Morgunblaðið - 19.04.2014, Side 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Að vita hvenær maður hefur færst of
mikið í fang er eitt, að viðurkenna það er ann-
að. Guðirnir brosa við þér og þú ættir að njóta
þess.
20. apríl - 20. maí
Naut Hlutirnir ganga oft betur og hraðar fyrir
sig ef þú reynir að verja þig fyrir umhverfinu.
Ef þú getur skaltu taka þér frí frá vinnu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það reynir á þig í samstarfi við
vinnufélagana. Slepptu allri sjálfsvorkunn,
brettu upp ermarnar – og af stað! Kannaðu
alla mögulega sem eru í stöðunni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Finnst þér þú fastur/föst? Hlutirnir eru
að breytast, þeir breytast bara alltaf í það
sama aftur og aftur. Bolmagn annarra kemur
þér á einhvern hátt að góðum notum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að læra að láta hlutina vera þér
til ánægju en ekki byrði. Allar fjármála-
umræður dagsins geta fært þér hagnað þegar
til lengri tíma er litið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert örlát/ur og tilfinningarík/ur í eðli
þínu. Tjáðu þig. Láttu það ekki spyrjast að þú
hafir áhyggjur heldur haltu ró þinni og þá fer
allt vel.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú færð hugsanlega hugmyndir um alger-
lega nýja leið til tekjuöflunar. Vertu bara viss
um að það sem þú trúir sé satt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Í hverjum hópi leynist fortölu-
maður og þú situr einmitt uppi með þannig
manneskju í dag. Gakktu ekki of nærri sjálfum
þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þetta er dagurinn sem þú hefur
beðið eftir til þess að hefjast handa við nýtt
verkefni. Losaðu þig við neikvæðar venjur og
temdu þér aðrar og betri.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Tilhugalífið gæti valdið þér von-
brigðum í dag. Sambandið getur bæði verið
huggulegt og náið eða praktískt og vinnutengt.
Til þess að halda ástinni heitri er gott að vera
hreinskilin/n.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Í dag er ekki heppilegt að tala við
fólk með völd, eða fjölskylduna, um mikilvæga
hluti á heimilinu. Mundu að hver er sinnar
gæfu smiður og allir þurfa að leggja sig fram.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Góðir hlustendur lifa sig inn í sögurnar
sem þeir heyra. Lítil próf og litlar breytingar
eru að undirbúa þig fyrir hið stóra tækifæri
sem mun koma þér skemmtilega á óvart í nán-
ustu framtíð.
Fyrir viku var ég með vísnagátuúr fórum Ólafs Davíðssonar og
fór eins og vænta mátti að svör yrðu
fá.
Allsber gaur sem átti pell
á ýmsar hliðar skoppa vann.
Nefinu klórar niður í svell,
nokkuð gruggótt drekkur hann.
Harpa Jónsdóttir leysti gátuna á
frumlegan hátt og fæ ég ekki betur
séð en að lausn hennar sé a.m.k.
„jafngóð hinni réttu“:
Laufguð grein varð göngustafur,
í geisla sólstafurinn lék.
Frera brodd- upp fleygar -stafur.
Fjöðurstafur drekkur blek.
Karlinn á Laugaveginum lét til sín
heyra (eftir að hafa kíkt í svörin):
Fjaðrapenni pelli skrýddist,
párar beint og hallt á ská.
Bæði á skinni og blaði níddist,
blekið kolsvart drekkur þá.
Þessi vísnagáta er eftir Pál Jón-
asson í Hlíð:
Stundum þínu eyra á,
ekki traustur piltur sá,
kind sem gömul ekki er,
amerískur trukkur hér.
Lausnir þurfa að berast ekki
síðar en á miðvikudagskvöld til að
ná laugardagsblaðinu.
Sigmundur Benediktson yrkir
og eru það orð í tíma töluð:
Úkraínu ógnar stríð
óviss sáttagjöldin.
Blessuð sól og byljatíð
berjast hér um völdin.
Varist hret og vinda stuð,
veitist ferð án háska.
Bið að öllum gefi Guð
gleðilega páska.
Davíð Hjálmar Haraldsson hef-
ur orð á því, að í Vaðlaheiðar-
göngum sé unnið eftir þeirri
ágætu varúðarreglu að láta
verkamenn inni í göngunum vita
strax þegar búið er að sprengja.
Hér eftir á að gera það með hljóð-
merki.
Verkamenn í Vaðlaheiðargöngum
vita – er þeir heyra í Líkaböngum
þar sem renna unaðsvolgar vætlur –
að verktakarnir sprengdu þá í tætlur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af fjaðrapenna, Úkraínu
og Vaðlaheiðargöngum
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞEGAR ÉG KALLA: „ÞJÓNN!“ ÞÁ ÆTLAST
ÉG TIL AÐ ÞÚ KOMIR Á STUNDINNI!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... hlýnun hjartans.
HÁRÍGRÆÐSLUR RAKARASTO
HINN
NÝI ÞÚ!
HINN NÝI
EKTA ÞÚ!
HVAÐ ER GOTT
HJÁ YKKUR Í
DAG?
ÉG BARA VEIT
ÞAÐ EKKI.
HA? AF
HVERJU
EKKI?
ÉG REYNI AÐ HORFA
EKKI Á MATINN.
LÍKAMSRÆKT ER GÓÐ LEIÐ
TIL AÐ HALDA Á SÉR HITA.
SATT OG
RÉTT ...
EN ÞETTA
VIRKAR LÍKA.
Nægjusemi er vanmetin dyggð.Þessa dyggð mætti nútíma-
fólk leggja meiri rækt við. Og
einnig verður að láta af öfund –
ekki að vera að andskotast alltaf
yfir því að aðrir hafi það betra
einhvers staðar annars staðar.
Þessa lífsspeki ætlar Víkverji að
reyna að temja sér í ríkari mæli
því hann býr hvorki yfir nægju-
semi né er hann alveg laus við öf-
und.
x x x
Alla vega býr Víkverji ekki yfirþessum eiginleikum í jafn-
ríkum mæli og skeleggur 100 ára
viðmælandi hans á dögunum. Við-
mælandinn greindi nútímann á
einu augabragði enda óhætt að
segja að hann hafi upplifað tímana
tvenna. Heimtufrekja var það víst
sem heillin notaði yfir kynslóð
Víkverja. Jú, jú, hann tekur þetta
til sín og stefnir á bót og betrun.
Enda ekki annað hægt því hann er
svo gjörspilltur af heimtufrekju
yfir öllum mögulegum sem ómögu-
legum hlutum.
x x x
Fyrst verður þó að koma höndumyfir dýrindis páskaegg. Fram-
leiðendur þreytast ekki á að telja
Víkverja trú um að hátíð frelsar-
ans gangi ekki í garð fyrr en mag-
inn er orðinn fullur af súkkulaði.
En eftir það verður hann víst að
baða sig upp úr grænmeti. Hrein-
ar öfgar, mikið rétt. Hófsemin er
á bak og burt og átið í fyrirrúmi.
x x x
Annars gleðst Víkverji yfir pásk-unum eins og hver annar.
Tími með fjölskyldu og vinum og
frí frá vinnu. Eins skemmtileg og
gefandi og vinna Víkverja er þá er
ekki hægt að neita því að það er
gaman að líta upp af og til.
Eitt er víst að í þetta skiptið
ætlar Víkverji ekki að svekkja sig
yfir því sem hann hefur ekki í
hendi heldur gleðjast yfir því sem
hann á. Þótt það sé ekki nema í
einn dag eða svo, þangað til
heimtufrekjan og prjálið verður
yfirsterkara. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Og þótt þér elskið þá,
sem yður elska, hvaða þökk eigið þér
fyrir það? Syndarar elska þá líka, sem
þá elska. (Lk. 6, 32.)
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/