Morgunblaðið - 29.05.2014, Page 4

Morgunblaðið - 29.05.2014, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014 Stangarhyl 1a, 110 R • S:5678030 www.rj.is testo hitamyndavélar Við mat á ástandi bygginga eða lagna, hættu á myglu, við eftirlit og bilanagreiningu á vélum og rafbúnaði. www.rj.is We measure it. Veggmyndir úr koparvír eftir Sig- urjón Ólafsson sem prýða húsakynni Arion banka í Austurstræti 5, verða fluttar og hengdar upp í höf- uðstöðvum bankans í Borgartúni 19 í sumar. Minjastofnun Íslands ákvað í sam- ráði við eigendur húsnæðisins og handhafa höfundarréttar Sigurjóns Ólafssonar að veggmyndirnar yrðu fluttar í annað húsnæði í eigu bank- ans. Þetta var gert í samráði við húsafriðunarnefnd. Ástæðan er sú að útibú Arion banka í Austurstræti og við Hlemm sameinast í nýju útibúi í Borgartúni 18, hinn 12 júní nk. Þann 11. júní, verður Arion banka í Austurstræti og við Hlemm lokað að því undanskildu að boðið verður upp á þjónustu gjaldkera á Hlemmi fram til 8. ágúst að því er fram kemur í tilkynningu bankans. Engin breyting verður á fjölda starfsmanna í nýja sameinaða úti- búinu en þeir verða 36 talsins. Nýja útibúið mun bæði þjóna ein- staklingum og fyrirtækjum. Þar verða hraðbankar sem bjóða upp á fjölbreyttari aðgerðir en áður. thor- unn@mbl.is Morgunblaðið/Golli Listaverk Veggmyndir úr koparvír eftir Sigurjón Ólafsson sem prýða húsakynni Arion banka í Austurstræti 5, verða fluttar, þegar útibúið lokar 11. júní nk. Þær verða hengdar upp í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni 19. Veggmyndir fluttar  Arion banki í Austurstræti 5 og við Hlemm sameinast í nýju útibúi í Borgartúni  Minjastofnun samþykkti flutning Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Dýralæknar fást í auknum mæli við aðskilnaðarkvíða hjá gæludýrum, einkum hundum. Algeng meðferð er atferlismeðferð og lyfjameðferð, þar sem dýrið fær kvíðastillandi lyf. Dýralæknir segir atferlisvanda gæludýra vaxandi grein innan dýra- læknisfræðinnar. „Hundar eru miklar fé- lagsverur og það er þeim óeðlilegt að vera einir,“ segir Hanna María Arnórsdóttir, dýralæknir á Dýra- spítalanum í Garðabæ. „Þegar eig- andinn fer að heiman á morgnana getur hundurinn fundið fyrir sárum söknuði, jafnvel angist. Sumir fást við það með því að slaka á, en mun fleiri verða virkilega hræddir, eiga erfitt með að vera einir og fá alvar- legt kvíðakast. Til þess að hægt sé að fást við vandann þarf stundum að ná geðshræringunni niður með lyfjum.“ Tengist hvorki aldri né tegund Þegar grunur leikur á því að hund- ur þjáist af aðskilnaðarkvíða eru hagir hans kannaðir, m.a. hversu mikið hann er hreyfður og fylltur er út spurningalisti til að greina dag- lega hegðun hundsins. Komi í ljós að hundurinn sýni oft hegðun á borð við að elta eigandann um allt og sýna óviðeigandi atferli þegar hann er einn heima, sé næsta skref að ákveða meðferð. Hanna María segir að að- skilnaðarkvíði sé hvorki bundinn við tegund né aldur hunda. Lyfjameðferð af þessum toga var- ir að lágmarki í 6-8 mánuði og sam- hliða henni er dýrið í atferlisþjálfun þar sem tekist er á við vandann. Sjaldgæft er að lyfjameðferðin standi yfir í mörg ár, þó er það til. Hanna María segir að hundaeig- endur leiti talsvert á dýraspítalann með vanda af þessum toga. Það hafi aukist, en hafa beri í huga að hunda- eign hafi líka aukist á undanförnum árum. „Flest fólk hugsar mjög vel um hundana sína. Sumum finnst kjánalegt að gefa hundi kvíðastill- andi lyf, en myndu ekki flestir gefa hundinum sínum lyf ef hann væri með sykursýki eða sýkingu? Hér er- um við að tala um hunda sem eru veikir af kvíða. Þetta eru engar galdrapillur sem breyta hundinum, en þær hjálpa honum við að tileinka sér heilbrigðara atferli,“ segir Hanna María. Hundum lógað vegna hegðunar Hún segir að atferlisvandi sé helsta ástæðan í heiminum fyrir því að hundum er lógað, þannig að mik- ilvægt sé að vinna í því, komi upp vandamál með hegðun hunda. „Sem betur fer verða sífellt fleiri meðvit- aðir um þá hjálp sem hægt er að fá hjá dýralæknum og dýraatferlis- fræðingum sem beita jákvæðum að- ferðum og með því að gefa lyf. Hug- arfar fólks varðandi gæludýr hefur breyst heilmikið, en oft leitar það ekki aðstoðar fyrr en hegðunin hefur gengið býsna langt.“ Hundar þjást af aðskilnaðarkvíða  Atferlisvandi gæludýra er vaxandi fræðigrein  Dýrin fá kvíðastillandi lyf Morgunblaðið/Sverrir Hvutti Aðskilnaðarkvíði getur þjáð hunda, að sögn dýralæknis. Hanna María Arnórsdóttir Aðskilnaðarkvíði gæludýra á sér ýmsar birtingarmyndir, að sögn Hönnu Maríu. Algengt er að hundar gangi örna sinna á heim- ilinu. „Sumir skemma hluti, gelta mikið eða væla. Þeir elta eigand- ann út um allt og væla þegar hann fer á klósettið eða inn í lokað her- bergi. Hjá köttum kemur þetta oft út með því að þeir pissa á ýmsa staði á heimilinu.“ En fleiri dýrategundir geta sýnt kvíðaeinkenni. Hanna María nefnir dæmi um stóran páfagauk sem er- lendur kollegi hennar með- höndlaði, en fugl- inn var þunglynd- ur og sýndi áráttuhegðun, reif m.a. af sér fjaðrirnar. „Ég þekki engin slík dæmi hér, enda fáir slíkir fuglar hér á landi, en þessi fugl fékk lyf,“ segir Hanna María. Þunglyndur páfagaukur ÝMSAR BIRTINGARMYNDIR AÐSKILNAÐARKVÍÐA GÆLUDÝRA Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Þetta er eins og við áttum von á og því fögnum við þessari niðurstöðu sem er skjólstæðingum okkar hag- felld,“ segir Skúli Sveinsson lögmað- ur hjá Lögvernd og vísar í máli sínu til niðurstöðu Persónuverndar um að varðveisla Vodafone á smáskilaboð- um hafi ekki samrýmst lögum um persónuvernd og meðferð persónu- upplýsinga. Skúli undirbýr nú mál- sókn á hendur Vodafone fyrir hönd skjólstæðinga sinna sem aðild eiga að málsóknarfélagi sem stofnað var um miðjan febrúar síðastliðinn. Hefur Persónuvernd nú úrskurðað í sjö málum sem kærð voru til stofn- unarinnar vegna leka á persónuupp- lýsingum frá Vodafone þann 30. nóv- ember 2013. En málin snúast um smáskilaboð sem tölvuhakkari komst yfir þegar hann gerði árás á tölvu- kerfi Vodafone. Segist hakkarinn hafa náð persónuupplýsingum, þar á meðal voru notendanöfn og smáskila- boð, um sjötíu þúsund notenda hér á landi. Í kjölfarið birti hann svo upp- lýsingarnar á netinu. „Liggur fyrir að sms-skilaboðin vistuðust sjálfkrafa á þjónustusvæði á vefsíðu Vodafone nema afhakað væri við reit um vistun gagna,“ segir í einum úrskurði Persónuverndar en kvartað var yfir að smáskilaboðin hefðu verið orðin eldri en sex mánaða og að því hefði fyrirtækinu verið skylt að eyða þeim. Hins vegar bentu lögmenn Vodafone m.a. á að hin stolnu skilaboð voru vistuð í skeyta- sögu og að mjög auðvelt hafi verið að eyða þeim stæði vilji notanda til þess. Styttist í málshöfðun Aðspurður segir Skúli senn líða að málshöfðun. Nú sé fyrst og fremst beðið eftir því að Póst- og fjarskipta- stofnun ljúki sínum hluta málsins auk þess sem verið sé að safna enn fleir- um í félagið. „Undirbúningur gengur samkvæmt áætlun og hvet ég alla þá sem orðið hafa fyrir tjóni eða óþæg- indum af þessu að ganga í [málsókn- ar]félagið og sækja sinn bótarétt. Við gerum ráð fyrir því að bótakrafan, sem við komum til með að gera fyrir hinn venjulega notanda, verði á bilinu 300 til 500.000 krónur,“ segir Skúli. Varðveisla smáskila- boða brot gegn lögum  Bótakröfur einstaklinga gætu hljóðað upp á hálfa milljón Morgunblaðið/Ómar Tölvuárás Ráðist var á vef Voda- fone í fyrra og upplýsingum stolið. „Það er skýr stefna okkar að á spítalanum ríki launajöfnuður. Annað er ekki ásættanlegt af okk- ar hálfu,“ segir Bryndís Hlöðvers- dóttir, starfsmannastjóri Land- spítalans, LSH, en í jafnréttisáætlun spítalans kemur m.a. fram að karlar sem starfa á spítalanum hafi fengið hærri laun en konur í sjö af fjölmennustu stéttarfélögunum sem þar starfa. Um þetta var fjallað í Morg- unblaðinu í gær og þar kom m.a. fram að mestur var munurinn hjá læknum þar sem konur voru með 80% af grunnlaunum karlkyns lækna og 60% af yfirvinnulaunum þeirra. Bryndís segir að muninn á launum lækna megi að hluta til útskýra með því að fleiri eldri læknar séu karl- ar. „80% yf- irlækna eru karlar og það er að hluta til vegna þess að karlkyns læknar eru al- mennt með lengri starfsaldur en konur. En undanfarin fimm ár hafa kynjahlutföll nýráðinna yf- irlækna verið jöfn og í dag eru fleiri konur en karlar ráðnar sem læknar á Landpítalanum,“ segir Bryndís. Hún segir hægt að útskýra hluta launamunarins, annað sé ekki hægt að útskýra með góðu móti og það verði nú skoðað. Áð- urnefnd jafnréttisáætlun var unn- in af jafnréttisnefnd spítalans og verður hún efld frekar. „Við mun- um ráða starfsmann, sem mun m.a. rýna betur í þessar tölur og í framhaldinu leitum við leiða til úr- bóta.“ annalilja@mbl.is Launamisrétti ekki ásættanlegt Bryndís Hlöðversdóttir  Munu rýna í tölurnar og því næst leita leiða til úrbóta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.