Morgunblaðið - 29.05.2014, Page 11

Morgunblaðið - 29.05.2014, Page 11
Af vef setursins Skrímslasetrið Á Bíldudal fer hátíðin fram í kringum Skrímslasetrið og þar sem allt getur gerst þessa daga í júní ætti ekki að koma neinum á óvart að eins og eitt skrímsli ræki hausinn upp úr Arnarfirðinum. Bíldudalur og gufan Hvernig ætli Bíldudalur sem slíkur tengist gufupönkinu? Bærinn sjálfur tengist því ekki með beinum hætti en að sögn Ingimars bjó þar merkur kaupsýslumaður í kringum aldamótin 1900 og hét hann Pétur Thorsteinsson. Pétur mun hafa ver- ið afar framúrstefnulegur í verk- efnum sínum. „Hann byggði hér hús og járnbrautarteina og var með sinn eigin gjaldmiðil og flutti út fisk beint frá Bíldudal til Portú- gal og Spánar. Á þessum tíma var mikill uppgangur og bjó hér fjöldi fólks. Árið 1918 var sett upp raf- stöð og skipin svo mörg að þau voru eins og skógur á voginum, svo mikið var athafnalífið,“ segir Ingi- mar um þennan sérstaka bæ, Bíldudal. Þó mun gufupönkhátíðin, eða Ævintýrahátíðin eins og hún kallast, ekki einskorðast við Bíldu- dal. „Þá breytist öll Vesturbyggð, Patreksfjörður, Barðaströnd og Bíldudalur í ævintýralandið Bíldal- íu. Við verðum með landamæra- vörslu þar sem seld verða vegabréf á hátíðina. Landamæraverðirnir verða í gufupönkuðum herbúning- um og við erum búin að fá fána sem við munum dreifa um svæðið. Tilfinningin verður sú að þú sért að koma inn í annað land og í þessu landi getur í rauninni allt gerst því hér eru ævintýrin,“ segir skrímsla- setursstjórinn sem jafnframt er konungur Bíldalíu. Þar sem allt getur gerst ættu gestir hátíðarinnar ekki að kippa sér upp við það ef rauðfext skrímsli styngi hausnum upp úr sjónum eða ef furðuför flygju yfir. „Hingað koma alla vega álfar og alls kyns kynjaverur,“ segir hann. Á Bíldudal fer hátíðin öll fram í kringum Skrímslasetrið sem margir þekkja. Setrið er í gömlu iðnaðarhúsnæði sem búið er að gera vandlega upp en í húsinu voru áður framleiddar Bíldudals grænar baunir. Setrið var formlega opnað sumarið 2009 og hefur laðað að fjölda gesta, innlenda sem erlenda. Á túninu við setrið verður bryddað upp á ýmsu í tilefni gufu- pönkhátíðar. Meðal annars verður þar gufupönkmarkaður, sirkus og síðast en ekki síst viðundrasýning (e. freak show). „Elfar Logi Hann- esson og Kómedíuleikhúsið sýna verkið Skrímslafræðinginn. Elfar Logi ætlar að útskýra skrímslin. Hljómsveitin Skuggamyndir frá Býsans ætlar að spila hér og þar yfir daginn. Sirkus, sígaunar og balkantónlist fara vel saman,“ segir Ingimar Oddsson sem mun taka vel á móti gestum Bíldalíu í hlutverki sínu á gufupönkhátíðinni í lok júní- mánaðar. Viðburðinn má finna á Facebook undir Steampunk Ice- land. Ljósmynd/Mdm. Paquette Gufupönk Ingimar Oddsson í loftfari framtíðarinnar úr fortíðinni. Þá er ekki verra að vera uppábúinn og tilbúinn að takast á við ævintýrin. Á túninu við setrið verð- ur bryddað upp á ýmsu í tilefni gufupönkhátíðar. Meðal annars verður þar gufupönkmarkaður, sirkus og síðast en ekki síst viðundrasýning, sem á ensku kallast freak show. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014 Glæsilegt úrval af sundfatnaði Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 www.selena.is • Póstsendum Næg bílastæði • Vertu vinur á Facebook

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.