Morgunblaðið - 19.04.2014, Blaðsíða 43
Að loknu prófi í viðskiptafræðinni
hóf hann störf hjá Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga 1959 og starf-
aði þar allan sinn starfsferil:
„Ég hafði ýmislegt á minni könnu
hjá sambandinu, vann að samein-
ingu sveitarfélaga um árabil sem rit-
ari sameiningarnefndar og var þá á
stöðugu flandri, landshorna á milli.
Ég sá um fræðslumál sambandsins,
s.s. námskeiðahald, ráðstefnur og
fundahöld, og var ritstjóri Sveitar-
stjórnarmála frá 1968-2004.
Það gat verið mikið þolinmæðis-
verk að sameina sveitarfélög og
gekk oft á ýmsu í þeim efnum. En
allt hefur þetta þó þokast.
Líklega hefur þó dýrmætasta
framlag mitt verið fólgið í því að
skipuleggja ótal ráðstefnur og fundi
með landsbyggðarmönnum og emb-
ættismönnum ríkisins, og draga
þannig úr gagnkvæmri tortryggni
milli þessara aðila, sem oft var mik-
il.“
Unnar sat í stúdentaráði HÍ, var
formaður stúdentakórsins, sat í
stjórn Stúdentafélags jafnaðar-
manna, FUJ og Varðbergs, var í
framboði fyrir Alþýðuflokkinn og
var vþm. á Suðurlandi 1959-70.
Unnar sat allsherjarþing Sþ 1969,
fundi sveitar- og héraðsstjórnar-
þings Evrópuráðsins, sat í Umferð-
arráði, Æskulýðsráði, í Öldrunarráði
Íslands, í vinabæjanefnd Norræna
félagsins og er formaður hennar, sat
í stjórn Sundfélagsins Ægis, var
varaformaður Sundsambands Ís-
lands, var formaður Árnesinga-
félagsins í Reykjavík um árabil, for-
maður Félags eldri borgara í
Reykjavík 2009-2013 og varafor-
maður Landssambands eldri borg-
ara um skeið.
Fjölskylda
Unnar kvæntist 8.8. 1960 Maríu
Ólafsdóttur, f. 17.1. 1939, fyrrv.
blaðamanni og prófarkalesara við
DV, Birting og víðar. Hún er dóttir
Ólafs Jónssonar, trésmíðameistara
og símstöðvarstjóra á Þingeyri, og
Elínborgar Sveinsdóttur símstöðv-
arstjóra, af Skarðsætt.
Börn Unnars og Maríu eru Krist-
ján Már, f. 14.9. 1959, fréttamaður á
Stöð 2, búsettur í Reykjavík, kvænt-
ur Þorgerði Sigurðardóttur sjúkra-
þjálfara og eru börn þeirra María, f.
26.2. 1987, Kristín Eygló, f. 20.11.
1988, Ingunn Lára, f. 11.12. 1992, og
Sigurður, f. 14.4. 1998; Stefán Örn, f.
21.11. 1960, viðskiptafræðingur og
framkvæmdastjóri Myndmarks hf.,
en kona hans er Anna Jórunn Guð-
mundsdóttir hjúkrunarfræðingur og
eru dætur þeirra Dóróthea Björk, f.
7.3. 1992, og María Karitas, f. 29.10.
1996; Elín Björk, f. 23.7. 1963, veð-
urfræðingur og framhaldsskóla-
kennari við VMA, búsett á Dalvík,
gift Sveinbirni J. Hjörleifssyni, fisk-
iðnaðarmanni og hestaþjónstubónda
og eru börn þeirra Þorgerður Jó-
hanna, f. 20.5. 1989, Unnar Már, f.
7.7. 1992, Jóhann Ólafur, f. 20.2.
1996, og Hjörleifur Helgi, f. 9.10.
1999.
Systkini Unnars: Árni, f. 3.11.
1932, d. 16.4. 2006, var lektor við
KHÍ; Guðmundur, f. 5.10. 1937,
hljóðfærasmíðameistari í Reykjavík;
Guðjón Ingvi, f. 3.3. 1939, verkfræð-
ingur og fyrrv. framkvæmdastjóri
SSV, búsettur í Reykjavík; Atli Þor-
steinn, f. 11.12. 1942, tæknifræð-
ingur hjá VST.
Foreldrar Unnars voru Stefán Jó-
hann Guðmundsson, f. 26.10. 1899, d.
29.10. 1988, byggingameistari og
hreppstjóri í Hveragerði, og Elín
Guðjónsdóttir, f. 9.5. 1898, d. 20.11.
1995, húsfreyja í Hveragerði.
Úr frændgarði Unnars Stefánssonar
Unnar
Stefánsson
Þórunn Þorvaldsdóttir
húsfr. á Eyrarbakka
Guðmundur Þorsteinsson
járnsm. í Eimu á Eyrarbakka
Ingunn Guðmundsdóttir
húsfr. á Eyrarbakka
Elín Guðjónsdóttir
húsfr. í Hveragerði
Guðjón Þorsteinsson
sjóm. á Eyrarbakka
Markús Þorsteinsson
söðlasm. í Rvík
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Gröf
Þorsteinn Jónsson
b. í Gröf í Hrunamannahreppi
Guðríður Torfadóttir
húsfr. á Grænavatni
Árni Davíðsson
b. á Grænavatni
Valgerður Árnadóttir
húsfr. í Laufási
Kristín
Árnadóttir
húsfr. á Nesi
í Norðfirði
Bjarni
Vilhjálmss.
þjóðskjala-
vörður
Vilhjálmur
Bjarnason
alþm.
Guðmundur Stefánsson
smiður og fræðim. í Laufási í Norðfirði
Stefanía
Stefánsdóttir
húsfr. í Norðfirði
Stefanía
Erlendsdóttir
húsfr. á Húsavík
og í Neskaupstað
Ármann
Snævarr
háskólarektor
Stefán Jóhann Guðmundsson
húsasmíðam. í Hveragerði
Guðrún Ögmundsdóttir
húsfr. á Hólum
Stefán Sveinsson
b. á Hólum í Norðfirði
Ágúst
Markússon
veggfóðr.m.
í Rvík
Karl
Markússon
bryti í Rvík
Bertha
Karlsdóttir
húsfr. í Rvík
Markús Örn
Antonsson
forstöðum.
Þjóðmenn-
ingarhúss
Hörður Ágústsson
listmálari og fræðimaður
Valborg Snævarr
hrl.
Sigríður
Snævarr
sendiherra
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014
www.gilbert.is
FRISLAND CLASSIC
TÍMALAUS HÖNNUN
VIÐ KYNNUM
Kjartan J. Jóhannsson, læknirog alþingismaður, fæddist íReykjavík 19.4. 1907. Hann
var sonur Jóhanns Ármanns Jónas-
sonar, úrsmiðs frá Drangshlíð, og
Ólafar Jónsdóttur frá Álftanesi á
Mýrum húsfreyju.
Eiginkona Kjartans var Jóna B.
Ingvarsdóttir frá Hafnarfirði og
eignuðust þau fimm börn.
Kjartan lauk stúdentsprófi frá
MR 1925, embættisprófi í læknis-
fræði frá HÍ 1931 og sótti fram-
haldsnám til Lundúna, Kaupmanna-
hafnar, New York og Nürnberg.
Hann var til sjós á togurum á náms-
árunum.
Kjartan var læknir á Ísafirði 1932-
63, héraðslæknir í Kópavogi 1963-78
og heimilislæknir þar 1978-85.
Á Ísafjarðarárunum fór Kjartan í
sjúkravitjanir á nóttu sem degi, oft
um langan veg, fótgangandi eða á
gönguskíðum um fjallvegi. Helgi
Seljan, fyrrv. alþm., segir um störf
hans í eftirmælum: „Í þeim störfum
sínum ávann hann sér hylli á heima-
slóðum sínum með ljúfmennsku,
samviskusemi og ósérhlífni.“
Kjartan var alþingismaður Ísa-
fjarðar og Vestfjarða fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn 1953-63. Á Alþingi
flutti hann m.a. frumvarp til laga um
bann við hnefaleikum og um breyt-
ingu úr vinstri umferð til hægri um-
ferðar. Hann beitti sér einnig fyrir
innleiðingu skuttogara í stað síðu-
togara. Hann var alla tíð virkur í fé-
lagsmálum. Á Ísafjarðarárunum sat
hann í bæjarstjórn Ísafjarðarkaup-
staðar 1950-58, sat í stjórn Togara-
félags Ísfirðinga og fleiri útgerðar-
fyrirtækja, sat í stjórn Skíðafélags
Ísafjarðar, var formaður bygging-
arnefndar Sundhallar Ísafjarðar,
formaður Rauða kross Ísafjarðar og
sat síðar í stjórn Rauða kross Ís-
lands. Þá var hann um skeið formað-
ur Félags íslenskra bifreiðaeigenda,
formaður Geðverndarfélags Íslands
og sat í umdæmisstjórn Rótarý-
félaganna á Íslandi. Hann var
sæmdur hinni íslensku Fálkaorðu,
hlaut Paul Harris-viðurkenningu
Rótarýklúbbanna og var heiðurs-
félagi FÍB.
Kjartan lést 7.1. 1987.
Merkir Íslendingar
Kjartan J.
Jóhannsson
Laugardagur
80 ára
Aldís Stefánsdóttir
Halldór Ingólfsson
Helga Albertsdóttir
Hjördís Ágústsdóttir
70 ára
Finney A. Finnbogadóttir
John Andrew Ágústsson
Jóhanna Björnsdóttir
Jónas P. Aðalsteinsson
Margrét Björgvinsdóttir
Margrét Þ. Gunnlaugsdóttir
Steinunn I. Jörgensdóttir
Sveinn Rafnkelsson
60 ára
Arnar Magnús Friðriksson
Ásgeir Valdimarsson
Hafliði Sigurður Björnsson
Halla Björk Guðjónsdóttir
Helga K. Kristmundsdóttir
Hinrik H. Friðbertsson
Ingunn Bergþórsdóttir
Klara Þorsteinsdóttir
Margrét Sverrisdóttir
Pétur Kristján Kristjánsson
Sigurlína Hilmarsdóttir
50 ára
Björn Oddsson
Einar Kristjánsson
Guðmundur Tómasson
Hansína Ellertsdóttir
Helena Harðardóttir
Kjartan Þór Friðleifsson
Sif Gunnlaugsdóttir Nielsen
40 ára
Áslaug Salka Grétarsdóttir
Birna Helgadóttir
Bjarney R. Hinriksdóttir
Christine Hellwig
Gíslný Halldóra Jónsdóttir
Irina Prokhorova
Jenný V. Þorsteinsdóttir
Jóhanna S. Kristjánsdóttir
Jón Valgeir Guðmundsson
Sigurbjörn Hallsson
Sigurbjörn Jónsson
Þuríður Anna Pálsdóttir
Páskadagur
80 ára
Anna Sigmundsdóttir
Finnbjörg Grímsdóttir
Jakob Kristjánsson
Stefán Valdimarsson
Tordis A. Kristjánsson
70 ára
Áslaug Hauksdóttir
Ásrún Hauksdóttir
Gestur Guðnason
Guðbjörg S. Hjálmarsdóttir
Gunnar Baldvinsson
Hildur Friðriksdóttir
Jóhanna Jónsdóttir
Móeiður Sigurðardóttir
Sigurður Sigurðsson
Svavar Gísli Stefánsson
Vera Kjartansdóttir
60 ára
Eyþór Geirsson
Hilmar Oddur Gunnarsson
Hörður Þór Hafsteinsson
Jón Bryndal Aðalbjörnsson
Magnús Vagn Benediktsson
Páll Ríkarðsson
Snjólfur Ólafsson
50 ára
Einar Sigurjónsson
Gestur Ágústsson
Gígja Viðarsdóttir
Gísli Rafn Jónsson
Grétar Páll Aðalsteinsson
Guðmundur S. Bjarnason
Harpa Viðarsdóttir
Jóna Ingunn Pálsdóttir
Jón Daði Ólafsson
Laurent N. Bonthonneau
Magnús Axelsson
María Guðmundsdóttir
María Vilborg Hauksdóttir
Ríkharð Lúðvíksson
Sigríður Ósk Halldórsdóttir
Sigrún Þórólfsdóttir
Snorri Geir Guðjónsson
Sverrir Þór Sverrisson
Þór Gunnarsson
Þórunn Óskarsdóttir
40 ára
Elena B. Sævarsdóttir
Finnbogi Lýðsson
Guðjón Þór Tryggvason
Guðmundur Claxton
Guðmundur Marteinsson
Hugrún P. Sigurbjörnsdóttir
Jóhann Bessason
Linda Sveinsdóttir
Sigurður Ingi Ragnarsson
Sólrún Inga Þórisdóttir
Þuríður Anna Jónsdóttir
Annar í páskum
90 ára
Soffía Júlíusdóttir
80 ára
Baldvin Jónsson
Bodil Petersen
Héðinn Skarphéðinsson
Ólafur Óskarsson
Þórdís Þórarinsdóttir
70 ára
Dagur Ingimundarson
Guðbjörg Jóna Elísdóttir
Nína K. Guðnadóttir
Ólafur Erlingsson
Sigurður Einarsson
Stefán Þ. Tryggvason
Þórarinn Kristinsson
60 ára
Ásgeir Karlsson
Björk Lind Harðardóttir
Edda S. Guðmundsdóttir
Einar Jón Ólafsson
Frímann Karlesson
Guðjón M. Kjartansson
Guðrún Jónsdóttir
Jón Hermannsson
Jón Þórðarson
Kjartan Smári Ólafsson
Lárus Björnsson
María Jóna Jónsdóttir
Ólöf Þorvaldsdóttir
Steinar Ingi Eiríksson
Þorsteinn Ágúst Harðarson
50 ára
Ásta Björk Sveinsdóttir
Hálfdán Sigurjónsson
Hildur Sveinbjörnsdóttir
Ida Night M. Ingadóttir
Jóhannes Þór Hilmarsson
Jóhann Gunnar Stefánsson
Jón Tryggvi Jökulsson
Kolbrún K. Daníelsdóttir
Lúðvík Berg Bárðarson
Reynir Ámundason
40 ára
Arnbjörg Pétursdóttir
Daniel Damian Kowal
Einar Páll Guðlaugsson
Guðfinna Hinriksdóttir
Helgi Karl Hafdal
Nicole Kristjansson
Sebastian B. Stefanowicz
Sigríður E. Ragnarsdóttir
Sigríður Erla Einarsdóttir
Sigrún Árnadóttir
Sigrún Birna Einarsdóttir
Sigurborg Kristinsdóttir
Sóley Sigrún Ingólfsdóttir
Til hamingju með daginn
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/