 syni. b) Sonja Petra, f.
1986. c) Sandra Lind, f. 1991. d)
Faðir minn var mikill höfðingi
og leiðtogi í lífi okkar afkomend-
anna og forystumaður í sínu
nærsamfélagi, sveit og sýslu.
Minningar úr uppvextinum eru
góðar, ávallt margt um manninn
og gestagangur mikill heima af
frændsystkinum, sveitungum og
vinum. Frændræknin var mikil í
þessari stækkandi ætt og leyfi ég
mér að fullyrða að flestöll systk-
inabörn pabba hafi um eitthvert
skeið dvalið á Mó, um lengri eða
skemmri tíma og hafa þau óspart
deilt með okkur systkinunum
góðum minningum frá þessum
tímum. Oft var fjölmenni á Mó
og margt var brallað, flestir ætt-
ingjarnir virkjaðir til starfa sem
kölluðu í sveitinni og ávallt var
faðir minn verkstjórinn í þeim
verkum. Foreldrar mínir voru
mjög vinnusöm alla sína tíð.
Pabbi er mín helsta fyrirmynd
og þó ég verði aldrei jafn dugleg-
ur og hann var þá reyni ég að til-
einka mér hans helstu eiginleika,
í vinnusemi, framkomu og um-
gengni við samferðafólk. Dæmi
um ósérhlífni hans, kjark og
viljastyrk eru t.d. sögur hans um
ferðir yfir Siglufjarðarskarðið,
fótgangandi eða á skíðum, þar
sem oft var ekki öðrum sam-
göngum fyrir að fara á þessum
tímum. Góð er sagan þegar hann
var að eltast við brúnan hest sem
mamma átti, sá vildi ekki láta ná
sér og hljóp til fjalls. Pabbi var
ekki á því að gefast upp og eltist
hlaupandi við klárinn dagpart og
endaði með að uppgefa klárinn
og ná honum, verst hefði þó verið
að daginn eftir hefði klárinn
gleymt öllu og ekkert lært. Þá er
ljóslifandi minning, er við Lára
systir og Lárus frændi vorum að
hjálpa pabba í girðingarvinnu.
Strekkt var á vírnum með drátt-
arvél og vildi ekki betur til en svo
að vírinn slitnaði með þeim af-
leiðingum að hann skaust í hönd
pabba, stakkst á kaf og þræddist
eftir löngutöng og út í gegnum
fingurgóminn. Kom mikið fát á
viðstadda en pabbi var sallaró-
legur og bað Lárus að rétta sér
naglbítinn, klippti vírinn og labb-
aði heimleiðis með vírinn í fingr-
inum og lét síðan fjarlægja hann
á Hofsósi. Önnur minning er
þegar verið var að keyra heim
heyi. Við losun á heyinu úr hey-
hleðsluvagninum vildi svo illa til
að grind aftan á honum féll beint
í andlit pabba og skóf allt skinn
af nefi. Héldum við hann stór-
slasaðan enda blóð um allt, en
hann hélt ró sinni, sagði okkur til
og rölti síðan heim í hús og lét
plástra andlitið.
Pabbi var félagsmálamaður og
áhugi hans á íþróttum alltaf mik-
ill, hann fylgdist vel með sínu
fólki á því sviði. Hann fór m.a. á
leik í ensku úrvalsdeildinni, þá 85
ára gamall, ásamt Jónasi tengda-
syni sínum og fleirum. Hann
hafði mikið dálæti á skák, tók
virkan þátt í skákiðkun í Skaga-
firðinum og keppti á mótum inn-
an héraðs og á landsvísu og var
vel liðtækur keppandi.
Rætur pabba voru alla tíð á
Mó og þar byggðu þau sér sum-
arhús í „Austurlandinu“, ásamt
okkur börnunum, þar sem um-
sjón með æðarvarpinu var árleg-
ur liður hjá þeim og síðan í fram-
haldinu vinna við dúninn og að
koma honum í einhver verðmæti.
Nú er höfðinginn í okkar ætt
fallinn frá og stórt skarð höggvið
í hópinn. Við sem eftir sitjum
höfum mikið af fallegum minn-
ingum til að ylja okkur við og
mamma kemur til með að hugga
okkur og hlúa að, eins og hún
hefur alla tíð verið svo natin og
dugleg við, en auðvitað er það
einnig okkar hlutverk að umvefja
hana ást og væntumþykju því
hennar er missirinn mestur. Ég
kveð föður minn með kærleik og
þakklæti fyrir allt, frá mér og
fjölskyldu minni.
Stefán Logi.
Við andlát tengdaföður míns
rifjast upp fjölmargar minningar
allt frá því ég sá hann fyrst, fyrir
meira en 40 árum.
Hann var lágvaxinn ljós yfir-
litum, snar í snúningum og kvik-
ur í öllum hreyfingum og stund-
um svolítið á undan sjálfum sér
og sívinnandi. Hann hafði sterk-
ar pólitískar skoðanir og fylgdist
vel með þjóðmálum. Hann hafði
mikið yndi af íþróttum, þá sér-
staklega fótbolta. Eina fótbolta-
ferð fór hann til útlanda, var
hann þá orðinn 85 ára. Við fórum
sex saman til London og ekki var
hann eftirbátur okkar hinna sem
yngri vorum, fylgdi okkur hvert
sem við fórum og þegar við
spurðum hvort hann væri ekki
orðinn þreyttur svaraði hann
alltaf „ekki enn.“ Við lentum í
sama herbergi á hótelinu en í því
var bara hjónarúm og það sem
meira var bara ein sæng, en við
vorum ekkert að kippa okkur
upp við það og sváfum undir
sömu sænginni, og var þessi ferð
mjög eftirminnileg og hennar oft
minnst.
Hann hafði á árum áður mik-
inn áhuga á skíðaíþróttinni og
var einn af stofnendum Skíða-
félags Fljótamanna og formaður
þess um tíma. Einnig átti skákin
hug hans allan og tefldi hann
mikið og var nokkuð góður skák-
maður og tefldi oft á mótum hér
áður.
Hann var mikill fjölskyldu-
maður og bar hag fjölskyldunnar
mjög fyrir brjósti og eignuðust
þau hjón níu börn sem öll komust
á legg og var oft glatt á hjalla hjá
þeim Mundu og Haraldi þegar
allur hópurinn var saman kom-
inn. Haraldur var mikill Fljóta-
maður og unni sveit sinni og
fannst mjög dapurlegt hve fólk-
inu fækkaði þar og hver bærinn á
eftir öðrum fór í eyði.
Hann átti sinn sælureit í
Fljótum sem var sumarbústað-
urinn Hópsver, sem hann byggði
ásamt fjölskyldu sinni í landi
Ysta-Mós og þar var hann mikið
síðustu árin, dútlaði við dráttar-
vélina sína og keyrði hana um
mýrar og móa, og hlúði að æð-
arvarpinu ásamt Mundu, börnum
og barnabörnum.
Með þakklæti og virðingu
kveð ég góðan vin og tengdaföð-
ur. Hvíl í friði.
Jónas S. Svavarsson.
Ég vil með fáeinum línum
minnast tengdaföður míns sem
lést eftir stutta sjúkrahúslegu.
Það var í hans anda að vera ekki
að hanga of lengi við hlutina
enda var hann allt fram á síðustu
stundu fyrir áfall á fullri ferð.
Það verða á þessu vori fjörutíu ár
síðan ég hitti fyrst Harald og
Guðmundu en þá bjuggu þau í
Samtúni í Haganesvík þar sem
hann var kaupfélagsstjóri Sam-
vinnufélags Fljótamanna og
hafði nýleg hætt búskap á Ysta-
Mó í Fljótum. Úr Haganesvík lá
leið þeirra hjóna til Sauðárkróks.
Ég minnist Haraldar sem mikils
hugsjónamanns sem hafði ríka
réttlætiskennd og var alltaf
tilbúinn að berjast fyrir rétti og
bættum kjörum sinnar sveitar og
héraðs.
Þó að fjölskyldan hafi flutt sig
til Sauðárkróks og þau hjón klár-
að starfsævina þar þá var hug-
urinn alla tíð við Fljótin. Til að
hafa fast afdrep í Fljótum þá
byggði hann í samvinnu við fjöl-
skyldu sína sumarhús í landi
Ysta-Mós sem byrjað var á 1985
og er reyndar enn í byggingu því
hugur hans til betri aðbúnaðar á
þeim stað fyrir sig og fjölskyldu
sína hefur skapað samstöðu um
að láta þær hugmyndir ganga
upp. Oft hafði hann á orði þá sýn
sem hann sá um frekari upp-
byggingu á svæðinu við Sólgarða
sem tengdust m.a. notkun heita
vatnsins. Það kom því ekki mér
eða öðrum honum tengdum á
óvart að þegar búið var að koma í
sumarhúsið rafmagni og ganga
frá vatns- og frárennslismálum
að þá skyldi taka inn heitt vatn.
Það var og gert í samvinnu við
nágranna og veitufyrirtæki en
ekki var deilt um stofnkostnað
eða hver ætti að taka hann því
það gerðu þau hjón til að heitt
vatn kæmi í sumarhúsið. Það
kallar fram bros á vör hve einlæg
hamingja hans var þegar skálað
var í kampavíni eftir að heitt
vatn fór að renna um ofna í sum-
arhúsinu og hann þakkaði fjöl-
skyldu og vinum fyrir. Að nýta
náttúruna var Haraldi ákveðin
lífsfylling. Á hverju vori mátti sjá
hvernig hann spratt út eins og
blóm sem legið hafði í dvala, sem
hann reyndar kunni ekki en varð
samt að bíða vorsins og fuglanna.
Að brasa og vasast í æðarvarp-
inu var hans orkugjafi sem virk-
aði á hann og aðra fjölskyldu-
meðlimi sem tóku þátt í vinnu
hans við það. Þann tíma ársins
sem ekki var hægt að nýta til að
vera eða fara í Fljótin þá tók
hann virkan þátt í félagsstarfi og
eyddi tímanum við skákborðið og
fara í gegnum skákþrautir. Hann
var virkur í starfi Skákfélags
Sauðárkróks og tók þátt í keppn-
um fyrir þess hönd. Fyrir mér
sem kann þó mannganginn var
aðdáunarvert að fylgjast með
Haraldi taka þátt í keppnum
kominn langt yfir mörk sem lög-
giltur ellilífeyrisþegi og leggja
þar að velli sér mun yngri og
sprækari menn. Að mæta í af-
mæli hjá fjölskyldumeðlimum
var ekki svikist um og ekki verið
að setja fyrir sig fjarlægðir.
Fjölskylda Haraldar og Guð-
mundu er stór og samheldin og
lagði Haraldur mikla áherslu á
að viðhalda árlegum fjölskyldu-
ferðum sem ýmist eru eins dags
eða helgarferðir. Það mun óneit-
anlega verða eftirsjá í því þegar
næst verður farið í Fljótin að
hvorki heyra „Hó, Hó, þetta er
bara svona“ eða sjá Harald rölta
um svæðið í einhverju brasi sem
Guðmunda tengdamóðir mín
lýsti svo dásamlega þegar hún
var spurð um hvað Haraldur
væri að brasa að. Hann væri
sennilega að færa til baka dótið
sem hann flutti í gær.
Hvíl í friði, kæri vinur og þökk
fyrir öll árin með þér, fjölskyldu
þinni og elskulegri eftirlifandi
eiginkonu. Þinn tengdasonur,
Magnús Sigfússon.
Elsku afi.
Okkur þykir mjög vænt um að
eiga allar minningarnar um þig
og þá sérstaklega í sveitinni okk-
ar. Þú varst ávallt fyrstur manna
á alla atburði sem fylgdu bú-
skapnum. Við reyndum þó oft að
vera á undan þér en tókst það
aldrei. Í réttum varstu farinn að
bíða óþreyjufullur og jafnvel
byrjaður að draga kindurnar á
undan okkur. Spenningur var
fyrir sauðburði þar sem þú varst
mættur nokkrum dögum fyrr til
að undirbúa í fjárhúsunum. Oft-
ast reyndirðu að vera með okkur
í heyskap þar sem þú sast á
gamla traktornum að garða. Við
krakkarnir gerðum klárt nesti og
komum með á túnið og því hafðir
þú gaman af. Það minnti þig á
gamla tíma og þér líkaði vel við
stutt stopp þar sem alltaf var
mikill kraftur í þér og vildir ekk-
ert slór. Á hverju ári komstu
með óteljandi kartöflur sem átti
að setja niður í pínulítinn kart-
öflugarð eða þannig var það alla
vega í minningunni. Ekki má
gleyma henni Týru, fyrsta hund-
inum okkar, sem var í miklu
uppáhaldi hjá þér. Alltaf þegar
hún sá bílinn þinn beygja niður
afleggjarann byrjaði hún að dilla
skottinu og æstist upp. Hún tók
alltaf vel á móti þér og þú á móti
henni. Við vonum að hún hafi
tekið jafn vel á móti þér núna og
þá. Við minnumst þeirra stunda
þegar þú kenndir okkur að tefla,
sagðir Drangeyjarsöguna sem
fylgdi öllum Fljótaferðum enda
var hún efst á óskalista okkar og
ekki má gleyma öllum sögunum
sem þú sagðir okkur um gamla
tíð úr Fljótunum.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn.)
Við þökkum fyrir allar sam-
verustundirnar með þér. Við
elskum þig, afi, og munum ávallt
sakna þín.
Jónína, Berglind og Ísak.
Elsku afi okkar. Þrátt fyrir
háan aldur þinn datt okkur ekki í
hug að við myndum þurfa að
kveðja þig strax en núna er víst
komið að kveðjustund. Með sorg
í hjarta förum við yfir ótal minn-
ingar um þig en það er ekki ann-
að hægt en að fyllast þakklæti.
Þakklæti fyrir að hafa átt þig
sem afa.
Þú varst einstakur, frábær
fyrirmynd, góður, þolinmóður,
úrræðagóður, duglegur, klár,
mesti brasari í heimi og algjört
gull af manni. En orðið sem lýsir
þér samt best er líklega orðið
höfðingi, því það varstu svo sann-
arlega. Höfðingi í þínum stóra
fjölskylduhóp og að sjálfsögðu
höfðingi heim að sækja.
Þú kenndir okkur öllum svo
margt, til dæmis að keyra bíl
þrátt fyrir að hafa ekki endilega
aldur til þess, mannganginn,
helstu kennileiti í Fljótunum í
tengslum við æðarvarpið og mik-
ilvægi þess að vera í góðu sam-
bandi við fjölskylduna. Ein af
bestu minningunum okkar um
þig er úr brúðkaupinu hans Mar-
teins þegar þú gjörsamlega áttir
dansgólfið langt fram á nótt og
dansaðir meðal annars við „Það
geta ekki allir verið gordjöss“
með börnum, barnabörnum og
barnabarnabörnum.
Hjónaband ykkar ömmu var
afar fallegt. Þið voruð sniðin
hvort fyrir annað og þessa miklu
vináttu, traust og virðingu var
aðdáunarvert að sjá. Þið voruð
einstaklega flott hjón og settuð
staðalinn hátt fyrir okkur hin.
Ávallt lögðuð þið mikið upp úr
því að halda góðu sambandi við
alla í fjölskyldunni og fyrir það
erum við þakklát. En þar leið þér
best, í faðmi fjölskyldunnar.
Elsku afi. Það er erfitt að
sætta sig við að þú sért farinn, en
við huggum okkur við að þú hefð-
ir ekki viljað vera upp á aðra
kominn. Við vitum að það verður
tekið vel á móti þér á nýjum stað,
þar sem önnur verkefni bíða þín.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku amma. Þinn missir er
mikill. En þó að afi sé horfinn á
braut og söknuðurinn sé mikill,
þá mun gleðin og glaðværðin
sem alltaf var í kringum hann lifa
í minningunni. Minningunni um
einstakan mann.
Elsku afi. Við kveðjum þig
með söknuði.
Þín barnabörn,
Heba, Marteinn, Harpa Sif
og Þóra Rut.
Elsku afi minn, að ég eigi
svona margar og góðar minning-
ar um þig get ég verið ævinlega
þakklátur fyrir. Þú varst algjör
hetja og góðhjartaður maður í
mínum augum og svo miklu
meira en það. Höfðingi varstu yf-
ir stórri Mósarafjölskyldu sem
ég er mjög stoltur að tilheyra. Þú
varst ekki bara afi minn heldur
góður vinur. Ég man þegar við
félagarnir tefldum saman og vor-
um að brasa við ýmsa hluti í
Fljótunum. Þú tókst öllum opn-
um örmum og varst góður við
Haraldur
Hermannsson
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
IngerRósÓlafsdóttir
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann