Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
E
N
N
E
M
M
/
N
M
6
2
9
0
7
Business or pleasure?
Skiptir ekki máli
Með Ferðapakka Símans nýturðu úrvalskjara
á símaþjónustu þegar þú ferðast um Evrópu
og Bandaríkin. Lauflétt er að sækja um
Ferðapakkann. Sendu textann „Ferðapakki“
í númerið 1900 og Ferðapakkinn virkjast um
leið og þú ert kominn í viðkomandi land. SMS
skeytið er viðskiptavinum að kostnaðarlausu.
Mínúturnar eru ódýrari, þú greiðir 0 kr. fyrir
móttekin símtöl og daggjald aðeins þá daga
sem þú notar þjónustuna.
siminn.is
Sterkara samband við Bandaríkin
með Ferðapakka
490 kr.
990 kr.
Daggjald í Evrópu
Daggjald í Bandaríkjunum
Hringd símtöl
Móttekin símtöl
SMS
MB
5 kr. mín.
0 kr.
0 kr.
25 kr. / MB
Ferðapakki
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hlutdeild Íbúðalánasjóðs (ÍLS) í
nýjum íbúðalánum mun að óbreyttu
minnka enn frekar í ár vegna tak-
markana á hámarksútlánum hans.
Eins og hér er sýnt á grafi námu
ný íbúðalán hjá ÍLS á fyrstu fjórum
mánuðum ársins aðeins 2 milljörð-
um. Samkvæmt upplýsingum frá
Seðlabanka Íslands voru veitt ný
íbúðalán fyrir tæpa 7,4 milljarða á
fyrstu þremur mánuðum ársins. ÍLS
lánaði þá 1,7 milljarða og var hlutur
sjóðsins því um 23% á fyrsta árs-
fjórðungi. Það er svipað hlutfall og í
fyrra þegar ný útlán hjá sjóðnum
voru samtals um 13,4 milljarðar. Til
samanburðar var sjóðurinn með 768
milljarða útistandi íbúðalán um ára-
mótin, sem var um 57% hlutdeild.
Lagt var til að sjóðurinn yrði lagð-
ur niður í núverandi mynd í skýrslu
verkefnisstjórnar um framtíðarskip-
an húsnæðismála. Vinsældir verð-
tryggðra lána valda því hins vegar að
sjóðurinn heldur hlutfalli sínu af nýj-
um útlánum milli ára. Það gæti hins
vegar breyst hratt næstu mánuði.
Sigurður Erlingsson, forstjóri
Íbúðalánasjóðs, segir það veikja
samkeppnisstöðu sjóðsins að há-
markslánsfjárhæð skuli ekki hafa
hækkað í takt við hækkandi raun-
verð fasteigna. Þessi þróun styrki
markaðsstöðu bankanna.
Samkvæmt lögum um störf sjóðs-
ins veitir hann að hámarki 20 millj-
óna lán, að frádregnum lánum á fyrri
veðréttum. Lánað er fyrir allt að
80% af kaupverði með verðtryggðum
jafngreiðslulánum til allt að 40 ára.
„Nær engar líkur“ á aukningu
Sigurður segir það líka hamla
sjóðnum að bjóða aðeins verðtryggð
lán. Því séu „nær engar líkur á því“
að útlán sjóðsins í ár verði umtals-
vert meiri en í fyrra. „Eftirspurnin
er nokkuð stöðug. Ef eitthvað er, fer
hún minnkandi,“ segir Sigurður.
Að mati Oddgeirs Á. Ottesen,
aðalhagfræðings IFS Greiningar,
mun það ýta Íbúðalánasjóði út af
markaðnum ef hámarkslánin verða
ekki hækkuð. Útlit sé fyrir meiri
verðbólgu á næsta ári. Því muni há-
markslán sjóðsins dragast enn frek-
ar aftur úr verðlagsþróun. Þá telur
Oddgeir hættu á að nýir lántakendur
hjá sjóðnum verði hrakval. „Ef bank-
arnir bjóða betri kjör en Íbúðalána-
sjóður en eru með strangari útlána-
skilyrði, þá munu þeir sem kjósa að
fara til ÍLS verða þeir sem gátu ekki
fengið lán í bönkum. Það má nefna
hrakval. Sjóðurinn fær verstu lán-
takendurna. Lán Íbúðalánasjóðs
með föstum vöxtum út líftímann eru
þó ekki alveg sambærileg við fast-
eignalán bankanna, sem eru með
fasta vexti í að hámarki fimm ár.“
Ásgeir Jónsson, lektor í hagfræði
við Háskóla Íslands, bendir aðspurð-
ur á að hlutdeild Íbúðalánasjóðs á
íbúðamarkaði geti breyst hratt verði
ný útlán áfram jafn lítil hjá sjóðnum.
Hlutdeild sjóðsins hafi breyst mikið
á árunum 2004-2006, þegar bankarn-
ir hófu innreið sína á markaðinn. Það
geti endurtekið sig.
Fáir möguleikar í stöðunni
Ásgeir telur ÍLS hafa fáa kosti í
stöðunni. Uppgreiðsluvandi sjóðsins
geti magnast um leið og viðskipti á
fasteignamarkaði fara að glæðast.
Sjóðurinn bjóði lakari vaxtakjör en
bankarnir og hafi því ekki lengur
verið fyrsta val hjá lántakendum.
„Eins og kom skýrt fram í rann-
sóknarskýrslunni um Íbúðalánasjóð
þá er fjármögnun sjóðsins föst í því
háa vaxtastigi er ríkti hérlendis fyrir
hrun þar sem útgefin skuldabréf
sjóðsins eru óuppgreiðanleg. Það er
því erfitt fyrir sjóðinn að lána út með
kjörum sem byggja á þessari óhag-
stæðu fjármögnun og halda jákvæð-
um vaxtamun. Til að mynda er mjög
óhægt fyrir sjóðinn að bregðast við
ef hann verður fyrir uppgreiðslum
og koma peningum aftur í vinnu.
Miðað við núverandi stöðu byggist
framtíð Íbúðalánasjóðs á því að lang-
tímavextir hækki og bæti þannig
samkeppnisstöðu sjóðsins. Þá er það
einnig svo að markaðsvirði skulda-
bréfa sjóðsins hækkar eða lækkar
eftir ávöxtunarkröfu á markaðnum.
Lækkun kröfunnar á síðustu árum
hefur leitt til þess að skuldir sjóðsins
hafa hækkað langt umfram eignir og
sett hann í gríðarlegan vanda.
Seðlabankinn liggur á rúmlega
100 milljörðum af KB íbúðabréfum
sem gætu hækkað langtímakröfuna
ef þau væru sett á markað og breytt
forsendum bankanna til að bjóða
löng, verðtryggð íbúðalán. Það gæti
styrkt stöðu sjóðsins.“
Ásgeir telur það undirstrika
slæma stöðu sjóðsins að hann sé ekki
að sækja í sig veðrið í nýjum útlánum
það sem af er ári, á tímabili þegar
fasteignamarkaður er að taka við
sér. Útlit sé fyrir frekari hækkun
raunverðs fasteigna og á þannig
tímabilum séu bankar viljugir til að
lána. „Þetta er því rétti tíminn til að
taka meiriháttar ákvarðanir um
framtíð sjóðsins,“ segir Ásgeir sem
telur, líkt og Oddgeir, að hætta sé á
hrakvali í nýjum viðskiptamanna-
hópi hjá Íbúðalánasjóði.
Þrengir að Íbúðalánasjóði
Forstjóri Íbúðalánasjóðs segir reglur um 20 milljóna hámarkslán sjóðsins veikja samkeppnisstöðuna
Minnkar að óbreyttu hlutdeild sjóðsins Hagfræðingur telur hættu á hrakvali í viðskiptahópi ÍLS
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þúsund eignir Forstjóri ÍLS segir áform um að selja 1.000 eignir í eigu
sjóðsins á þessu ári á áætlun. Söluáætlun fyrir 2015 liggur ekki fyrir.
Ný útlán hjá Íbúðalánasjóði
Skipting eftir ársfjórðungum, 2009 til 2014*
*Í milljörðum króna. Tölur fyrir annan ársfjórðung 2014 vísa til aprílmánaðar. Heilmild: Íbúðalánasjóður
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
2009 2010 2011 2012 2013 2014
1. Ársfjórðungur
2. Ársfjórðungur
3. Ársfjórðungur
4. Ársfjórðungur
9,4
8,0
6,9 6,8
5,2
8,4
5,8
6,96,7
3,7
4,03,9
2,92,7
3,1
1,7
0,3
4,7
3,7
4,5
6,56,3
Stefnt er að
því að selja
mest allt
íbúðar-
húsnæði í
eigu Hildu,
dótturfélags
Eignasafns
Seðlabanka
Íslands, á
næstu 18
mánuðum.
Við síðustu mánaðamót áttu
Hilda og dótturfélög um 230
íbúðir og voru þar af 30 í út-
leigu. Um 90 íbúðir voru ófull-
búnar og er búið að samþykkja
tilboð í 20 þeirra. Gert er ráð
fyrir að selja um 100 íbúðir á
næstu 18 mánuðum, að sögn
Birgis Birgissonar, fram-
kvæmdastjóra Hildu, sem bend-
ir á að í eignasafni Hildu sé
einnig að finna um 100 eignir
sem flokkist undir atvinnu-
húsnæði og tæplega 40 bygg-
ingarlóðir, auk sumarhúsalóða.
Gert sé ráð fyrir að úrvinnsla
eignasafns Hildu taki 3 til 5 ár.
Hilda fer með eignir sem voru
í eigu SPRON og Frjálsa fjárfest-
ingarbankans. Meðal slíkra
eigna í eigu Hildu eru 11 fokheld
raðhús í Þingavaði í Norðlinga-
holti í Reykjavík sem Hilda hef-
ur fengið samþykkt tilboð í. Þá
áformar Hilda sölu 12 raðhúsa í
sömu götu í sumar en sex þeirra
eru fullbúin og nú í útleigu. Þá
átti Hilda 7 fokheldar íbúðir í
fjölbýlishúsi í sama hverfi, sem
seldust um daginn. Loks má
nefna að Hilda hyggst selja 8
íbúðir í Freyjubrunni í Úlfars-
árdal og 8 íbúðir við Vesturgötu
í Hafnarfirði. Alls eru þetta 46
eignir en allar voru þær í bygg-
ingu þegar hrunið varð.
Hilda á um
230 íbúðir
DÓTTURFÉLAG SÍ
Norðlingaholt